Forkeppni lokið

Forkeppni Íslandsmóts einstaklinga lauk í dag.

Efstu karlarnir eru Skúli Freyr Sigurðsson ÍA með  2508 pinna og 209,0 mtl., Arnar Davíð Jónsson KFR með 2437 pinna og 203,08 mtl. og þriðji er Hafþór Harðarson ÍR með 2418 pinna og 201,5 í mtl., síðastur inn í 16 manna hópinn var svo Hlynur Örn Ómarsson með 2127 pinna og 184 pinna forskot á næsta mann.

Efstu konurnar eru Ragna Matthíasdóttir KFR með 2180 pinna og 181,67 mtl., Ástrós Pétursdóttir ÍR með 2175 pinna og 181,25 mtl. og þriðja er Ragnheiður Þorgilsdóttir „Lilla“ KFR með 2153 pinna og 179,42 í mtl., síðust inn í 12 kvenna hópinn var svo Sigríður Klemensdóttir með 1910 pinna og aðeins 9 pinna forskot á Jónu Gunnarsdóttur sem datt niður fyrir rauðu línuna í síðasta leik.

Sjá meira neðar.

 Staða eftir forkeppni.

12 leikir karla.

12 leikir kvenna.

Brautaröðun í milliriðil.

Mótanefnd vill þakka unga fólkinu okkar, sem aðstoðaði um helgina, ýmist með því að leika sem „Hérar“ eða sækja vatn og skorblöð, kærlega fyrir aðstoðina. 

EYC2016 – vinnuhópar

Frá setningu EYC2014 í DanmörkuEins og sagt hefur verið frá hefur Keilusamband Íslands fengið það hlutverk að halda Evrópumót ungliða 2016 og verður það mót haldið um páskana á næsta ári. Ljóst er að mikil vinna þarf að fara fram í skipulagningu fyrir mótið og óskar stjórn sambandsins hér með eftir áhugasömu fólki sem vill koma í hinar ýmsu undirbúningsnefndir fyrir mótið.

Um er að ræða nokkrar nefndir sem þarf að setja á fót. Það eru m.a.:

Fjárhasnefnd – Þessi nefnd sér um fjárhagslega skipulagningu móstins. Unnið í samstarfi við gjaldkera KLÍ.

Markaðshópur – Þessi hópur þarf að útvega m.a. styrktaraðila, finna gjafir fyrir keppendur, sjá um kynningar fyrir mót o.sv.fr.

Flutningar og viðburðir – Þessi hópur sér um flutninga og viðburði til handa keppendum og fararstjórnum. Koma liðinu á hótel, á keppnisstað o.sv.fr.

Tölvumál – Þessi hópur sér um tölvumál fyrir mótið s.s. að koma á fót vefsíðu fyrir mótið, upplýsingum þegar á mótinu stendur o.sv.fr.

Þeir sem áhuga hafa á að starfa í þessum nefndum eru beðnir um að smella á viðeingandi hlekk og senda póst á stjórn KLÍ og gefa upp nafn, síma og netfang svo hægt sé að skrá viðkomandi í hópinn. Einnig er klárt mál að það vantar einhvern fjölda af sjálfboðaliðum þegar kemur að mótinu sjálfu og verður sérstaklega auglýst eftir þeim þegar nær dregur. Mótið er þó bara eftir ár og því í raun stutt í mótið.

Íslandsmeistarar 2015

 Ragnheiður „Lilla“ Þorgilsdóttir KFR og Hafþór Harðarson ÍR eru Íslandsmeistarar einstaklinga 2015.

Í öðru sæti urðu Ástrós Pétursdóttir ÍR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA, í þriðja sæti urðu Ragna Matthíasdóttir KFR og Arnar Sæbergsson ÍR.

Þetta er í fjórða sinn sem Hafþór hampar titlinum frá árinu 2011, en í fyrsta skipti hjá Ragnheiði og fer því nýtt nafn á bikarinn annað árið í röð.

 Allir við alla, karlar og konur.

Undanúrslit og úrslita staða, karla og kvenna.
 

Andlátsfregn

Stefán Þór JónssonStefán Þór Jónsson lést á Landspítalanum Fossvogi á mánudagskvöldið síðasliðna. Stefán stundaði keilu í meir en 20 ár og hefur leikið með ýmsum liðum á þeim tíma og nú síðustu ár með ÍR Broskörlum. Stefán var án efa einn litríkasti keilari landsins og verður hans sárt saknað úr þeim hópi.

 
Útför Stefáns fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 26. janúar kl 13.
 

Stjórn Keilusambands Íslands og félagar úr keilunni senda fjölskyldu og aðstandendum Stefáns innilegar samúðarkveðjur.