Meistaramót ÍR 2013

Meistaramót ÍR í keilu 2013 fór fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 11. maí. Þátttakendur í mótinu voru alls 27 og keppt var í karla- og kvennaflokki án forgjafar og opnum flokki með forgjöf.

Ástrós Pétursdóttir og Hafþór Harðarson tryggðu sér meistaratitlana í kvenna- og karlaflokki. Í 2. sæti voru Snæfríður Telma Jónsson og Andrés Páll Júlíusson og í 3. sæti voru Guðrún Soffía Guðmundsdóttir og Hlynur Örn Ómarsson. Hörður Finnur Magnússon vann titilinn með forgjöf, í 2. sæti var Halldóra Íris Ingvarsdóttir og í 3. sæti var Arnar Ólafsson. Sjá nánar á heimasíðu Keiludeildar ÍR

 

Breytingar á karlalandsliðinu

Hörður Ingi Jóhannsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt breytingar á karlalandsliðinu sem mun keppa á Heimsmeistaramótinu í keilu 2013 sem haldið verður í borginni i Las Vegas í Bandaríkjunum dagana 18. – 31. ágúst n.k.

Guðlaugur Valgeirsson KFR mun taka sæti Skúla Freys Sigurðssonar ÍA, sem dæmdur hefur verið í 6 mánaða bann af dómstóli ÍSÍ. Karlalandsliðið í keilu verður því þannig skipað: Arnar Davíð Jónsson KFR, Andrés Páll Júlíusson ÍR, Einar Már Björnsson ÍR, Guðlaugur Valgeirsson KFR, Hafþór Harðarson ÍR og Magnús Magnússon ÍR.

Liðið mun halda utan um miðjan ágúst og þangað til munu landsliðsmennirnir æfa reglulega bæði í keilusal og utan og Haukur Ingi Guðnason íþróttasálffræðingur mun einnig koma að undirbúningnum. 

Guðlaugur Valgeirsson sem keppir með KFR-Lærlingum og Einar Már Björnsson sem keppir með ÍR-PLS eru nýliðarnir í hópnum. Arnar Davíð Jónsson KFR sem býr og keppir í Noregi mun keppa á sínu öðru móti með karlalandsliðinu, en hann var í liðinu sem keppti á Evrópumótinu í Vín í Austurríki í ágúst. Andrés Páll Júlíusson sem keppir með ÍR-KLS er að keppa á sínu þriðja móti, en hann keppti á Evrópumótinu í Vín 2007 og Heimsmeistaramótinu í Bankok í Tælandi 2008 og kemur því aftur  inn í liðið aftur eftir nokkurra ára hlé. Hafþór Harðarson úr ÍR-PLS og Magnús Magnússon úr ÍR-PLS hafa hins vegar verið fastamenn í karlalandsliðinu undanfarin ár.

Á mótinu verður keppt í einstaklingskeppni, tvímenningi, þrímenningi, liðakeppni og meistarakeppni einstaklinga. Sjá heimasíðu mótsins

Allar nánari upplýsingar gefa Hörður Ingi Jóhannsson karlalandsliðsþjálfari og landsliðsnefnd KLÍ [email protected]

Myndin er af Guðlaugi Valgeirssyni

Nýtt meðaltal 30. apríl 2013

Birt hefur verið nýtt allsherjarmeðaltal miðað við 30. apríl 2013.

Engar breytingar hafa orðið á röð efstu manna á listanum. Hafþór Harðarson ÍR er enn í efsta sætinu með 217 að meðaltali eins og Magnús Magnússon ÍR. Næstir á eftir þeim koma Robert Anderson ÍR með 214 og Arnar Sæbergsson með 210.

Guðný Gunnarsdóttir ÍR er nú komin með hæsta meðaltal kvenna 191 og hækkaði um heila 9 pinna á milli mánaða. Næstar á eftir henni koma Dagný Edda Þórisdóttir KFR með 186, Elín Óskarsdóttir KFR með 180 og Ragna Matthíasdóttir KFR með 179.

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Íslandsmót liða 2012 – 2013

Árshátíð KLÍ var haldin í Rúbín í Öskjuhlíð laugardaginn 4. maí s.l. að viðstöddu fjölmenni, en að þessu sinni sóttu hátíðina á bilinu 110 – 120 manns. Karlalandsliðið hafði umsjón með árshátíðinni að þessu sinni og setti saman skemmtilegt myndband með nokkrum frábærum myndum frá Birgi Kristinssyni sem teknar voru á keppnistímabilinu. Myndbandið er nú komið inn á Youtube og sjá má það hér

Hefð er fyrir því að veita verðlaun og viðurkenningar fyrir afrek keppnistímabilinu á Íslandsmóti liða á árshátíð KLÍ og hefur Hörður Ingi Jóhannsson haft veg og vanda að þessu svo lengi sem elstu menn muna. Að þessu sinni voru einnig veittar viðurkenningar fyrir helstu afrek á keppnistímabilinu í Utandeild KLÍ.

Andri Þór Goethe ÍR-A, Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR-BK og Arnar Sæbergsson ÍR-KLS hlutu framfaraverðlaun deildanna. Matthías Helgi Júlíusson KR-B, Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum og Magnús Magnússon ÍR-KLS voru stigameistarar.

Verðlaun í deildum veturinn 2012 – 2013:
2. deild karla:
Hæsti leikur:  Matthías Helgi Júlíusson KR-B  267
Hæsta sería:  Stefán Þór Jónsson  ÍR-Broskarlar  690
Hæsta meðaltal:  Stefán Þór Jónsson  ÍR-Broskarlar  191,8
Fellukóngur:  Stefán Þór Jónsson ÍR-Broskarlar  4,58
Stigameistari:  Matthías Helgi Júlíusson  KR-B  0,838
Mestu framfarir:  Andri Þór Goethe  ÍR-A  26,2 pinna bæting.

Stjörnuskjöldur:  KR-B  209 Stjörnur
Hæsti leikur liðs:  KR-B  853
Hæsta sería liðs:  KR-B  2388
Hæsta meðaltal liðs:  KR-B  174,89

3. Sæti:  ÍR-Broskarlar
2. Sæti:  Þór
Meistarar: KR-B   

1. deild kvenna:
Hæsti leikur: Linda Hrönn Magnúsdóttir  ÍR-TT  246
Sigurlaug Jakobsdóttir  ÍR-TT  246
Dagný Edda Þórisdóttir  KFR-Valkyrjur  246                                                            
Hæsta sería:  Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT  650
Hæsta meðaltal:  Elín Óskarsdóttir  KFR Valkyrjur)    183,6
Felludrottning:  Dagný Edda Þórisdóttir  KFR Valkyrjur  4,10
Stigameistari:  Elín Óskarsdóttir  KFR-Valkyrjur  0,843
Mestu framfarir:  Bergþóra Rós Ólafsdóttir  ÍR-BK  Bæting um 29,2 pinna.

Stjörnuskjöldur:  KFR-Afturgöngurnar  140 Stjörnur
Hæsti leikur liðs:  ÍR-TT  794
Hæsta sería liðs:  KFR-Valkyrjur  2167
Hæsta meðaltal liðs:  KFR-Valkyrjur  166,5

3. Sæti:  ÍR-Buff og KFR-Afturgöngurnar   
2. Sæti:  KFR-Valkyrjur   
Meistarar:  ÍR-TT   

1. deild karla:
Hæsti leikur:  Magnús Magnússon  ÍR-KLS  290
Hæsta sería:  Kristján Þórðarson  ÍA  773
Hæsta meðaltal:  Hafþór Harðarson  ÍR-PLS  213,5
Fellukóngur:  Hafþór Harðarson  ÍR-PLS  6,47
Stigameistari:  Magnús Magnússon  ÍR-KLS  0,750
Mestu framfarir:    Arnar Sæbergsson  ÍR-KLS  Bæting um 24 pinna

Stjörnuskjöldur:  ÍR-PLS  247 Stjörnur
Hæsti leikur liðs:  ÍA-W   948
Hæsta sería liðs:  ÍA og ÍR-PLS  2607
Hæsta meðaltal liðs:  ÍR-PLS  195,34

3. Sæti:  ÍA og ÍA-W
2. Sæti:  ÍR-PLS
Meistarar:  ÍR-KLS               

Utandeild
Með forgjöf
Hæsti leikur:  Brynjar Guðmundsson  Málning  277
Hæsta sería:  Adela Y.  Magno  LSH  744
Hæsta meðaltal:  Ásgeir Henningsson         (Geirfuglar)     225,2 
Hæsta meðaltal liðs:      Geirfuglar                      208
Stigameistari:      Sigurður Bjarni Viðarsson      (Málning)        2,0

Án forgjafar
Hæsti leikur:  Atli Þór Kárason  N1  224
Hæsta sería:  Sigurbjörn Stefán Vilhjálmsson  N1  583
Hæsta meðaltal:  Atli Þór Kárason  N1  183,1
Hæsta meðaltal liðs:  Geirfuglar  193,8

3. Sæti: Steven Segal 21 stig
2. Sæti: Naddóður 30 stig
Meistarar: Amish-the way of life 33 stig

Sollumótið 2013

Sollumótið 2013 verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð sunnudaginn 12. maí kl. 11:00 – 13:00. Mótið er haldið til minningar um Sólveigu Guðmundsdóttur, Sollu sem lést langt fyrir aldur fram árið 2004. Solla keppti meðal annars með Afturgöngunum, Flökkurum og Valkyrjum, var landsliðskona í keilu til fjölda ára og var fyrsti keiluþjálfari Asparinnar og algjör frumkvöðull í kynningu og eflingu keiluiðkunar fatlaðra á Íslandi.Solla var Íslandsmeistari einstaklinga árið 1999 og margfaldur Íslands- og Bikarmeistari í liðakeppni.

Keppnin fer þannig fram að keilarar frá Öspinni keppa með öðrum keilurum í tvímenningskeppni og spilaður verður einn leikur með forgjöf. Verð er kr. 1.500 kr og innifalið í verðinu er mótsgjald og veitingar að móti loknu. Skráning er hjá Theódóru Ólafsdóttur [email protected].  eða í síma 661 9585. Sjá nánar í auglýsingu hér

KFR-Valkyrjur og ÍR-KLS Bikarmeistarar KLÍ 2013

KFR-Valkyrjur og ÍR-KLS eru Bikarmeistarar liða í keilu 2013, en liðin tryggðu sér sigur í úrslitum Bikarkeppni liða í keilu 2013 sem fóru fram í Keiluhöllinni Egilshöll í dag laugardaginn 4. maí.

KFR-Valkyrjur voru að vinna titilinn í sjötta sinn, en þær voru Bikarmeistarar 5 ár í röð á árunum 2004 til 2009. ÍR-KLS vann titililinn fjórða árið í röð og í níunda skipti alls.

 

Deildarmeistararnir KFR-Valkyrjur unnu stórsigur 3 – 0 á nýkýndum Íslandsmeisturum ÍR-TT í kvennaflokki og hefndu þar með ófaranna í úrslitakeppninni. KFR-Valkyrjur mættu gríðarlega ákveðnar til leiks á laugardaginn og spiluðu 760 í fyrsta leik á móti 669 hjá ÍR-TT. Annar leikurinn var meira spennandi, en lauk þó með öruggum sigri KFR-Valkyrja með 741 á móti 707. Þriðji leikurinn náði einnig að vera spennandi áður en KFR-Valkyrjur klárðuðu hann með  750 á móti 691. Samtals spiluðu KFR-Valkyrjur 2.251 sem er hreint frábær spilamennska eða 187,58 að meðaltali í leik, en ÍR-TT spilaði samtals 2.067 sem er 172,25 að meðaltali. Dagný Edda Þórisdóttir og Elín Óskarsdóttir úr KFR-Valkyrjum spiluðu báðar yfir 600 seríu. Dagný var með 617 í þremur leikjum, en Elín spilaði 606.

Nýkrýndir Deildar- og Íslandsmeistarar ÍR-KLS unnu lið ÍA-W í spennandi viðureign í karlaflokki sem fór í fjóra leiki og endaði 3 – 1. ÍR-KLS vann fyrstu tvo leikina, fyrri leikinn með aðeins 5 pinnum með 811 á móti 806 hjá ÍA-W og annan leikinn með 898 á móti 830. ÍA-W voru þó ákveðnir að gefast ekki upp og unnu þriðja leikinn með 855 á móti 800. Lið ÍR-KLS tryggði sér síðan sigurinn með stórleik í fjóða leiknum með 908 á móti 832. Samtals spiluðu ÍR-KLS 3.424 sem gerir 214 að meðaltali í leik og ÍA-W spilaði samtals 3.323 sem er 207,69. Sannarlega glæsileg spilamennska í þessum úrslitaleik. Magnús Magnússon ÍR-KLS spilaði 908 í þessum fjórum leikjum, Andrés Páll Júlíusson ÍR-KLS spilaði 852, Sigurður Þ. Guðmundsson ÍA-W spilaði 848, Árni Geir Ómarsson ÍR-KLS spilaði 836, Hörður Einarsson ÍA-W var með 834, Snorri Harðarson ÍA-W með 824, Þorleifur J. Hreiðarsson ÍA-W með 817 og Arnar Sæbergsson ÍR-KLS kom inn á í síðasta leik og spilaði 257.

Sjá einnig upplýsingar um úrslit Bikarkeppni KLÍ

Utandeildarmeistarar KLÍ 2013

Amish-the way of life tryggði sér í dag Utanmeistaratitil KLÍ í keilu eftir hörkuspennandi keppni til síðasta leik við lið Naddóðs.

Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ fór fram í Keiluhöllinni Egilshöll í dag laugardaginn 4. maí. Til úrslita kepptu tvö efstu liðin úr hverjum riðli Utandeildarinnar, en þau voru Landsbankinn 1 og Utandeildarmeistarar síðasta árs Geirfuglar úr Riðli 1. Naddóður og Langi burður og feykjurnar úr Riðli 2 og Steven Segal og Amish-the way of life úr Riðli 3. Úrslitin urðu þau að Amish-the way of life sigraði með 33 stig, Naddóður var í 2. sæti með 30 stig og Steven Segal var í 3. sæti með 21. stig.

Lokastaðan í úrslitakeppninni:
1. sæti Amish-the way of life 33 stig
2. sæti Naddóður  30 stig
3. sæti Steven Segal  21 stig
4. sæti Landsbankinn 1  20 stig
5. sæti Geirfuglar  16 stig
6. sæti Langiburður og feykjurnar 6
stig.

Viðurkenningar fyrir keppnistímabilið hlutu:
Með forgjöf
Hæsti leikur:  Brynjar Guðmundsson  Málning  277
Hæsta sería:  Adela Y.  Magno  LSH  744
Hæsta meðaltal:  Ásgeir Henningsson  Geirfuglar  225,2 
Hæsta meðaltal liðs:  Geirfuglar  208
Stigameistari:  Sigurður Bjarni Viðarsson  Málning  2,0

Án forgjafar
Hæsti leikur:  Atli Þór Kárason  N1  224
Hæsta sería:  Sigurbjörn Stefán Vilhjálmsson  N1  583
Hæsta meðaltal:  Atli Þór Kárason  N1  183,1
Hæsta meðaltal liðs:  Geirfuglar  193,8

3. Sæti: Steven Segal 21 stig
2. Sæti: Naddóður 30 stig
Meistarar: Amish-the way of life 33 stig

Sjá upplýsingar um Utandeild KLÍ

Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ 2013

Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll á morgun, laugardaginn 4. maí og hefst keppni kl. 11:00. Til úrslita keppa efstu tvö liðinu úr hverjum riðli Utandeildarinnar , en þau eru Landsbankinn 1 og Utandeildarmeistarar síðasta árs Geirfuglar úr Riðli 1. Naddóður og Langi burður og feykjurnar úr Riðli 2 og Steven Segal og Amish-the way of life úr Riðli 3.

Keppnin fer fram á brautum 7 – 12, sjá brautaskipan í úrslitum.

Sjá upplýsingar um Utandeild KLÍ hér

Í úrslitum leika liðin einfalda umferð eftir sama fyrirkomulagi og í riðlakeppninni. Það lið sem hefur flest stig að þessum leikjum umferðum loknum er Utandeildarmeistari. Ef tvö eða fleiri lið eru með jafnmörg stig sigrar það lið sem er með hærra meðaltal úr úrslitakeppninni. Ef það er jafnt gildir meðaltal úr forkeppninni og ef það er jafnt skal hlutkesti ráða úrslitum. Ef fjöldi liða í úrslitakeppni er fleiri en 4 lið skal leika einfalda umferð. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í deildinni og hlýtur sigurvegarinn auk þess veglegan farandgrip til varðveislu í eitt ár. Auk þessa eru veitt margvísleg liða- ogeinstaklingsverðlaun.