EM kvenna í keilu lokið

Facebook
Twitter

Íslenska kvennalandsliðið í keilu lauk um liðna helgi keppni á EM þar sem margir af sterkustu keilurum álfunnar komu saman til leiks.

Íslenska liðið var skipða blöndu af nýliðum og reyndari keppendum og endaði liðið í heildina í 16 sæti af 20 þjóðum. Keppendur á mótinu voru 113 og urðu íslensku konurnar í eftirfarandi sætum:

65. sæti Marika Katarina E. Lonnroth, 177,9 meðaltal

67. sæti Olivia Steinunn Clara Linden, 177,5 meðaltal

78. sæti Bára Líf Gunnarsdóttir, 174 meðaltal

96. sæti Steinunn Inga Guðmundsdóttir, 165 meðaltal

106. sæti Ágústa Kristín Jónsdóttir, 161 meðaltal

107. sæti Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir, 160,8 meðalta.

Þess má geta að efstu þrjár konur enda ofar en efstu konur á síðustu tveimur EM, þ.e. 2024 og 2022, þar sem efstu íslensku konurnar voru í 83. og 80. sæti.

Þátttaka í móti sem þessu er mikilvægur liður í uppbyggingu afreksstarfs enda er það verðmæt reynsla bæði fyrir keppendur og þjálfara að fá tækifæri til að keppa við þá bestu í Evrópu og læra af því sem vel gengur sem og því sem betur má fara.

Þjálfarar liðanna, Adam Pawel og Magnús Sigurjón Guðmundsson, sögðust geta tekið margt jákvætt út úr keppninni og að þeir hafi fengið dýrmætar upplýsingar um hvar þyrfti að leggja meiri áherslur í þjálfun til framtíðar.

KLÍ þakkar keppendum, þjálfurum og fylgdarliði fyrir framlag sitt á mótinu. Nú tekur við vinna við að nýta reynsluna úr mótinu og halda áfram að byggja upp íslenska kvennakeilu til framtíðar.

Nýjustu fréttirnar