Sjóvá mótið – 16 manna úrslitum lokið

Í dag, sunnudaginn 25. mars, lauk 16 manna úrslitum karla í Sjóvá mótinu og einnig fóru fram tveir leikir í 8 manna úrslitum kvenna og einn leikur úr 8 manna úrslitum karla. Núverandi bikarmeistarar einstaklinga þau Dagný Edda Þórisdóttir og Hafþór Harðarson sigruðu bæði í sínum leikjum í dag og eiga því ennþá möguleika á að verja titla sína.

Úrslit leikja í 16 manna úrslitum voru eftirfarandi:
Arnar Sæbergsson 576 – Andri Már Ólafsson 613
Hafþór Harðarson 719 – Ásgrímur Helgi Einarsson 570
Bjarni Páll Jakobsson 536 – Magnús Reynisson 712
Halldór Ásgeirsson 606 – Jón Ingi Ragnarsson 684

Úrslit leikja í 8 manna úrslitum voru eftirfarandi:
Karen Rut Sigurðardóttir 541 – Sirrý Hrönn Haraldsdóttir 631
Dagný Edda Þórisdóttir 562 – Sigríður Klemensdóttir 449
Stefán Claessen 625 – Halldór Ragnar Halldórsson 588

8 manna úrslitum kvenna lýkur á miðvikudaginn 28. mars, en 8 manna úrslit karla fara fram laugardaginn 31. mars n.k. Undanúrslit og úrslit í báðum flokkum fara síðan fram sunnudaginn 1. apríl.

Í 8 manna úrslitum er eftirfarandi leikjum ólokið:
Helga Sigurðardóttir – Linda Hrönn Magnúsdóttir
Sigurlaug Jakobsdóttir – Sigfríður Sigurðardóttir
Jón Ingi Ragnarsson – Hafþór Harðarson
Magnús Reynisson – Valgeir Guðbjartsson
Árni Geir Ómarsson – Andri Már Ólafsson

 

Frábær spilamennska í Meistarkeppni ungmenna

Í gær, laugardaginn 24. mars, fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð fimmta og jafnframt síðasta umferð í Meistarakeppni ungmenna þennan veturinn.  Spilamennskan var mjög góð, og í fimmta leik lék Hafþór Harðarson úr KFR sinn annan 300 leik á ferlinum og setti þar með Íslandsmet í 5 leikjum í karlaflokki, 1.273 eða 254,6 að meðaltali.  Hafþór bætti einnig Íslandsmetið í 6 leikjum, en hann endaði með 1.511 eða 251,8 að meðaltali.  Þess má geta að í byrjun mánaðarins bætti Hafþór þessi met einnig í forkeppni Íslandsmóts einstaklinga.

Fleiri áttu mjög góðan dag. Róbert Dan Sigurðsson úr ÍR var með 1.370 í 6 leikjum, Stefán Claessen úr ÍR 1.315, Andri Már Ólafsson úr KFR 1.275 og Hafliði Örn Ólafsson úr ÍR með 1.268.

Sjá niðurstöður úr mótinu

Félagakeppni KLÍ – 4. umferð

Fjórða og síðasta umferð Félagakeppni KLÍ fór fram í Keiluhöllinni fimmtudaginn 22 mars. Lið Keilufélags Reykjavíkur KFR bar sigur úr býtum þetta árið með 95,5 stig, eftir harða keppni við Knattspyrnufélag Reykjavíkur KR sem endaði í öðru sæti með 90 stig. Sigurvegararnir frá því í fyrra, Íþróttafélag Reykjavíkur ÍR hafnaði í því þriðja með 79,5 stig, Keilufélagið Keila KFK varð í fjórða sæti með 55 stig og Keilufélag Akraness KFA varð í fimmta sæti með 40 stig. Sjá nánar . Magnús Magnússon KR spilaði best allra keppenda í lokaumferðinni og spilaði m.a. 299 leik.

Sjóvá mótið – 8 manna úrslit

Í kvöld, þriðjudaginn 20. mars var dregið í 8 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá mótinu. 8 manna úrslit kvenna fara fram sunnudag 25. mars, en 8 manna úrslit karla fara fram laugardaginn 31. mars n.k. Undanúrslit og úrslit fara síðan fram sunnudaginn 1. apríl. Sjá tímasetningar leikja

Í 8 manna úrslitum mætast í kvennaflokki:

  • Helga Sigurðardóttir – Linda Hrönn Magnúsdóttir
  • Sigurlaug Jakobsdóttir – Sigfríður Sigurðardóttir
  • Karen Rut Sigurðardóttir – Sirrý Hrönn Haraldsdóttir
  • Dagný Edda Þórisdóttir – Sigríður Klemensdóttir

Í karlaflokki eru eftirfarandi leikir í 8 manna úrslitum:

  • Jón Ingi Ragnarsson – Hafþór Harðarson
  • Magnús Reynisson – Valgeir Guðbjartsson
  • Stefán Claessen – Halldór Ragnar Halldórsson
  • Árni Geir Ómarsson – Andri Már Ólafsson

Þeir leikir sem eftir eru í 16 manna úrslitum karla fara fram sunnudaginn 25. mars. Úrslit leikja úr 16 manna úrslitum

Keppendur eru vinsamlega beðnir um að kynna sér tímasetningar og staðfesta mætingu sem allra fyrst til [email protected].

Deildarbikar liða 5. umferð

Fimmta umferð Deildarbikars liða fer fram í Keiluhöllinni í kvöld, þriðjudaginn 20. mars Sjá nánar 

Staðan er þannig í A-riðli að ÍR-PLS hefur tekið örugga forystu með 30 stig og 199,63 að meðaltali, ÍR-A er í 2. sæti með 22 stig og 190,25 í meðaltal, en „stelpurnar“ í ÍR-TT koma síðan í 3. sæti með 12 stig og 181,5 í meðaltal.

Í B-riðli er keppnin jafnari, en ÍR-KLS er í efsta sæti með 24 stig hæsta meðaltalið 204,47, KR-B er í 2. sæti með 22 stig og 195,84 að meðaltali og ÍR-L kemur síðan í 3. sæti með 16 stig og 182 í meðaltal.

Bikarkeppni KLÍ – Undanúrslit

Undanúrslit Bikarkeppni KLÍ fóru fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keilusalnum á Akranesi fimmtudaginn 15. mars.

KFR-Valkyrjur og ÍR-TT sigruðu í kvennaflokki og KFR ÍR-KLS og ÍR-PLS í karlaflokki. Þessi lið mætast því í úrslitum Bikarkeppni KLÍ 2007.

KFR-Valkyrjur sóttu KFA-ÍA heim á Skagann og sigruðu þar örugglega 3 – 0. Í Keiluhöllinni fóru fram þrír leikir og fóru þeir allir í fjóra leiki og einn í framlengingu.

Á brautum 1 og 2 áttust við ÍR-KLS og KR-A og  höfðu flestir búist við sigri KR-A miðað við spilamennskuna undanfarið. Viðureignin var hins vegar æsispennandi allan tímann og lauk með sigri ÍR-KLS í bráðbana. ÍR-KLS vann fyrstu tvo leikina báða með 9 pinnum, 790 – 779 og 811 – 802. KR-A vann síðan þriðja leikinn 756 – 737 og fjórða leikinn með 7 pinnum 718 – 711. Samtals var ÍR-KLS með 3049 og KR-A með 3055. Í framlengingunni vann ÍR-KLS síðan 143 – 129 og munaði þar mestu um að Árni Geir fékk 59 pinna af 60 mögulegum. Arnar Sæbergsson ÍR-KLS spilaði best allra á settinu með 239 leik og 901 seríu, en hjá KR-A spilaði Andrés Páll 234 og Björn G. Sigurðsson var með hæstu seríu 800.

 Í leik ÍR-PLS og ÍR-A leit allt út fyrir auðveldan sigur ÍR-PLS sem fóru á kostum í fyrstu tveimur leikjunum 870 – 775 og 904 – 723, en þá var eins og liðsmenn ÍR-A vöknuðu til lífsins, unnu þriðja leikinn 749 – 734, en urðu síðan að láta í minni pokann í fjórða leiknum sem ÍR-PLS vann 738 – 694. Sería ÍR-PLS var 3246 en ÍR-A 2941. Róbert Dan Sigursson ÍR-PLS spilaði best allra á settinu með 279 leik og 898 seríu. Hjá ÍR-A var Kristján Þórðarson með hæsta leik liðsins 221, en Matthías Helgi Júlíusson með hæstu seríu 743.

Leikur ÍR-TT og KFR-Afturganganna var spennandi frá upphafi til enda. KFR-Afturgöngurnar byrjuðu með látum og voru með forystu allan fyrsta leikinn. ÍR-TT áttu þó möguleika á að vinna í 10 ramma, en svo fór að KFR-Afturgöngurnar unnu leikinn með 1 pinna 697 – 696. ÍR-TT vann síðan næstu þrjá leiki 753 – 654, 677 – 664 og 732 – 705 og viðureignina 3 – 1. Sería ÍR-TT var 2858 en KFR-Afturgöngurnar voru með 2720. Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum spilaði best allra á settinu með 213 leik og 740 seríu, en hjá ÍR-TT var Linda Hrönn Magnúsdóttir með hæsta leik 213 og Sigríður Klemensdóttir með hæstu seríu 730.

Íþróttavæðum Ísland

Þriðjudaginn 13. mars s.l. var haldin kynning á skýrslu starfshóps sem menntamálaráðherra skipaði til að fara yfir málefni íþrótta með það að markmiði að móta íþróttastefnu Íslands. Skýrslan, sem ber heitið „Íþróttavæðum Ísland“ var fyrst kynnt fyrir um ári síðan en nú er fyrirhugað að kynna hana á landsvísu og var þetta fyrsti fundurinn í þeirri kynningarferð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, opnaði fundinn og tók virkan þátt í umræðum en Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður og formaður starfshópsins, stýrði fundinum. Sjá skýrsluna