Íslandsmót para 2014 fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 29. og sunnudaginn 30. nóvember n.k.
Skráning fer fram á netinu.
Keppt verður í Keiluhöllinni Egilshöll. Byrjað er á að spila 6 leiki í forkeppni sem hefst kl. 9:00 laugardaginn 29. nóvember. Verð í forkeppnina er 9.500 kr. fyrir parið. Að því loknu komast 8 efstu pörin áfram í milliriðil og hefst keppni í milliriðli kl. 8:00 sunnudaginn 30. nóvember. Verð í milliriðil er kr. 9.000 fyrir parið. Í milliriðlinum verða spilaðir 6 leikir og keppa tvö efstu pörin að því loknu til úrslita.
Olíuburður í mótinu verður 2012 EBT 03 – Hammer Bronzen Schietspolen 38 fet Ratio 2,58 8 Sjá nánar í auglýsingu og í reglugerð um Íslandsmót para
Íslandsmeistarar Para 2013 voru Guðný Gunnarsdóttir og Arnar Sæbergsson.
50. AMF heimsbikarmótinu lauk núna um helgina. Eins og kunnugt er spiluðu þau Guðný Gunnarsdóttir og Magnús Magnússson bæði úr ÍR fyrir Íslands hönd. Magnús endaði í 33. sæti með 207,65 að meðaltali sem er ágætur árangur. Guðný endaði í 54. sæti með 171,15 í meðaltal. Guðný endaði forkeppnina á 238 leik sem lyfti henni upp um nokkur sæti.
Hjá konunum sigraði mótið hún Clara Juliana Guerrero frá Kólimbíu. Clara, sem er 32 ára, spilaði fyrst á heimsbikarmótinu aðeins 17 ára gömul þar sem hún varð í 2. sæti og sagði hún eftir að hafa sigrað Li Jane Sin frá Malasíu í þrem leikjum: “It’s taken me a long time to come back to win it!” Clara náði nú ekki sem besta undirbúningi fyrir mótið því hún kom ekki til Wroclaw fyrr en kl 01:00 á fyrsta deginum og byrjaði að æfa kl 05:30. Hún missti af æfingum og var í smá vandræðum til að byrja með en stöðugt vann hún sig upp. Setti hún 8 leikja met í mótinu sem og þriggja leikja met kvenna í úrslitunum þar sem hún spilaði 239, 243 og 265 eða 747 samtals sem er nýtt heimsmet skv. miðlum þarna úti. Li Jane spilaði 234, 257 og 211 eða 702 sem segir okkur að þessi úrslitaviðureign hefur verið afskaplega spennandi og hátt skor hjá báðum konunum.
Helgina 25. til 26. október s.l. var Íslandsmeistaramót í tvímenningi haldið í Keiluhöllinni Egilshöll. Leikar fóru þannig að Magnús Magnússon og Arnar Sæbergsson, sem báðir spila með ÍR KLS, sigruðu þá Hafþór Harðarson ÍR og Magnús S Guðmundsson ÍA. Sigruðu þeir Magnús og Arnar í tveim leikjum 456 – 426 og 426 – 365. Í þriðja sæti urðu svo þeir Guðlaugur Valgeirsson KFR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA.
Guðný Gunnarsdóttir og Magnús Magnússon hefja bæði keppni á .png)
Hinn gamalkunni Davíð Löve sem spilar undir merkjum KR náði þeim merka áfanga í 1. deildinni í gær að spila sinn fyrsta 300 leik. Kom 300 leikurinn í öðrum leik KR C á móti ÍR PLS í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Davíð spilaði 183 – 300 – 153 eða 635 seríu. Svo fór þó að ÍR PLS sigraði viðureignina 12 – 5 en upp úr stóð afrek Davíðs og óskum við honum til hamingju með 300 leikinn.