Íslandsmót einstaklinga 2026 með forgjöf

Facebook
Twitter
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf 2026 fer fram dagana 14. – 17. febrúar 2026 – Konur og síðan 21. – 24. febrúar – Karlar
 
Mótið er kynjaskipt.  Hámarks fjöldi þátttakenda er 55 í hvorn hóp.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 12. febrúar klukkan 13:00 (KONUR) annarsvegar og fimmtudaginn 19. febrúar klukkan 13:00 (KARLAR) hinsvegar.
Skráning h
ér

Olíuburður í mótinu er:


Reglugerð um mótið er hægt að nálgast hér 

Forkeppni 14. og 15. febrúar 2026 kl 09:00 Konur

Forkeppni 21. og 22. febrúar 2026 kl 09:00 Karlar

Verð í forkeppni kr. 18.000


Spilaðir eru 12 leikir í tveimur 6 leikja blokkum.

Forgjöf er 80% af mismun meðaltals og 220, hámark 80 pinnar.
Ekki er hægt að hafa neikvæða forgjöf og sé leikmaður með hærra meðaltal en 220 skal hann hafa 0 í forgjöf. Hámarksskor í einum leik verður aldrei hærra en 300.
Til að hafa þátttökurétt í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf þarf viðkomandi að hafa meðaltal viðurkennt af KLÍ úr a.m.k. 18 leikjum, annars er forgjöf engin.

16 efstu keppendurnir halda áfram í milliriðil.

Milliriðill mánudaginn 16. febrúar kl 19:30 (konur)

Milliriðill mánudaginn 23. febrúar kl 19:30 (karlar)

Verð í milliriðil kr. 9.000

16 efstu keppendurnir spila 6 leiki,

8 efstu keppendurnir fara áfram í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.

Undanúrslit þriðjudaginn 17. febrúar kl 19:30 (konur)

Undanúrslit þriðjudaginn 24. febrúar kl 19:30 (karlar)

Verð í undanúrslit kr. 11.000

Allir keppa við alla, einfalda umferð.

Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:

Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig

fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig

Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.

Úrslit spiluð á eftir undanúrslitum

Verð í úrslit kr. 3.000

Úrslit:

Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu.

Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.

Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga með forgjöf.

Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.

Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimtudaginn 12. febrúar klukkan 13:00 konur og fimmtudaginn 19. febrúar klukkan 13:00 karlar.

Mótanefnd KLÍ

Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

 

Nýjustu fréttirnar