KFR-Valkyrjur eru Íslandsmeistarar kvennaliða 2021

KFR-Valkyrjur urðu í kvöld Íslandsmeistarar kvenna í keilu 2021 eftir sigur á ÍR-Buff í lokaviðureign úrslitakeppninnar. Er þetta í 11. sinn sem Valkyrjur hampa titlinum oftast allra liða í sögu KLÍ. Sigruðu þær leiki kvöldsins með 10 stigum gegn 4 og samtals úrslitaviðureignina með 22,5 stigum gegn 19,5 en ÍR-Buff leiddu viðureignina fyrir kvöldið með 15,5 stig gegn 12,5.

Í undanúrslitum mótsins lögðu KFR-Valkyrjur lið ÍR-TT en lið ÍR-Buff lagði lið ÍR-Píurnar.

Þessi sömu lið og áttust við í úrslitum mótsins í ár mætast svo síðar í úrslitum Bikarkeppni KLÍ sem fer fram á næstu vikum.

Úrslit í 1.deild kvenna, dagur 2

11.maí fór fram  leikur 2 í úrslitum kvenna í 1.deild en það eru KFR-Valkyrjur og ÍR Buff sem að mætast að þessu sinni.

Fyrirkomulag keppninnar:
Fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er skv. útsláttarfyrirkomulagi, þ.e.
það lið sem endar í 1. sæti eftir deildarkeppni keppir við liðið í 4. sæti og lið 2 keppir við lið 3.
Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman og fær það lið sem endar ofar heimaleik fyrst.
Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir. Ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða.

Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman.
Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis.
Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða í kvennaflokki“.
Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þrem viðureignum ráða.

Skor úr leikjum kvöldsins:
ÍR-Buff – KFR-Valkyrjur
Leikur 1
3 – 1 fyrir ÍR-Buff
Ástrós 138                Dagný Edda  156
Elva Rós 168             Hafdís Pála 152
Guðrún Soffía 158    Katrín Fjóla  139
Samtals: 464 – 447 

Leikur 2
2,5 – 1,5 fyrir ÍR-Buff
Ástrós 204                Katrín Fjóla  137
Elva Rós 158             Dagný Edda  158
Guðrún Soffía 144    Hafdís Pála 192
Samtals: 506 – 487 

Leikur 3
1 – 3 fyrir KFR-Valkyrjum
Ástrós 177                Marika 214
Elva Rós 167             Katrín Fjóla  165
Guðrún Soffía 174    Dagný Edda  234
Samtals: 518 – 613 

Heildar skor liða eftir leik kvöldsins:
ÍR-Buff:  1488
KFR-Valkyrjur:  1547
ÍR-Buff 6,5.stig
KFR-Valkyrjur  7,5.stig

Staða eftir 2 leiki:
ÍR-Buff 15,5.stig
KFR-Valkyrjur 12,5 .stig

Næsti leikur fer fram á brautum 21 – 22 miðvikudaginn 12.maí kl 19:00

 

Úrslit í 1.deild kvenna

Í kvöld 10.maí fór fram fyrsti leikur í úrslitum kvenna í 1.deild en það eru KFR-Valkyrjur og ÍR Buff sem að mætast að þessu sinni.

Fyrirkomulag keppninnar:
Fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er skv. útsláttarfyrirkomulagi, þ.e.
það lið sem endar í 1. sæti eftir deildarkeppni keppir við liðið í 4. sæti og lið 2 keppir við lið 3.
Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman og fær það lið sem endar ofar heimaleik fyrst.
Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir. Ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða.

Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman.
Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis.
Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða í kvennaflokki“.
Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þrem viðureignum ráða.

Skor úr leikjum kvöldsins:
KFR-Valkyrjur – ÍR-Buff
Leikur 1
1 – 3 fyrir ÍR-Buff
Marika     159          Ástrós 212
Hafdís Pála 192       Elva Rós 147
Dagný Edda  190     Guðrún Soffía 193
Samtals: 541 – 552 

Leikur 2
3 – 1 fyrir KFR-Valkyrjum
Marika     155          Guðrún Soffía 185
Hafdís Pála 183       Ástrós 178
Dagný Edda  221    Elva Rós 170
Samtals: 559 – 533 

Leikur 3
1 – 3 fyrir ÍR-Buff
Marika     182           Elva Rós 222
Hafdís Pála 189        Guðrún Soffía 217
Dagný Edda  152      Ástrós 146
Samtals: 523 – 585
Heildar skor liða eftir leik kvöldsins:
KFR-Valkyrjur:  1623
ÍR-Buff:  1670

KFR-Valkyrjur  5.stig
ÍR-Buff 9.stig

Næsti leikur fer fram á brautum 21 – 22 þriðjudaginn 11.maí kl 19:00

ÍR-Fagmaður heldur sæti sínu í 2. deild karla

Í kvöld 10. maí fóru fram seinni leikirnir í umspili um laust sæti í 2. deild karla á næsta tímabili.
Voru það ÍR-Fagmaður (sem lenti í 9. sæti í 2. deild) og ÍR-T (sem að lenti í 2. sæti í 3. deild) sem spiluðu um lausa sætið.
Fyrri viðureignin var spiluð þriðjudaginn 4. maí og unnu ÍR-Fagmaður þá viðureign 13 – 1
Þurftu ÍR-Fagmenn því aðeins að fá 1,5 stig í kvöld til að halda sætinu sínu í deildinni.
Fyrsti leikurinn fór 3 – 1 fyrir ÍR-T í leik 2 duttu ÍR-Fagmenn í gang og unnu þann leik 3 – 1 og þar með búnir að vinna ná að halda sætinu sínu í 2. deild á næsta tímabili.

Skor úr leikjum kvöldsins:

Leikur 1
3 – 1 fyrir ÍR- T
Alfreð   107       Svavar  148
Hörður 168       Egill 131
Skúli   168        Þorsteinn 157
Samtals: 443 – 436 

Leikur 2
1 – 3 fyrir ÍR-Fagmenn
Bharat   188      Þorsteinn 194
Hörður 139       Svavar 147
Skúli   131        Unnar Óli 125
Samtals: 458 – 466 

Leikur 3
3 – 1 fyrir ÍR-T
Bharat   196       Egill 105
Hörður 146        Þorsteinn 101
Alfreð   107        Svavar 195
Samtals: 449 – 401

Heildar skor liða: 
ÍR-T: 1350
ÍR-Fagmaður: 1303
ÍR-T 9.stig
ÍR-Fagmaður 5.stig

 

 

Þór í 1. deild karla eftir sigur í umspili

Þór tryggði sér sæti í 1. deild næsta tímabil eftir að hafa lagt lið KR-A í umspilsleikjum um laust sæti í 1. deild karla á næsta tímabili. Lið Þórs er því komið aftur í deild þeirra bestu í keilunni eftir nokkurra ára dvöl í 2. deild karla. Þar með verða þrjú lið með heimavöll á Akranesi næsta tímabil í 1. deildinni en fyrir eru lið ÍA sem er í úrslitum deildarinnar í ár og ÍA-W sem sigraði 2. deildina í vetur.

Þór hefur tilkynnt bæði lið sín áfram næsta tímabil sem er mikið ánægjuefni en það er ekki hægt að taka því sjálfgefnu að aðilar leggi á sig að ferðast frá Akureyri suður á Skagann til að stunda íþrótt. Þessir einstaklingar innan keilunnar hjá Þór eiga mikið hrós skilið fyrir óbilandi áhuga á íþróttinni okkar og fórnfýsi.

Það væri óskandi ef aðalstjórn Þórs og bæjaryfirvöld á Akureyri legðu saman hönd á plóg við að koma upp aðstöðu fyrir keiluna í heimabæ fyrir sitt fólk. Líta má til þess sem gert hefur verið á Akranesi þar sem bæjaryfirvöld og ÍA tóku hönum saman með þeim sem starfa innan keilunnar með mjög góðum árangri. Nú sem fyrr skorar keilusamfélagið á Íslandi á aðila fyrir norðan að standa með sínu fólki því í þessu vinna allir.

Umspil um sæti í 1. deild karla

Um helgina 8 og 9.maí fór fram umspili um laust sæti í 1.deild karla á komandi tímabili
Voru það KR-A sem endaði í 9.sæti í 1.deild og Þór sem að endaði í 2.sæti í 2.deild
Umspilsleikir fara þannig fram að lið mætast heima og að heiman og þarf lið að ná samtals 14,5 stigum úr þeim viðureignum til að tryggja sér sætið.
Er þessi breyting á reglugerð móts gerð bara á þessu tímabili vegna Covid aðstæðna og færri leikja í deildarkeppni en almennt á að vera.

Skor úr leikjunum:
08.05.2021 spilað í Egilshöll
Leikur 1

3 – 1 fyrir KR-A
Matthías 180      Guðmundur 197
Magnús R 200    Ólafur Þór 173
Björn K   187       Rúnar Ingi 171
Samtals: 567 – 541

Leikur 2
1 – 3 fyrir Þór
Matthías 192      Rúnar Ingi 201
Magnús R 224    Guðmundur 216
Björn K   158       Ólafur Þór 200
Samtals: 574 – 617

Leikur 3
1 – 3 fyrir Þór
Matthías 168      Ólafur Þór 188
Magnús R 166    Rúnar Ingi 150
Björn K   172       Guðmundur 210
Samtals: 506 – 548

Heildar skor liða: 08.05.2021
KR-A: 1647
Þór:    1706
KR-A  5.stig
Þór     9.stig

09.05.2021 spilað á Akranesi
Leikur 1

3 – 1 fyrir Þór
Guðmundur 188   Matthías   142
Ólafur Þór 193      Magnús R  178
Rúnar Ingi 135      Björn K  152
Samtals: 516 – 472

Leikur 2
3 – 1 fyrir KR-A
Guðmundur 183   Björn K  191
Ólafur Þór 187      Matthías  162
Rúnar Ingi 146      Magnús R  178
Samtals: 516 – 545

Leikur 3
3 – 1 fyrir Þór
Guðmundur 165   Magnús R  135
Ólafur Þór 213      Björn K  147
Rúnar Ingi  140     Matthías  191
Samtals: 518 – 473

Heildar skor liða: 09.05.2021
Þór:    1550
KR-A: 1490
Þór     9.stig
KR-A  5.stig
Stig úr báðum viðureignum
Þór     18.stig
KR-A  10.stig

Undaúrslit kvenna 2021

Dagana 2 og 3.maí 2021 fóru fram undanúrslit í 1.deild kvenna
Þar voru það KFR-Valkyrjur sem að lentu í 1.sæti og ÍR-TT sem að lentu í 4.sæti sem að mættust ásamt
ÍR-Buff sem að lenti í 2.sæti og ÍR-Píurnar sem að lentu í 3.sæti
Spilað er heima og heiman og það lið sem að nær fyrr 14,5 stigum kemst inn í úrslit sem að spiluð eru 10 – 12 maí
Verður það ÍR- Buff og KFR-Valkyrjur sem að spila til úrslita

Skor úr leikjum:
Leikir 2.maí 2021
KFR-Valkyrjur – ÍR-TT
Leikur 1
4 – 0 fyrir KFR-Valkyrjum
Hafdís Pála 140         Linda Hrönn 134
Katrín Fjóla  140       Jónína 115
Marika     158           Blind skor  0
Samtals: 438 – 249 

Leikur 2
3 – 1 fyrir KFR-Valkyrjum
Hafdís Pála 156         Blind skor 0
Katrín Fjóla  147       Linda Hrönn 169
Marika     215           Jónína   135
Samtals: 518 – 304 

Leikur 3
4 – 0 fyrir KFR-Valkyrjum
Hafdís Pála 169         Jónína 110
Katrín Fjóla  167       Blindur 0
Marika     201           Linda Hrönn  157
Samtals: 537 – 267 
Heildar skor liða eftir fyrri leik:
ÍR-TT: 820
KFR-Valkyrjur: 1493
ÍR-TT 0.stig
KFR-Valkyrjur 13 – 1

ÍR-Buff – ÍR-Píurnar
Leikur 1
3 – 1 fyrir ÍR-Píurnar
Ástrós 171                Guðbjörg Harpa 131
Elva Rós  153            Alexandra 186
Guðrún Soffía 144    Hafdís Eva 155
Samtals: 468 – 472 

Leikur 2
3 – 1 fyrir ÍR-Buff
Ástrós 171                Hafdís Eva 160
Elva Rós  215            Guðbjörg Harpa 160
Guðrún Soffía 139    Alexandra 173
Samtals: 525 – 493 

Leikur 3
3 – 1 fyrir ÍR-Buff
Ástrós 219                Alexandra 156
Elva Rós  166            Hafdís Eva 162
Guðrún Soffía 157    Guðbjörg Harpa 162
Samtals: 542 – 480 
Heildar skor liða eftir fyrri leik:
ÍR-Buff: 1535
ÍR-Píurnar: 1445
ÍR-Buff 9.stig
ÍR-Píurnar: 5.stig

Leikir 3.maí 2021
ÍR-TT – KFR-Valkyrjur
Leikur 1
1 – 3 fyrir KFR-Valkyrjum
Sigríður 178             Dagný 189
Jónína  149              Marika 223
Linda Hrönn 214      Hafdís Pála 185
Samtals: 541 – 597
KFR-Valkyrjur vinna undanúrslitin 17 – 1

ÍR-Píurnar – ÍR-Buff

Leikur 1
2 – 2
Guðbjörg Harpa 168      Ástrós 175
Alexandra 162                Elva Rós  141
Hafdís Eva 157               Guðrún Soffía 166
Samtals: 487 – 482 

Leikur 2
3 – 1 fyrir ÍR-Buff
Guðbjörg Harpa 101       Guðrún Soffía 146
Alexandra 154                 Ástrós 183
Hafdís Eva 153                Elva Rós  126
Samtals: 408 – 455 

Leikur 3
3 – 1 fyrir ÍR-Buff
Guðbjörg Harpa 144      Elva Rós  169
Alexandra 173                Guðrún Soffía 156
Hafdís Eva 174               Ástrós 202
Samtals: 491 – 524 
Heildar skor liða eftir seinni leik:
ÍR-Buff: 1464
ÍR-Píurnar: 1386
ÍR-Buff 10.stig
ÍR-Píurnar: 4.stig
ÍR-Buff vinnur vinna undanúrslitin 19 – 9

KFR-Valkyrju og ÍR-Buff mætast næst mánudaginn 10.maí 2021 kl 19:00 á brautum 19-20

 

 

 

 

 

ÍR-BK í 1.deild kvenna 2021-2022

Dagana 2 og 3 maí fór fram umspilsleikur um laust sæti í 1.deild kvenna
Voru það KFR-Ásynjur sem að lentu í 7.sæti í 1.deild og ÍR-BK sem að lenti í 2.sæti í 2.deild kvenna

Skor úr leikjunum 2.maí 2021
Leikur 1
4 – 0 fyrir ÍR-BK
Málfríður 146         Nanna 182
Sóley  148              Herdís 160
Helga Ósk  149      Halldóra  179
Samtals: 443 – 521 

Leikur 2
2 – 2 
Málfríður 181         Halldóra 168
Sóley  163              Nanna 212
Helga Ósk  169      Herdís  146
Samtals: 513 – 526 

Leikur 3
3 – 1 fyrir ÍR-BK
Málfríður 149         Herdís 165
Sóley  163              Halldóra 134
Helga Ósk  178      Nanna  225
Samtals: 490 – 524 
Heildar skor liða eftir fyrri leik:
ÍR-BK: 1571
KFR-Ásynjur: 1446
ÍR-BK 11.stig
KFR-Ásynjur 3

Skor úr leikjunum 3.maí 2021
Leikur 1
3 – 1 fyrir KFR-Ásynjum
Herdís  86        Helga 205
Geirdís  114     Málfríður 107
Bára  118         Sóley  156
Samtals: 318 – 468 

Leikur 2
3 – 1 fyrir ÍR-BK
Nanna  189        Sóley 124
Geirdís  137       Helga 144
Bára  165           Málfríður  128
Samtals: 491 – 396

Samtals stig frá báðum dögunum:
ÍR-BK 15.stig
KFR-Ásynjur 7
 

Umspil um sæti í 2.deild

Í kvöld 4.maí fór fram fyrri leikurin í umspili um laust sæti í 2.deild á komandi tímabili
Voru það ÍR-Fagmaður sem endaði í 9.sæti í 2.deild og ÍR-T sem að endaði í 2.sæti í 3.deild
Umspilsleikir fara þannig fram að lið mætast heima og að heiman og þarf lið að ná samtals 14,5 stigum úr þeim viðureignum til að tryggja sér sætið.
Er þessi breyting á reglugerð móts gerð bara á þessu tímabili vegna Covid aðstæðna og færri leikja í deildarkeppni en almennt á að vera.

Skor úr leikjunum:
Leikur 1
4 – 0 fyrir ÍR-Fagmenn
Egill 191         Alli 171
Svavar 152     Hörður 121
Steini   178    Benni  160
Samtals: 521 – 452 

Leikur 2
4 – 0 fyrir ÍR-Fagmenn
Egill 203       Benni 156
Svavar 139   Alli 131
Steini   166   Skúli 159
Samtals: 508 – 446 

Leikur 3
3 – 1 fyrir ÍR-Fagmenn
Egill 182       Skúli 112
Svavar 142   Benni 138
Steini   135   Hörður 152
Samtals: 459 – 402
Heildar skor liða:
ÍR-Fagmaður: 1488
ÍR-T: 1300
ÍR-Fagmaður 13.stig
ÍR-T 1.stig

Næsti leikur verður svo leikinn mánudaginn 10.maí kl 19:00 og þarf ÍR-Fagmaður að fá 1,5 stig í viðbót til að halda sæti sínu í 2.deild á næsta tímabili

Úrslitakeppni 1. deildar karla frestað – Kvennadeildir halda áfram

Mótanefnd og stjórn KLÍ hafa frestað bæði bikarúrslitum karla og úrslitakeppni karla eftir að leikmaður í ÍA greinist smitaður af Covid-19. Eins og gerist við svona smit þá fara nokkrir í sóttkví á meðan verið er að ná utan um stöðuna og af þeim sökum er lið ÍA óleikhæft vegna málsins. Þar sem ÍA átti leik við ÍR-PLS í úrslitum bikars varð að fresta þeirri viðureign. KFR-Valkyrjur og ÍR-Buff sem leika áttu til úrslita um kvennabikarinn óskuðu eftir því að þeirra leik yrði einnig ferstað og þá leikið á sama tíma og karlarnir. Var orðið við þeirri beiðni. Tilkynning um hvenær þeir leikir fara fram kemur síðar.

Þar sem ÍA spilar síðan í úrslitakeppni 1. deildar karla hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta úrslitakeppninni um nokkra daga þar til óhætt og eðlilegt getur talist að halda þeirri keppni áfram.

Úrslit í 1. deild kvenna fara þó fram og hefjast þau í kvöld í Keiluhöllinni Egilshöll.

Nánari tilkynning um hvenær úrslitakeppni karla fer fram verður send út von bráðar.