Íslandsmót öldunga, 50 ára og eldri fer fram dagana 28. – 30. mars 2026
Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti öldunga þarf þátttakandi að ná 50 ára aldri á því almanaksári sem mótið er haldið.
28. og 29. mars fer forkeppnin fram og verða leiknir 6 leikir kvorn dag. 30. mars verða síðan undanúrslit og úrslit mótsins.
Olíuburður Íslandsmóts öldunga í keilu 2026
Skráning fer fram hér lokað verður fyrir skráningu 25. mars kl. 18:00
Reglugerð um mótið er hægt að nálgast hér
Forkeppni
- Verð í forkeppni er kr. 18.000,-
- Spilað laugardag og sunnudag kl. 09:00
- Allir keppendur leika 12 leiki, 6 leiki í senn, kyn spila í skiptum hópi ef þátttaka leyfir, annars er forkeppnin blönduð
- Skorið úr forkeppninni fylgir inn í undanúrslit þar sem keppa 6 efstu karlar og 6 efstu konur
Lámark þarf að vera 8 í hvorum flokki til að ekki sé spilað blönduðum flokki
Undanúrslit
- Verð í undanúrslit kr. 9.000,-
- Spilað mánudag kl. 19:00
- Allir keppa við alla, einfalda umferð
Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:
- fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig
- fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig
Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.
Úrslit
- Verð í úrslit kr. 3.000,-
- Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna sem leika allir einn leik á sitthvoru settinu
- Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið
- Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari Öldunga
Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur. Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.




