Endurskoðun á regluverki KLÍ heldur áfram og á síðasta fundi sínum samþykkti stjórn breytingar á nokkrum reglugerðum. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Vensl eru nú bönnuð í úrslitakeppni sbr. breytingar á 12. gr. reglugerðar um liðakeppnir.
- Gerðar hafa verið breytingar á reglugerð um keilumót í samræmi við fyrri ákvörðun stjórnar um 78D hörkureglu.
- Reglugerðir um Íslandsmót Öldunga, Íslandsmót para og Íslandsmót í tvímenningi voru uppfærðar til að gæta samræmis milli móta og til að skýra orðalag sem valdið hafði misskilngi. Ekki var um eiginlegar efnislegar breytingar að ræða.
- Í mótsreglum um bikarkeppni liða er ekki lengur kveðið á um að úrslitaleikir skuli fara fram á sama stað og sama tíma heldur ákveður mótanefnd leikstað og leiktíma í upphafi árs og skal leitast við að leikstaður sé ekki alltaf sá sami milli ára. Er þessi breyting gerð svo að ekki sé útilokað að úrslitaleikir séu spilaðir þar sem eingöngu er pláss fyrir eina viðureign í einu s.s. á Akranesi.

