Keilutímabilið 2026–2027 fór formlega af stað í kvöld þegar Meistarakeppni KLÍ var leikin en þar mættust Íslands- og bikarmeistarar síðasta tímabils.
Í karlaflokki áttust við Íslandsmeistarar ÍR-PLS og bikarmeistarar ÍA, en í kvennaflokki mættu Íslandsmeistarar ÍR-TT bikarmeisturum ÍR-Píurnar.
Að loknum þremur leikjum voru það Íslandsmeistararnir sem höfðu betur í báðum flokkum og ÍR-PLS og ÍR-TT fögnuðu sigri í Meistarakeppni KLÍ.
Keilusamband Íslands óskar báðum liðum innilega til hamingju með sigurinn og góða byrjun á nýju tímabili.
Nú tekur deildarkeppnin við og fyrstu leikir tímabilsins fara fram um næstu helgi. Fram undan er því spennandi keiluvetur og verður gaman að fylgjast með baráttunni frá fyrsta kasti.
ÍR-Píurnar og ÍR-TT
ÍA og ÍR-PLS





