Íslandsmót félaga 4. og síðasta umferð

Fjórða og síðasta umferð Íslandsmóts félaga fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð fimmtudaginn 2. maí og hefst keppni kl. 19:00.
 

Staðan er þannig eftir 3. umferð að ÍA er í efsta sætinu í Opna flokknum, með 134 stig. Röð næstu liða er einnig óbreytt þannig að KFR-Konur eru í 2. sæti með 122,5 og ÍR-Konur eru í 3. sæti með 118,5 stig. ÍR-Karlar eru í 4. sæti með 114,5 stig, en KFR-Karlar eru í 5. sæti með 106,5 stig. KFR-Konur eru í efsta sæti í kvennaflokki með 42 stig, ÍR-konur eru í 2. sæti með 37 stig og ÍFH-Konur eru í 3. sæti með 3 stig.  Olíuburður í Íslandsmóti félaga er 40 fet Vargen. Sjá nánar félagakeppni

Árshátíð KLÍ 4. maí 2013

Árshátíð KLÍ 2013 verður haldin í Rúbín Öskjuhlíð laugardaginn 4. maí n.k.

Boðið verður upp á fordrykk og glæsilegt hlaðborð. Afhent verða verðlaun fyrir veturinn, happdrætti með fjölda góðra vinninga, skemmtiatriði og ball. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 19:45.

Miðaverð kr. 6.000. Miðapantanir eru hjá Einari Má [email protected] og í síma 869 0616, eða öðrum landsliðsmönnum.

Árshátíðin er í umsjón og til styrktar karlalandsliðinu sem keppir á heimsmeistaramótinu í keilu í Las Vegas í ágúst.

Missið ekki af tækifærinu til að enda keppnistímabilið og fagna með félögunum.

Meðal vinninga í happdrættinu er:
Keilukúlur
2ja kúlu keilutaska
Leikhúsmiðar fyrir 2 í Borgarleikhúsið
Golf sólgleraugu og golfkúlur
Snyrtivörur
Gisting á ION Iceland Nesjavöllum
Aðgöngumiði á Typpasafnið
3stk. Pure Komachi 2 Hnífar
Gjafabréf á andlitsmeðferð
Árskort í Bláfjöll
Gjafabréf frá Worldclass
Gjafabréf á tertu fyrir 16 manns
Pizzur
Geisladiskar og DVD myndir
Úti kertalugt
Kertastjakar
Baðvörur frá Bed, Bath and bodyworks
Matur á Saffran
Matur á TGI
Gisting í Sumarbústað
Gisting á Hótel Holt með morgunverði og freyðivíni
Dinner á Hótel Holti
Flugtími hjá Keili
Gisting á Fosshóteli
Ostakörfur
Matur á Kaffi Paris

Staðan í úrslitakeppni 2. deildar karla

ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk keppa nú í úrslitum 2. deildar karla um tvö laus sæti í 1. deild að ári og fer úrslitakeppnin fram dagana 19. – 29. apríl, sjá nánar í dagskrá og dagskrá úrslitakeppni 2. deildar karla.

Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Úrslit leikja í úrslitakeppni 2. deildar karla eru eftirfarandi:
ÍR-Blikk vann Þór 17,5  – 2,5
KR-B vann Þór 12 – 8
ÍR-Broskarlar og Þór skildu jafnir 10 – 10
KFR-B og ÍR-Blikk skildu jafnir 10 – 10
ÍR-Blikk vann ÍR-Broskarla 7 – 13

Staðan er því eftirfarandi
 Eftir 3 leiki ÍR-Blikk 40,5 stig
 Eftir 2 leiki KR-B 22 stig
 Eftir 3 leiki Þór 20,5 stig
 Eftir 2 leiki ÍR-Broskarlar 17 stig

Mótanefnd KLÍ hefur tilkynnt dagskrá og brautaskipan í úrslitakeppni 2. deildar karla á Íslandsmóti liða sem fer fram dagana 19. – 29. apríl n.k. Til úrslita keppa tvö efstu liðin úr hvorum riðli, ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk. Spiluð er tvöföld umferð, heima og heiman, með sömu stigagjöf og í forkeppninni og tvö efstu liðin keppa í 1. deild að ári. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

 

Undanúrslit 1. deildar karla og kvenna – Fyrri leikur

Undanúrslit 1. deildar karla og kvenna á Íslandsmóti liða fara fram mánudaginn 22., þriðjudaginn 23. og miðvikudaginn 24. apríl. Í undanúrslitunum mætast ÍR-KLS og ÍA-W, ÍR-PLS og ÍA í 1. deild karla og KFR-Valkyrjur og ÍR-Buff, ÍR-TT og KFR-Afturgöngurnar í 1. deild kvenna. Sjá brautaskipan í undanúrslitum

 

Fyrri leikur undanúrslitanna í báðum deildum fór fram í Egilshöllinni í kvöld:
ÍR-KLS vann ÍA-W mjög sannfærandi 18 – 2 og nægir því að vinna 2,5 stig í útileiknum á Skaganum annað kvöld.
ÍR-PLS vann ÍA 14 – 6 og þurfa því að vinna 6,5 stig í útileiknum á Skaganum á miðvikudaginn.
KFR-Valkyrjur áttu stórleik í kvöld og unnu ÍR-Buff 15 – 5 og nægir því að vinna 5,5 stig í Egilshöllinni annað kvöld.
ÍR-TT mátti sætta sig við 7 – 13 tap á heimavelli á móti KFR-Afturgöngunum. KFR-Afturgöngurnar eiga heimaleik í Öskjuhlíðinni annað kvöld og þurfa að vinna 7,5 stig til að tryggja sér sigur í viðureigninni.

Stöðuna í úrslitakeppninni má sjá hér

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna

Undanúrslit 1. deildar karla og kvenna á Íslandsmóti liða fara fram mánudaginn 22. apríl og þriðjudaginn 23. apríl. Í undanúrslitunum mætast ÍR-KLS og ÍA-W, ÍR-PLS og ÍA í 1. deild karla og KFR-Valkyrjur og ÍR-Buff, ÍR-TT og KFR-Afturgöngurnar í 1. deild kvenna.

Mánudaginn 22. apríl fara allir leikirnir fram í Egilshöllinni og hefjast kl. 19:00:
ÍR-KLS – ÍA-W, brautir 3 – 4, olíuburður Björnen 42 fet
ÍR-PLS – ÍA, brautir 5 – 6, olíuburður Raven 38 fet
KFR-Valkyrjur – ÍR-Buff, brautir 7 – 8, olíuburður Björnen 42 fet
ÍR-TT – KFR-Afturgöngurnar, brautir 9 – 10, olíuburður Björnen 42 fet

Sjá brautaskipan í undanúrslitum

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer þannig fram að fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi, það er að liðið sem er í efsta sæti deildarinnar keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær hærra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar 2 viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það liðið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þremur viðureignum ráða. Sjá nánar í reglugerð um Íslandsmót liða

AMF World Cup 2013

Guðný Gunnarsdóttir ÍR og Arnar Sæbergsson ÍR áunnu sér í dag rétt til þátttöku á 49. QubicaAMF Bowling World Cup heimsbikarmóti einstaklinga sem fram fer í Sibiryak Bowling Centre í borginni Krasnoyarsk í Rússlandi dagana 15. – 24 nóvember 2013. Sjá nánar um Qubica AMF Bowling World Cup mótið á heimasíðu QubicaAMF

Úrslitakeppni AMF mótaraðarinnar í keilu fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll í dag. Þar áttu keppnisrétt 10 stigahæstu keppendurnir úr öllum þremur AMF mótum vetrarins og spiluðu einfalda umferð allir við alla. Að því loknu kepptu fjórir efstu keppendurnir til úrslita, en það voru Hafþór Harðarson ÍR, Magnús Magnússon ÍR Arnar Sæbergsson ÍR og Magnús S. Guðmundsson ÍA. Í fyrsta leik kepptu Arnar Sæbergsson og Magnús S. Guðmundsson og vann Arnar með 248 á móti 136. Arnar keppti því næst við Magnús Magnússon og vann þann leik með 257 á móti 203. Að lokum keppti Arnar við Hafþór Harðarson og vann hann í æsispennandi úrslitaleik þar sem úrslit réðust í síðasta kasti með 192 á móti 189. Guðný Gunnarsdóttir ÍR náði bestum árangri kvenna í mótaröðinni á þessu keppnistímabili, endaði í 5. sæti og setti Íslandsmet í 9 leikjum.

Þetta var í þriðja sinn sem Arnar vinnur AMF mótaröðina og keppnisrétt á Qubica AMF heimsbikarmóti einstaklinga, en hann keppti síðast á mótinu í Lljubliana í Slóveníu árið 2005. Guðný ávann sér rétt til þátttöku í sjötta sinn, en hún keppti á mótinu í  Wroclaw í Póllandi í fyrra og í Lljubliana í Slóveníu árið 2005.

Í mótinu voru sett tvö ný Íslandsmet. Hafþór Harðarson ÍR setti í dag Íslandsmet í 9 leikjum karla með samtals 2.190 pinna og bætti met Ásgeirs Þórs Þórðarsonar frá árinu 2004 um 89 pinna. Guðný Gunnarsdóttir ÍR setti í gær Íslandsmet í 9 leikjum kvenna þegar hún spilaði 1.768 og bætti met Sigfríðar Sigurðardóttur frá árinu 2004 um 4 pinna.

AMF World Cup mótaröðin 2012 -2013

Úrslitakeppni AMF mótaraðarinnar 2012 – 2013 hófst kl. 9:00 í morgun, sunnudaginn 21. apríl, í Keiluhöllinni í Egilshöll.

Eftir spennandi keppni og góða spilamennsku í 10 manna úrslitum er það Hafþór Harðarson ÍR sem er í efsta sæti með samtals 2.350, en hann spilaði 299 í 9. leiknum og setti Íslandsmet í 9 leikjum með samtals 2.190 pinna. Bætti hann met Ásgeirs Þórs Þórðarsonar frá árinu 2004 um 89 pinna. Í 2. sæti varð Magnús Magnússon ÍR með samtals 2.191, Arnar Sæbergsson ÍR varð í 3. sæti með samtals 2.189, en þessir þrír keppendur höfðu nokkra yfirburði yfir mótherja sína í dag. Magnús S. Guðmundsson ÍA tryggði sér svo 4. og síðasta sætið í úrslitunum með samtals 1.889, fjórum pinnum meira en Guðný Gunnarsdóttir sem varð í 5. sæti með 1.885. Til úrslita keppa fjórir efstu keppendurnir. Sjá stöðuna allir við alla

Olíuburður í mótinu verður Beaten path 41 fet. Sjá nánar í auglýsingu og reglugerð fyrir AMF mótin.

49. QubicaAMF Bowling World Cup mótið fer fram í Sibiryak Bowling Centre í borginni Krasnoyarsk í Rússlandi dagana 15. – 24 nóvember 2013. Sjá nánar á heimasíðu QubicaAMF

Sýnt var beint frá keppninni á SportTV  og sá Hörður Ingi Jóhannsson um lýsinguna. Einnig var hægt að fylgjast með keppninni á Facebook síðu Keilusambandsins

Úrslitakeppni 2. deildar karla

ÍR-Broskarlar, Þór Akureyri, KR-B og ÍR-Blikk keppa nú í úrslitum 2. deildar karla um tvö laus sæti í 1. deild að ári og fer úrslitakeppnin fram dagana 19. – 29. apríl, sjá nánar í dagskrá og dagskrá úrslitakeppni 2. deildar karla.

Stöðuna í úrslitakeppninni má nú sjá hér

Þar sem ekki er hægt að slá inn skorið vegna tæknilegra örðugleika birtum við stöðu úr úrslitakeppni 2. deildar karla hérna ykkur til upplýsinga.
Föstudaginn 19. apríl fór fram leikur ÍR-Blikk og Þórs og fór hann 17.5  á móti 2.5  fyrir ÍR-Blikk 
Laugardaginn 20. apríl fór fram leikur KR-B og Þórs og fór hann 12 á móti 8 fyrir KR-B.
Sunnudaginn 21. apríl fóru fram leikir ÍR-Broskarla og Þórs og ÍR-Blikk og KR-B og fóru báðir leikirnir 10 á móti 10.

Staðan er þá þannig að ÍR-Blikk hefur leikið 2 leiki og er með 27,5 stig. KR-B hefur leikið 2 leiki og er með 22 stig. Þór hefur leikið 3 leiki og er með 20,5 stig. og ÍR-Broskarlar hafa leikið 1 leik og er með 10 stig.

Úrslitakeppni AMF World Cup mótaraðarinnar

Úrslitakeppni AMF mótaraðarinnar 2012 – 2013 fer fram í Keiluhöllinni í Egilshöll á morgun sunnudaginn 21. apríl og hefst keppni kl. 9:00. Þar eiga keppnisrétt 10 stigahæstu keppendurnir úr öllum þremur AMF mótum vetrarins. En þeir eru Magnús Magnússon ÍR, Arnar Sæbergsson ÍR, Hafþór Harðarson ÍR, Guðlaugur Valgeirsson KFR, Andrés Páll Júlíusson ÍR, Kristján Þórðarson ÍA, Magnús S. Guðmundsson ÍA, Einar Már Björnsson ÍR, Guðný Gunnarsdóttir ÍR og Róbert Dan Sigurðsson ÍR. Sjá stig úr AMF mótaröðinni
 
Sýnt verður beint frá keppninni á SportTV og hefst útsending kl. 10:30 og að vanda mun Hörður Ingi Jóhannsson sjá um lýsinguna.

Fylgist með leikjum keppninnar á Facebook síðu Keilusambandsins

Olíuburður í mótinu verður Beaten path 41 fet. Sjá nánar í auglýsingu og reglugerð fyrir AMF mótin.

49. QubicaAMF Bowling World Cup mótið fer fram í Sibiryak Bowling Centre í borginni Krasnoyarsk í Rússlandi dagana 15. – 24 nóvember 2013. Sjá nánar á heimasíðu QubicaAMF