Ásta Hlöðversdóttir með gullverðlaun á Heimsleikum Special Olympics

Ásta Hlöðversdóttir, sem keppir ásamt fleirum þessa dagana á Heimsleikum Special Olympics, gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk í einstaklingskeppninni í keilu sem og að ná í bronsverðlaun í tvímenningskeppni en þar keppti hún með henni Gabríellu Oddrúnu Oddsdóttur. Ásta æfir keilu hjá Íþróttafélaginu Ösp en Öspin æfir alla þriðjudaga í Egilshöll. Fjölmargir íslenskir keppendur eru á mótinu í ár og keppa í hinum ýmsu greinum. Hægt er að fylgjast með ferðum þeirra á Fésbókarsíðu Íþróttasambands fatlaðra.

Keilusambandið óskar Ástu og Gabríellu til hamingju með verðlaunin og sendir sínar bestu kveðjur út til allra íslensku keppenda á mótinu.

Meistarakeppni ungmenna lokið

Í morgun fór fram 5. og síðasta umferð í Meistarakeppni ungmenna á tímabilinu 2018 til 2019. Alls tóku um 50 ungmenni þátt í mótaröðinni þetta tímabilið og er sem fyrr keppt í 5 flokkur pilta og stúlkna. Ungmenning hafa stöðugt verið að bæta sig á tímabilinu og eru margir efnilegir einstaklingar að taka sín fyrstu skref í keilu í þessari keppni. Best í dag spilaði Jóhann Ársæll Atlason ÍA í 2. flokki pilta 1.275 / 212,5 en best stúlkna spilaði Helga Ósk Freysdóttir KFR í 1. flokki stúlkna 1.053 / 175,5

Úrslit dagsins eru hér fyrir neðan. Vakin er athygli á að samkvæmt reglum KLÍ er ekki keppt til úrslita í 5. flokki. Lokastaða tímabilsins varð eftirfarandi:

Helga og Kristján Íslandsmeistarar öldunga 2019

Þau Helga Sigurðardóttir úr KFR og Kristján Þórðarson úr ÍR sigruðu á Íslandsmóti öldunga 2019 en mótinu lauk í gær í Egilshöll. Helga sigraði stöllu sína úr KFR Afturgöngum Rögnu G Magnúsdóttur í úrslitum með 3 vinningum gegn 2 og Kristján Þórðarson sigraði Björn G Sigurðsson úr KFR með 3 vinningum gegn engum.

Arnar Davíð í 3.sæti

Arnar Davíð Jónsson stóð sig frábærlega á Evróputúrsmóti sem lauk í byrjun mars í Tilburg í Hollandi. Eftir frábæra frammistöðu komst hann í 4 manna úrslit þar sem hann leiddi lengst af en eftir erfiðan endi hafnaði hann að lokum í 3.sæti. Frábær árangur þar á ferð.

Arnar endaði í 14.sæti eftir forkeppnina en þetta var fjórða mótið af 14 á Evróputúrnum í ár. Arnar fékk að launum fyrir 3.sætið heilar 3 þúsund evrur sem gera um 400 þúsund íslenskar krónur. Eftir fyrstu 4 mótin á Evróputúrnum er Arnar í 6.sæti á stigalista Evróputúrsins en efstu 8 eftir tímabilið komast í EBT Masters 2019 sem fram fer sumarið 2020. Vonandi að Arnar nái að halda þessum góða árangri áfram en næsta mót fer fram í Munchen þann 16-24 mars næstkomandi en það er hið fræga Brunswick Euro Challenge og verða heilir 10 íslendingar með í því móti.

 

 

4.liða bikar

Dregið var í 4.liða bikar í Keiluihöllini nú í kvöld

Spilað verður 31.mars

 4.liða bikar karla:

Spilað upp á Akranesi sunnudaginn 31.mars kl 19:00
ÍA – ÍR KLS

Spilað í Egilshöll sunnudaginn 31.mars kl 19:00
KFR Lærlingar – KFR Grænu töffararnir (17-18)

4.liða bikar kvenna

Spilað í Egilshöll sunnudaginn 31.mars kl 19:00
ÍR Buff – KFR Valkyrjur   (19-20)
KFR Afturgöngurnar – ÍR SK  (21-22)

Íslandsmót Öldunga 2019

Íslandsmót Öldunga 2019 verður haldið í Egilshöll 9 – 12.mars
Skráning er hér og lokar fyrir skráningu fimmtudaginn 7.mars kl 18:00

Reglugerð fyrir mótið má finna hér

 Íslandsmót öldunga (50 ára og eldri)

Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti öldunga þarf þátttakandi að ná 50 ára aldri á því 
almanaksári sem mótið er haldið.

9 ,10 og 11 mars Forkeppni (4 leikir hvern dag)

12 mars undanúrslit og úrslit

Verð í forkeppni 13.000kr
Undanúrslit 5500kr

Nú verður ekki posi á staðnum. 
Hægt verður að greiða með Pening á staðnum eða að leggja inn á reikning hjá KLÍ 
og senda staðfestingu á greiðslu á motanefnd@kli.is eða koma með útprentun á kvittun í mótið

Keilusamband Íslands,KLÍ
Kennitala 460792-2159
0115-26-010520

Olíuburður:
WB Athens
 

Forkeppni

Allir keppendur leika 12 leiki, 
4 leiki í senn, bæði kyn spila í blönduðum hóp ef þátttaka leyfir. 
Skorið úr forkeppninni fylgir í undanúrslit og keppa 6 efstu karlar og 6 efstu konur.

 

Undanúrslit

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 2 efstu keppendurnir í úrslit.

 

Úrslit

Spiluð eru úrslit milli tveggja efstu manna/kvenna, sá/sú sem er efst að stigum fyrir úrslit

nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflis

viðureignir skal útkljá með því að báðir leikmenn kasta einu kasti og sá sem fellir fleiri keilur

sigrar. Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir. Ef jafnt er í síðasta leik

skal hver leikmaður kasta einu kasti. Ef enn er jafnt skal kasta öðru kasti og halda þannig

áfram þar til úrslit liggja fyrir. Sigurvegarinn fær titilinn Íslandsmeistari öldunga.

 

Ef ekki er næg þátttaka í flokki getur Mótanefnd fellt flokkinn niður.
Miðað er við lámark 9 í flokk til að hann sé ekki feldur niður, ef ekki næst lámark í báða flokka að þá er spilað í blönduðum flokk

Kim Thorsgard Jense varaforseti stjórnar ETBF látinn

Kim Thorsgaard Jensen er lengst til vinstri á myndinniÞær fréttir voru að berast að Kim Thorsgard Jense sem verið hefur varaforseti stjórnar ETBF sé látinn en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu. Kim var mörgum íslenskum keilurum vel kunnugur og hefur komið hingað til lands m.a. á Evrópumót landsmeistara sem haldið var hér haustið 2014.

Keilusambandið sendir fjölskyldu hans, félögum og vinum úr keilunni samúðarkveðjur sínar.

Kim er hér lengst til vinstri á mynd við setningarathöfn ECC 2014 í Keiluhöllinni Egilshöll.

Guðjón Gunnarsson og Ágústa K Jónsdóttir Íslandsmeistarar einstaklinga með

Guðjón Gunnarsson og Ágústa K Jónsdóttir bæði úr ÍA urðu í gærkvöldi Íslandsmeistarar einstaklinga 2019 með forgjöf en mótinu lauk með undanúrslitum og úrslitum í bæði karla og kvennaflokki. Í öðru sæti í karlaflokki varð Sigurður B Bjarkason ÍR. Í öðru sæti í kvennaflokki varð Geirdís H Kristjánsdóttir ÍR og í þriðju sætunum urðu þau Svavar Þór Einarsson ÍR og Jóna Gunnarsdóttir KFR.

Svavar og Geirdís efst eftir forkeppni Íslandsmóts einstaklinga með forgjöf

Guðlaugur Valgeirsson KFR og Bergþóra Pálsdóttir ÞórUm helgina var forkeppni á Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf leikin. Efst eftir forkeppnina eru ÍR ingarnir Svavar Þór Einarsson og Geirdís Hanna Kristjánsdóttir. Efstu 12 leika í milliriðli sem hefst annaðkvöld í Keiluhöllinni Egilshöll en úrslit ráðast svo á þriðjudaginn.

Í efstu þrem sætum karla eru:

1. Svavar Þór Einarsson ÍR
2. Jóhann Ársæll Atlason ÍA
3. Bharat Singh
 
Í efstu þrem sætum kvenna eru:
 
1. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir ÍR
2. Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR
3. Margrét Björg Jónsdóttir KFR
 
Heildarstaða allra eftir forkeppnina er þessi:

           
  Karlar   Skor Mism.í 12. sæti
1 Svavar Þór Einarsson 1829 190
2 Jóhann Ársæll Atlason 1743 104
3 Bharat Singh 1719 80
4 Guðjón Gunnarsson 1713 74
5 Jóel Eiður Einarsson 1697 58
6 Ásgeir Karl Gústafsson 1681 42
7 Tristan Máni Nínuson 1660 21
8 Mikael Aron Vilhelmsson 1657 18
9 Gunnar Þór Ásgeirsson 1648 9
10 Kristján Þórðarson 1648 9
11 Sigurður Björn Bjarkason 1642 3
12 Þórarinn Már Þorbjörnsson 1639 0
13 Brynjar Lúðvíksson 1630 -9
14 Björn Guðgeir Sigurðsson 1613 -26
15 Hinrik Óli Gunnarsson 1610 -29
16 Hlynur Atlason 1607 -32
17 Guðmundur Jóhann Kristófersson 1599 -40
18 Guðbjörn Joshua Guðjónsson 1592 -47
19 Hörður Finnur Magnússon 1576 -63
20 Haukur Guðmundsson 1571 -68
21 Guðmundur Sigurðsson 1530 -109
22 Birgir Guðlaugsson 1516 -123
23 Matthías Leó Sigurðsson 1503 -136

 

Heildarstaða kvenna var þessi:

           
  Konur   Skor Mism.í 12. sæti
1 Geirdís Hanna Kristjánsdóttir 1867 210
2 Linda Hrönn Magnúsdóttir 1779 122
3 Margrét Björg Jónsdóttir 1770 113
4 Jóna Gunnarsdóttir 1763 106
5 Ágústa Kristín Jónsdóttir 1758 101
6 Sigrún G. Guðmundsdóttir 1750 93
7 Eyrún Ingadóttir 1693 36
8 Sara Bryndís Sverrisdóttir 1687 30
9 Alexandra Kristjánsdóttir 1679 22
10 Laufey Sigurðardóttir 1672 15
11 Bára Ágústsdóttir 1664 7
12 Nanna Hólm Davíðsdóttir 1657 0
13 Guðný Gunnarsdóttir 1636 -21
14 Herdís Gunnarsdóttir 1632 -25
15 Helga Ósk Freysdóttir 1631 -26
16 Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir 1621 -36
17 Helga Sigurðardóttir 1604 -53
18 Bergþóra Pálsdóttir 1589 -68
19 Karen Hilmarsdóttir 1581 -76
20 Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir 1575 -82
21 Elva Rós Hannesdóttir 1569 -88
22 Anna Kristín Óladóttir 1562 -95
23 Sigurlaug Jakobsdóttir 1559 -98
24 Katrín Fjóla Bragadóttir 1549 -108
25 Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir 1420 -237
26 Málfríður Jóna Freysdóttir 1448 -209
27 Ragna Matthíasdóttir 1381 -276