Framtíð keiluíþróttarinnar – stefnumótunarvinna að hefjast

Facebook
Twitter

Á ársþingi KLÍ 2026 var samþykkt að ráðast í formlega stefnumótunarvinnu þar sem staða keiluíþróttarinnar yrði metin, helstu tækifæri og áskoranir greindar og mótuð skýr sýn á það hvert íþróttin ætti að stefna. Sérstök áhersla skyldi meðal annars lögð á aðstöðumál, afreksmál, fjármögnun, útbreiðslu og sýnileika, regluumhverfi, stuðning við félög og fræðslumál.

Markmiðið er að afurð vinnunnar verði skýr og framkvæmanleg stefna fyrir KLÍ til næstu ára, með sameiginlegri framtíðarsýn, afmörkuðum megináherslum og aðgerðaáætlun sem hægt verður að fylgja eftir.

Nú er komið að framkvæmdinni hefur stjórn KLÍ samið við Heimi Björgvinsson hjá Capacent um að leiða stefnumótunarvinnuna.

Mikilvægur þáttur í vinnunni verður að fá sjónarmið keilusamfélagsins. Í samþykkt ársþingsins var sérstaklega lögð áhersla á að aðildarfélög, iðkendur og aðrir hagaðilar kæmu að stefnumótuninni og að skapaður yrði vettvangur fyrir opið samtal um stöðu íþróttarinnar og tækifæri hennar til vaxtar.

Í vinnuferlinu er meðal annars gert ráð fyrir stöðumati, rafrænni könnun og sameiginlegum stefnudegi þar sem unnið verður með hlutverk, gildi, framtíðarsýn og helstu áherslur. Að því loknu verður unnið úr niðurstöðunum og mótuð stefna ásamt aðgerðaáætlun.

Stjórn KLÍ hvetur allt keilusamfélagið til að taka virkan þátt þegar kallað verður eftir sjónarmiðum og leggja þannig sitt af mörkum við að móta framtíð íþróttarinnar.

Markmiðið er að stefnumótunin verði ekki aðeins stefna á blaði heldur hagnýtt verkfæri sem nýtist KLÍ og keilusamfélaginu við forgangsröðun, ákvarðanatöku og uppbyggingu íþróttarinnar til framtíðar.

Nýjustu fréttirnar