Brunswick Aalborg International 2007

Brunswick Aalborg International 2007 verður haldið í keilusalnum Lövvang Bowling Center í Álaborg í Danmörku um hvítasunnuna, eða nánar tiltekið dagana 21. – 27. maí. 

Mótshaldarar hafa áhyggjur af minni þátttöku þar sem landsliðseinvaldur Svía hefur skipulagt æfingabúðir með landsliðum á sama tíma, en leggja jafnframt áherslu á að á sama tíma aukist líkur annarra keppenda á því að vinna til verðlauna í mótinu.

  • Fréttatilkynning 1
  • Fréttatilkynning 2
  • Skipting ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ

    Eins og áður hefur fram komið var gerður samningur við menntamálaráðherra um framlag til sérsambandanna til ársins 2009. Í ár er framlagið 40 milljónir króna, og hefur hækkað um 10 milljónir frá árinu 2006, á árinu 2008 verður framlagið 60 milljónir króna og á árinu 2009 70 milljónir króna. Keilusamband Íslands fékk að þessu sinni úthlutað 1.150.000 kr fyrir árið 2007, en hlutur KLÍ var 800.000 kr. fyrir árið 2006. Sjá nánar á heimasíðu ÍSÍFramkvæmdastjórn ÍSÍ fól forseta, varaforseta, gjaldkera og framkvæmdastjóra að koma með tillögur á skiptingu ríkisframlags 2007.  Héldu þeir fundi með öllum sérsamböndum ÍSÍ til þess að setja sig vel inn í starf hvers sérsambands fyrir sig, auk þess að fá fram umræður um stöðu viðkomandi sérsambands, áhersluatriði o.s.frv. Ofangreindir aðilar lögðu fram tillögu til framkvæmdastjórnar ÍSÍ að skiptingu ríkisframlagsins fyrir árið 2007 og samþykkti framkvæmdastjórn ÍSÍ þá tillögu á fundi sínum í gær. Við skiptingu fjársins var fyrst og fremst horft til þess að auka við styrki þeirra sem minnst hafa fengið, þannig að “gólfið” í styrkveitingunum hækki. Þetta er í samræmi við þau áhersluatriði sem ÍSÍ og forystusveit sérsambanda settu sér í upphafi um að grundvallaráhersluatriði hreyfingarinnar væri að hvert sérsamband fengi til framtíðar framlag til að standa undir einum starfsmanni.

    Catalonian Open – Troufeu Galasa 2007

    Á undanförnum misserum hefur það aukist til muna að íslenskir keilarar leiti út fyrir landsteinana og taki þátt í mótum erlendis og öðlist við það mikilvæga reynslu. Halldór Ragnar Halldórsson ÍR tók um síðustu helgi þátt í V Catalonian Open – Troufeu Galasa 2007 sem er 4. mótið á Evrópsku mótaröðinni í ár. Halldór Ragnar spilaði 1.126 og endaði í 122. sæti af 147 keppendum.

    Sigurvegari á mótinu var Svíinn Martin Larsen sem vann Rodrigo Hermes frá Brasilíu í úrslitaleiknum. Heimasíða mótsins

    Upplýsingar um mót á Evrópsku mótaröðinni og alþjóðleg mót á vegum álfu- og heimssambanda er að finna á heimasíðu Evrópska keilusambandsins

    Utandeild KLÍ 2006 – 2007

    Keppni í Riðli 1 í Utandeildinni lauk fimmtudaginn 1. mars. Baráttan var hörð fram á síðustu stundu og að lokum voru það lið Eggerts og Flytjanda sem tryggðu sér tvö efstu sætin. Keppni í Riðli 2 lauk í gær, fimmtudag 8. mars og það er því orðið ljóst að lið Landsbankans og Keiluskutlur SPRON mæta Eggerti og Flytjanda í úrslitunum sem fara fram í apríl. Sjá allt um mótið á keila.is

    100 ára afmæli ÍR

    Helgina 10.-11. mars n.k. er stór helgi hjá ÍR-ingum, en þá verður félagið 100 ára. Margt verður gert sér til skemmtunnar og má nefna fjölskylduhátíð í Íþróttahúsinu í Seljaskóla og hátíð fyrir 18 ára og eldri í Austurbergi um kvöldið. Þetta verður laugardaginn 10. mars. Á sunnudeginum eða þann 11. mars á afmælisdeginum verður opið hús í ÍR-heimilinu þar sem öllum er boðið til að þiggja kaffi og léttar veitingar. Einnig verða afhentar viðurkenningar o.fl. Dagskráin

    Íslandsmeistarar einstaklinga 2007

    Sigfríður Sigurðardóttir KFR og Magnús Magnússon KR eru Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu árið 2007.

    Er þetta fjórða árið í röð sem Sigfríður vinnur þennan titil, en Magnús hefur fjórum sinnum unnið þennan titil, árin 2001 og 2003 – 2005. Sigfríður var með örugga forystu í keppninni frá upphafi, en Magnús náði efsta sætinu í síðasta leik í undanúrslitnum á móti Hafþóri Harðarsyni KFR, sem hann mætti síðan í úrslitaleiknum.

    Karen Rut Sigurðardóttir úr ÍR spilaði best og fékk flest stig í undanúrslitunum í kvennaflokki þegar hún spilaði 1.044 og fékk 100 aukastig, og vann sig með því upp úr 5. sæti í 2. sætið, og endaði því 11 pinnum hærri en Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR sem varð í 3. sæti. Í úrslitunum má segja að það hafi verið reynsla Sigfríðar sem tryggði henni titilinn, en hún vann Karenu með 202 og 279 leikjum eða samtals 481 á móti 152 og 216 leikjum Karenar eða samtals 368. Meðaltal Sigfríðar í mótinu var 208,7, meðaltal Karenar Rutar 191,78 og meðaltal Mögnu Ýrar 192,39.

     

    Magnús sigraði Hafþór í úrslitunum með 215 og 244 eða samtals 459 á móti 170 og 187 leikjum hjá Hafþór eða samtals 357. Í 3. sæti varð Steinþór Geirdal ÍR sem var 104 pinnum frá því að komast inn í úrslitin. Meðaltal Magnúsar í mótinu var 232,72, meðaltal Hafþórs 233,12 og meðaltal Steinþórs 228,96. 

    Andrés Páll Júlíusson KR spilaði hins vegar best allra keppenda í karlaflokki í undanúrslitunum og setti Íslandsmet í 7 leikjum þegar hann spilaði 1.697 og vann sig með þeirri spilamennsku upp úr 8. sæti í það 4. Frábær spilamennska hjá Andrési, en leikir hans voru 231, 237, 236, 267, 227, 224 og 278. Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR bætti eigið Íslandsmet í 1. flokki stúlkna 17 – 18 ára þegar hún spilaði 682 í 3. leikjum, eða 257, 192 og 233. Sigfríður, Árni Geir og Magnús spiluðu hins vegar hæstu leiki dagsins, Sigfríður og Árni Geir 279 og Magnús 280 og 290.

  • Leikir í karlaflokki
  • Úrslit í karlaflokki

    Óskum við vinningshöfum og methöfum til hamingju með góðan árangur og þökkum Atlantsolíu, sem gaf öll verðlaun í mótinu, fyrir stuðninginn.