Oíuburðir fyrir tímabilið 2026 – 2027 hafa verið gefnir út.

Facebook
Twitter

Tækninefnd KLÍ hefur gefið út olíuburði fyrir tímabilið 2026 – 2027 og hafa þeir verið uppfærðir á vef KLÍ og sendir á salina til uppfærslu í olíuvélunum.  Jafnframt hefur stjórn samþykkt ályktun Tækninnefndar varðandi 78D regluna og verða Urethan bolta með hardness undir 78D ekki leyfðir í eftirfarndi mótum:

  • Íslandsmót einstaklinga – karlar og konur
  • Íslandsmót öldunga
  • Íslandsmót para
  • Íslandsmót í tvímenningi
  • Íslandsmóti unglinga
  • 1. deildum karla og kvenna

Urethan kúlur með hardness undir 78D verða leyfðar í eftirfarandi mótum:

  • Neðri deildum
  • Bikarkeppni
  • Íslandsmót einstaklinga með forgjöf
  • Meistarakeppni ungmenna

Viðurlög við notkun á ólöglegum keilukúlum

Viðurlög við notkun á ólöglegum kúlum eru þau að skor leikmanns telst ekki með, núll skor. Reglugerð sem við á um þessi mál er í vinnslu og verður birt á næstu dögum á vefnum.

Nýjustu fréttirnar