Staðan í 1. deild kvenna

Að loknum 6. umferðum í 1. deild kvenna á Íslandsmóti liða er ÍR-TT enn í efsta sæti deildarinnar með 88,5 stig og einn leik til góða. ÍR-BK er í 2. sæti með 77 stig og eru með tveggja stiga forskot á KFR-Valkyrjur sem eru komnar í 3. sætið með 75 stig og eiga einn leik til góða. Sjá stöðuna eftir 6. umferð

Í tilefni af 20 ára afmæli ÍR-TT er hér mynd af liðinu frá fyrsta keppnistímabili liðsins 1993 – 1994. Frá vinstri Guðrún Ósk Aradóttir, Soffía Dröfn Halldórsdóttir, Sigríður Klemensdóttir, Steinunn Margrét Arnórsdóttir, Ástrós Guðmundsdóttir og Steinunn Jóna Geirsdóttir — í Keilulandi, Garðabæ.

Í 6. umferð tók ÍFH-Elding á móti ÍA í Öskjuhlíðinni og áttust við í jöfnum leik sem fór 10,5 – 9,5. Leikur KFR-Skutlanna og ÍR-BK fór 5 – 15 og KFR-Afturgöngurnar tók á móti ÍR-TT sem máttu sætta sig við tap 13 – 7. ÍR-Buff tók á móti ÍR-N í Egilshöllinni og fór leikur þeirra 13,5 á móti 6.5 og KFR-Valkyrjur unnu ÍR-SK 19 – 1. ÍR-KK sátu hjá í umferðinni.

Úrslit leikja í 6. umferð sem fór fram þriðjudaginn 29. október voru eftirfarandi:
ÍFH-Elding – ÍA 10,5 9,5
KFR-Skutlurnar – ÍR-BK 5 – 15
KFR-Afturgöngurnar – ÍR-TT 13 – 7
ÍR-Buff – ÍR-N 13,5 – 6,5
KFR-Valkyrjur – ÍR-SK 19 – 1

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 6. umferð:
1. ÍR-TT 88,5 (6)
2. ÍR-BK 77 (6)
3. KFR-Valkyrjur 75 (5)
4. ÍR-Buff 73,5 (6)
5. KFR-Afturgöngurnar 60,5 (5)
6. ÍR-N 57,5 (5)
7. ÍFH-Elding 51 (6)
8. ÍR-KK 41 (5)
9. ÍA 33,5 (5)
10. KFR-Skutlurnar 28 (5)
11. ÍR-SK 14,5 (6)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 169,88, ÍR-TT er með 167,0 og KFR-Afturgöngurnar eru með 165,77. ÍR-TT á hæsta leik liðs 770, en KFR-Afturgöngurnar eiga hæstu seríu liðs 2.125.

Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar 187,3 að meðaltali í leik í 15 leikjum. Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum er með 181,0 að meðaltali í 12 leikjum og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT er með 178,7 í 18 leikjum. Keppni um stigameistararann er rétt að byrja. Sesselja Unnur Vilhjálmsdóttir KFR-Valkyrjum hefur unnið báða sína leik, Elín er með 0,867 í 15 leikjum og Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT er með 0,806 í 18 leikjum. Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,31 að meðaltali í leik í 13 leikjum, Elín er með 4,27 og Guðný er með 4,22. Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff á hæsta leik deildarinnar 245, Guðný á 234 og Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum hefur spilað 225. Elín á hæstu seríuna 620, Helga kemur næst með 604 seríu og þriðja er Guðný með 593 seríu.

Sjá nánar stöðuna eftir 6. umferð

Í 7. umferð sem fer fram sunnudaginn 17. og þriðjudaginn 19. nóvember tekur ÍA á móti KFR-Skutlunum á Akranesi. Í Öskjuhlíð mætast ÍR-SK og KFR-Afturgöngurnar, ÍR-N og ÍFH-Elding, ÍR-KK tekur á móti ÍR-Buff og ÍR-BK tekur á móti KFR-Valkyrjum. ÍR-TT situr hjá í 7. umferð.

Útdráttur í Bikarkeppni liða

Rétt í þessu var dregið í 16 liða úrslit Bikarkeppni liða sem verða leikin mánudaginn 16. desember n.k. Það lið sem fékk heimaleikinn er talið upp á undan.

ÍR-Broskarlar – ÍA
KR-D – ÍR-Gaurar
ÍR-Keila.is – KFR-Þröstur
ÍA-B – KFR-Lærlingar
ÍR-Fagmaður – KR-B
KFR-Stormsveitin – ÍR-PLS
ÍR-KLS – KFR-JP-Kast
KR-C – ÍA-W

Olíuburður í Bikarkeppni liða er * 2011 USBC Open Championships – Reno

ECC 2013 – Úrslit

small_bowling_ECC-2013.pngHafþór Harðarson ÍR endaði í 10. sæti á Evrópubikarmóti einstaklinga 2013 aðeins 17 pinnum frá sæti í úrslitunum með samtals 5.041 pinna eða 210 að meðaltali í leik eftir 24 leiki. Hafþór spilaði samtals 1.632 í síðustu 8 leikjunum og var það lægsta serían hans í mótinu, eða 204 að meðaltali í leik. Að þessu sinni komst síðasti maður inn í úrslitin með samtals 5.058 eða 210,8 að meðaltali.

Dagný Edda Þórisdóttir KFR endaði í 27. sæti með 4.378 eða 181,2 að meðaltali í leik eftir 24 leiki, en það þurfti 197 að meðaltali til að komast í úrslitin í kvennaflokki.

Finnar fögnuðu tvöföldum sigri á mótinu. Kimmo Lehtonen sigraði í karlaflokki og Sanna Pasanen í kvennaflokki en Englendingarnir Richard Teece og Lisa John máttu sætta sig við 2. sætið. Sjá heimasíðu mótsins

Bikarkeppni liða

Dregið verður í 16 liða úrslit karla í Bikarkeppni liða í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð á mánudagskvöld fyrir leik í 2. og 3. deild karla. Leikirnir fara svo fram mánudaginn 16. desember kl. 19:00

Úrslitin í 32 liða úrslitum karla voru eftirfarandi:
ÍA – KR-A 3 – 0
ÍA-B – ÍFH-Stuðboltar 3 – 0
ÍFH-Múrbrjótur – KR-B 0 – 3
ÍR-L – KR-C 0 – 3

Olíuburður í Bikarkeppni liða er * 2011 USBC Open Championships – Reno

ECC 2013 – Staðan eftir 16 leiki

small_bowling_ECC-2013.png Að loknum öðrum keppnisdegi á Evrópubikarmóti einstaklinga er Hafþór Harðarson ÍR í 8. sæti með samtals 3.409 pinna eða 213,1 að meðaltali eftir 16 leiki. Keppnin er hins vegar ennþá hörð um efstu 8 sætin í forkepnninni og þar með sæti í úrslitunum. Hafþór spilar síðustu 8 leikina í forkeppninni í seinni riðlinum á morgun, laugardag kl. 18:00 að staðartíma eða kl. 16:00 að íslenskum tíma.

Dagný Edda Þórisdóttir KFR var í 22. sæti eftir 16 leiki með 181,9 að meðaltali og hún er núna að spila 8 síðustu leikina í forkeppninni. En seinni riðilinn í kvennaflokki spilar á morgun laugardag. Sjá heimasíðu mótsins

Keppendur í 8 efstu sætunum í karlaflokki eru: Mads Sandbaekken Noregi, Dennis Eklund Svíþjóð, Emil Polanisz Pollandi, James Gruffman Svíþjóð, Kimmo Lehtonen Finnlandi, Richard Teece Englandi, Arturs Levikins Lettlandi og Hafþór Harðarson Íslandi. Anze Grabrijan Slóveníu kemur síðan í 9. sæti 14 pinnum frá 8. sætinu.

Keppendur í 8 efstu sætunum í kvennaflokki eru: Isabelle Hultin Svíþjóð, Lisa John Englandi, Sanna Pasanen Finnlandi, Daria Kovalova Úkraínu, Ivonne Gross Austurríki, Nicole Sanders Hollandi, Lauriane Celie Frakklandi og Martina Schütz Þýskalandi. Sue Abela Möltu er síðan í 9. sæti 64 pinnum frá 8. sætinu.

Staðan í 1. deild kvenna

Að loknum 5. umferðum í 1. deild kvenna á Íslandsmóti liða eru Íslandsmeistararnir í ÍR-TT komnir með nokkra forystu í efsta sæti deildarinnar með 81,5 stig. ÍR-BK heldur 2. sætinu með 62 stig og tvö stig á ÍR-Buff sem er komið í 3. sætið með 60 stig. Bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur koma síðan í 4. sæti með 56 stig og eiga einn leik til góða eins og  ÍR-N sem eru komnar í 5. sæti með 51 stig. Sjá stöðuna í deildinni

Í 5. umferð tók ÍA á móti ÍR-Buff í Keilusalnum á Akranesi og máttu sætta sig við 4 stig á móti 16 stigum gestanna. ÍR-TT vann KFR-Valkyrjur 13.5 í heimaleik í Egilshöllinni en í Öskjuhlíðinni unnu KFR-Skutlurnar ÍR-SK 17 – 3, ÍR-BK tók 8 stig á móti 12 hjá ÍFH-Eldingu og ÍR-N vann ÍR-KK 13 – 7. KFR-Afturgöngurnar sátu hjá í umferðinni.

Úrslit leikja í 5. umferð sem fór fram sunnudaginn 20. og þriðjudaginn 22. október voru eftirfarandi:
ÍA – ÍR-Buff 4 – 16
ÍR-TT – KFR-Valkyrjur 13,5 – 6,5
ÍR-SK – KFR-Skutlurnar 3 – 17
ÍR-BK – ÍFH-Elding 8 – 12
ÍR-N – ÍR-KK 13 – 7

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 5. umferð:
1. ÍR-TT 81,5 (5)
2. ÍR-BK 62 (5)
3. ÍR-Buff 60 (5)
4. KFR-Valkyrjur 56 (4)
5. ÍR-N 51 (4)
6 KFR-Afturgöngurnar 47,5 (4)
7. ÍR-KK 41 (5)
8. ÍFH-Elding 40,5 (5)
9. ÍA 24 (4)
10. KFR-Skutlurnar 23 (4)
11. ÍR-SK 13,5 (5)
(fjöldi leikja í sviga)

Sjá nánar stöðuna í deildinni

Í 6. umferð sem fer fram þriðjudaginn 29. október tekur ÍR-Buff á móti ÍR-N í Egilshöllinni og KFR-Valkyrjur mæta ÍR-SK. Í Öskjuhlíðinni tekur ÍFH-Elding á móti ÍA, KFR-Skutlurnar mæta ÍR-BK og KFR-Afturgöngurnar taka á móti ÍR-TT. ÍR-KK situr hjá í 6. umferð.

ECC 2013 – 2 keppnisdagur

small_bowling_ECC-2013.png Nú hefur Dagný Edda Þórisdóttir KFR lokið öðrum keppnisdegi Evrópubikarmótsins en hún keppti í langri olíu í dag.  Dagný átti ágætan dag í dag en hún spilaði 1.476 í 8 leikjum og endaði daginn í samanlögðu í 22 sæti. Á morgun er svo keppt í stuttum og löngum olíuburði.  Hafþór Harðarson ÍR hefur leik í fyrramálið í langri olíu kl. 7:00 að íslenskum tíma. Sjá heimasíðu mótsins