Evrópumót landsmeistara, ECC fer fram í Ankara Tyrklandi dagana 28. september til 4. október. Sem fyrr fara Íslandsmeistarar einstaklinga á það mót og að þessu sinni eru það Marika Katarina E. Lönnroth úr KFR og Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR sem urðu Íslandsmeistarar fyrr á árinu.
Eins og segir hefst mótið á mánudaginn þann 28. þegar síðustu þátttakendur mæta til leiks en þá verður einnig þjálfarafundur sem er fastur liður í svona mótahaldi.
Þriðjudaginn 29. kl. 09:00 að staðartíma eða kl. 06:00 að íslenskum tíma hefst mótið með formlegum æfingum í salnum og að lokum opnunarhátíð. Keppni hefst síðan á miðvikudagsmorgun en þá fara konurnar á brautirnar í fyrstu leikjablokk sinni.
Við óskum íslensku keppendunum alls hins besta á brautunum og hvetjum fólk til að fylgjast með þeim í gegn um vefsíðu mótsins.
Mótinu lýkur svo laugardaginn 3. október með úrslitakeppni efstu 12 þátttakenda úr hvorum hópi.



