RIG Bowling semur við Storm

Facebook
Twitter

RIG Bowling í samstarfi við Hudson Proshop, umboðsaðila Storm á Íslandi, hafa samið við Storm Bowling og Bowltech Svíþjóð um að þau verði aðal stuðningsaðilar RIG Bowling 2027. RIGB Bowling stendur fyrir keilukeppni á Alþjóða Reykajvíkurleikunum sem Keilusamband Íslands er aðili að og er sterkasta keilumót sem haldið er hér á hverju ári.

Samningurinn felur í sér stuðning Storm og Bowltech við komandi RIG mót sem verður dagana 16. til 24. janúar á næsta ári. Með samningnum við Storm tryggir RIG Bowling að það komi sterkir erlendir keppendur á mótið og má búast við tilkynningum um nokkra keilara á næstu vikum. Auk þess verður Hudson Proshop með spennandi tilboð á Storm keilukúlum úr efstu hillu í aðdraganda mótsins.

Þess má geta að Arnar Davíð Jónsson er hluti af Storm starfsmönnum og er væntanlegur á mótið. Á hann mikinn þátt í því að koma þessum samningi á.

Mótið verður hluti af Evróputúrnum á þessu keppnistímabili og er skráning í það þegar hafin á www.rigbowling.is

Á myndinni má sjá Jóhann Ágúst Jóhannsson fyrir hönd RIG Bowling og Hafþór Harðarson frá Hudson Proshop skrifa undir samninginn.

Nýjustu fréttirnar