Evrópumóti landsmeistara, European Championship of Champions (ECC), lauk um helgina í Ankara í Tyrklandi. Íslandsmeistararnir Marika Katarina E. Lönnroth úr KFR og Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR kepptu fyrir Íslands hönd á mótinu.
Marika átti afar gott mót og var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í úrslitakeppni tólf efstu kvenna. Hún endaði í 13. sæti og missti af 12. sætinu með eingöngu fimm pinnum eftir 24 leiki. Það verður að teljast sérstaklega sterkur árangur hjá Mariku að vera svo nálægt því að komast áfram í hópi landsmeistara víðs vegar að úr Evrópu.
Gunnar Þór spilaði einnig vel á mótinu og endaði í 18. sæti í afar sterkri keppni í karlaflokki.
Marika og Gunnar kepptu einnig saman fyrir Íslands hönd í blönduðum tvímenningi og enduðu þar í 13. sæti.
Hollendingar voru síðan sigursælir á mótinu. Nicole Sanders varð Evrópumeistari kvenna eftir 2–0 sigur á Alexöndru Giannadaki frá Grikklandi í úrslitum og Jord van Weeren varð Evrópumeistari karla eftir 2–1 sigur á Mathias Danielsen Otting frá Noregi. Sanders og van Weeren unnu því bæði einstaklingskeppnina auk þess sem þau höfðu áður orðið Evrópumeistarar í blönduðum tvímenningi.
KLÍ óskar Mariku og Gunnari til hamingju með frammistöðuna og sérstaklega Mariku með frábæran árangur og naumt 13. sæti.




