Arnar Davíð Jónsson sigraði Norwegian Open by Storm 2026 sem lauk í Sarpsborg í Noregi í dag.
Mótið er eitt stærsta alþjóðlega keilumót sem haldið er á Norðurlöndunum og alls voru um 190 keilarar skráðir til leiks í ár. Meðal þátttakenda voru fjölmargir öflugir keilarar frá Norðurlöndunum og víðar.
Arnar Davíð hóf úrslitadaginn á öðru þrepi úrslitakeppninnar og vann sig þaðan áfram í gegnum úrslitin áður en hann tryggði sér að lokum sigur gegn William Svensson í úrslitaleik mótsins.
Sigurinn er enn ein staðfestingin á því að Arnari Davíð hefur skipað sér í hóp sterkustu keilara Evrópu. Hann hefur á undanförnum árum náð eftirtektarverðum árangri á alþjóðlegum vettvangi og bætir nú sigri á Norwegian Open við afrekaskrána.
Keilusamband Íslands óskar Arnari Davíð innilega til hamingju með þennan glæsilega sigur!


