Íslandsmót unglingaliða 2013 – 2014

Fyrsta umferðin á Íslandsmóti unglingaliða á keppnistímabilinu 2013 – 2014 fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 12. október n.k. og hefst keppni kl. 9:00. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR.

Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.

Deildarbikar liða – Úrslit 1. umferðar

Keppni í 1. umferð Deildarbikars liða fór fram þriðjudaginn 8. október s.l. Liðin í A riðli kepptu í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð, en liðin í B og C riðlum spiluðu í Keiluhöllinni í Egilshöll.

 

Að lokinni 1. umferð er staðan þannig að ÍR-PLS er í efsta sæti A-riðils með 12 stig, ÍR-TT er í 2. sæti með 8 stig eins og ÍR-L sem er í 3. sæti. Í B-riðli eru KFR-Afturgöngurnar í efsta sæti með 10 stig, ÍA er í 2. sæti með 6 stig eins og ÍR-Buff sem er í 3. sæti. Í C riðli er ÍR-KLS í efsta sæti með 8 stig eins og ÍA-W sem er í 2. sæti. Í 3. sæti er KR-C með 4 stig eins og ÍR-Broskarlar og KR-D.

Helstu tíðindi kvöldsins voru þau að Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR setti Íslandsmet í flokki 17 – 18 ára stúlkna þegar hún spilaði 266 í einum leik og bætti eigið met frá 14. september s.l. um tvo pinna.

Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.

Nýtt meðaltal 30. september 2013

Birt hefur verið nýtt allsherjarmeðaltal miðað við 30. september 2013

Hafþór Harðarson ÍR og Magnús Magnússon ÍR eru með hæsta meðaltal karla með 217 pinna að meðaltali í leik. Næstir á eftir þeim Robert Anderson ÍR með 214, Arnar Sæbergsson ÍR með 209 og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA með 207.

Dagný Edda Þórisdóttir KFR er með hæsta meðaltal kvenna 189 pinna að meðaltali í leik. Næstar á eftir henni koma Ástrós Pétursdóttir ÍR með 187, Elín Óskarsdóttir KFR og Guðný Gunnarsdóttir ÍR með 185, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Ragna Matthíasdóttir KFR með 177.

 

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Íslandmót í tvímenningi 2013 Úrslit

Guðlaugur Valgeirsson KFR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA eru Íslandsmeistarar í tvímenningi 2013. Þeir sigruðu Björn Birgisson og Kristján Þórðarson úr KR í spennandi úrslitaviðureign sem fór í 4 leiki og réðust úrslit ekki fyrr en í síðasta ramma. Viðureign þeirra lauk 2 – 2 með 375 – 360 í fjórða leik og samtals 1.492  gegn 1.484. Í 3. sæti voru Guðmundur Sigurðsson og Magnús S. Guðmundsson úr ÍA.

Keppnin um fjögur efstu sætin í undanúrslitunum var mjög hörð og miklar sviptingar í lokaleik undanúrslitanna. Guðlaugur og Skúli Freyr náðu að tryggja sér efsta sætið í síðasta leiknum og spiluðu sig upp úr 5. sæti og enduðu með samtals 5.074. Björn og Kristján spiluðu sig upp úr 3. sætinu og enduðu 12 pinnum á eftir með samtals 5.062 pinna. Guðmundur og Magnús S. féllu niður um eitt sæti og enduði 33 pinnum á eftir með samtals 5.041 pinna. Hafþór Harðarson og Einar Már Björnsson úr ÍR sem voru í forystu fyrir daginn máttu sætta sig við 4. sætið, 41 pinna á eftir með samtals 5.033 pinna. Í 5. sæti voru Guðný Gunnarsdóttir og Linda Hrönn Magnúsdóttir úr ÍR með samtals 4.901 pinna og Ástrós Pétursdóttir og Bergþóra Rós Ólafsdóttir úr ÍR höfnuðu í 6. sæti með samtals 4.762 pinna.

Allir leikir mótsins (Ýtið á örvahnappinn til að fletta á milli síða)

Deildarbikar liða 1. umferð

Keppni í 1. umferð Deildarbikars liða fer fram þriðjudaginn 8. október n.k. Liðin í A riðli keppa í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð í 1. umferðinni, en liðin í B og C riðlum keppa í Keiluhöllinni í Egilshöll. Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.

 

 

  Deildarbikar Riðill
kv- ÍR-TT A
kv- ÍFH-Elding A
1- ÍR-PLS A
1- KR-A A
2- ÍR-L A
3- ÍFH-Stuðboltar A
3- ÍR-Fagmaður A
kv- KFR-Afturgöngurnar B
kv- ÍR-Buff B
1- ÍA B
1- KR-B B
2- KFR-Þröstur B
3- ÍFH-Múrbrjótur B
kv- ÍR-BK C
1- ÍR-KLS C
1- KR-C C
1- ÍA-W C
2- ÍR-Broskarlar C
3- KR-D C

Sjá dagskrá, og leiki í Deildarbikar í vetur. Olíuburður í Deildarbikar liða er MIDDLE ROAD – 4239 39 fet

ÍR-KLS er Deildarbikarmeistari liða 2013. Á myndinni má sjá Andrés Pál Júlíusson, Magnús Magnússon og Arnar Sæbergsson.

Landsliðsverkefni og þátttaka í erlendum mótum

Hópur íslenskra keilara mun taka þátt í mótum erlendis á næstunni.

Íslandsmeistararnir Dagný Edda Þórisdóttir úr KFR og Hafþór Harðarson úr ÍR munu verða fulltrúar Íslands á Evrópubikarmóti einstaklinga ECC 2013 sem haldið verður í borginni Bratislava í Slóvakíu dagana 21. – 28. október n.k. Með þeim í för verða Valgeir Guðbjartsson þjálfari og Þórarinn Már Þorbjörnsson formaður KLÍ verður fararstjóri. Þórarinn mun jafnframt nota tækifærið til að kynna RIG mótið og Evrópubikarmótið sem haldin verða í Reykjavík á næsta ári.

Átta keppendur munu taka þátt fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti 23 ára og yngri, NYC 2013 sem haldið verður í borginni Malmö í Svíþjóð, dagana 6. – 10 nóvember 2013. Stúlkurnar eru Ástrós Pétursdóttir ÍR, Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR, Hafdís Pála Jónasdóttir KFR og Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR. Piltarnir eru Arnar Davíð Jónsson KFR, Einar Sigurður Sigurðsson ÍR, Guðlaugur Valgeirsson KFR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA. Þjálfari er Theódóra Ólafsdóttir.

Beðið er frekari upplýsinga um keppendur og mótin frá landsliðsnefnd og þjálfara.

Arnar Sæbergsson og Guðný Gunnarsdóttir úr ÍR tryggðu sér sigurinn á AMF mótaröðinni á síðasta keppnistímabili og munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsbikarmóti Qubica AMF World Cup 2013 sem fram fer í borginni Krasnoyarsk í Síberíu í Rússlandi í 15. – 24. nóvember n.k.

 

Íslandsmót félaga 1. umferð

Fyrsti leikdagur á Íslandsmóti félaga á keppnistímabilinu 2013 – 2014 fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð mánudaginn 7. október og hefst keppni kl. 19:00. Til keppni eru skráð 9 lið, karlalið frá ÍA, ÍFH, ÍR, KFR og KR og kvennalið frá ÍA, ÍFH, ÍR og KFR. Kvennalið ÍA mætir nú til keppni í Félagakeppninni í fyrsta skipti. Sjá töfluröð.

2. umferð verður spiluð í Keiluhöllinni Egilshöll mánudaginn 4. nóvember, en síðustu tvær umferðirnar verða í lok keppnistímabilsins, 3. umferð mánudaginn 17. mars 2014 í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og 4. umferð og úrslit verða í Egilshöllinni laugardaginn 17. maí 2014. Spilaður verður hluti úr umferð hvern leikdag og situr eitt lið hjá í hverjum leik, sjá töfluröð. Olíuburður í keppninni er WTBA Atlanta 38 fet

ÍA er Íslandsmeistari félaga í Opnum flokki 2013 og KFR-Konur eru Íslandsmeistarar félaga í kvennaflokki 2013.