Mótsreglur
- grein
Fyrirkomulag deildarkeppna
Allar deildir skulu spilaðar í 3 manna liðum og skal leikið þannig að gestalið stillir fyrst upp sínu liði og heimalið stillir síðan upp sínu liði. Skal gestaliðið svo hliðrast til milli leikja þannig að í fyrsta leik eru leikmenn í röð A-B-C, í öðrum leik eru leikmenn í röð C-A-B og í þriðja leik eru leikmenn í röð B-C-A.
- grein
Uppröðun í deildarkeppni
Deildarkeppni karla
Leikið skal heima og heiman í 10 liða deildum eða eins og þátttaka leyfir, þó með undantekningum sem getið er um í reglugerð þessari eða með sérstakri ákvörðun stjórnar KLÍ og Mótanefndar KLÍ.1
Leikin skal tvöföld umferð. Sigurvegari deildar hlýtur titilinn „Deildarmeistari“ í viðkomandi deild karla. Tvö neðstu liðin falla í næstu deild fyrir neðan, að frátalinni neðstu deild, og þeirra sæti taka tvö efstu liðin úr næstu deild fyrir neðan.
Ef 4 lið eða færri eru eftir í neðstu deild skal hún sameinuð næstu deild fyrir ofan og spilast þá í einum riðli sem 14 liða deild.
Fjöldi umferða ræðst af fjölda liða sbr. eftirfarandi:
- í deild með 6 eða færri liðum skal leika fjórfalda umferð
- í deild með 7 – 8 liðum skal leika þrefalda umferð
- í deild með 9 – 14 liðum skal leika tvöfalda umferð
Ef liðum fjölgar svo að neðsta deild fer yfir 14 liða hámark skal stofna nýja deild. Ný deild skal skipuð þeim liðum sem bættust við frá fyrra keppnistímabili og þeim sem voru í 11. – 14. sæti neðstu deildar.
Ef fjölgun liða veldur því að ný deild er stofnuð og færri en 10 lið voru í neðstu deild keppnistímabilið á undan skal hlutkesti ráða hvaða ný lið taka sæti í efri deild.
Þrátt fyrir framangreint er Mótanefnd KLÍ og stjórn KLÍ heimilt að færa lið milli deilda til að jafna fjölda í deildum verði miklar breytingar á fjölda liða milli tímabila. Ákvarðanir stjórnar skulu taka mið af þeim reglum sem gilda þegar lið dregur sig úr keppni sbr. 3. gr. Sjái stjórn fram á að fækka þurfi í deildum skal sú ákvörðun tilkynnt í upphafi tímabils og taka gildi að því tímabili loknu ef nokkur kostur er.
Deildakeppni kvenna
Leikið skal heima og heiman í 6 liða deildum eða eins og þátttaka leyfir, þó með undantekningum sem getið er um í reglugerð þessari eða með sérstakri ákvörðun stjórnar KLÍ og Mótanefndar KLÍ.
Leikin skal fjórföld umferð. Sigurvegari deildar hlýtur titilinn „Deildarmeistari“ í viðkomandi deild kvenna. Neðsta lið í hverri deild fellur í næstu deild fyrir neðan, að frátalinni neðstu deild, og sætið tekur efsta lið úr næstu deild fyrir neðan. Liðið sem endar í næst neðsta sæti í efri deild og liðið sem endar í öðru sæti í neðri deild leika tvo leiki, heima og heiman, um sæti í efri deild. Liðið sem endar í öðru sæti í neðri deild fær heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar tvær viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða.
Ef 4 lið eða færri eru eftir í neðstu deild skal hún sameinuð næstu deild fyrir ofan og spilast á eftirfarandi hátt:
- í deild með 7 – 8 liðum skal leika þrefalda umferð
- í deild með 9 – 10 liðum skal leika tvöfalda umferð.
Ef liðum fjölgar svo að neðsta deild fer yfir 10 liða hámark skal stofna nýja deild. Ný deild skal skipuð þeim liðum sem bættust við frá fyrra keppnistímabili og þeim sem voru í 7-10 sæti á síðasta keppnistímabili.
Ef fjölgun liða veldur því að ný deild er stofnuð og færri en 6 lið voru í neðstu deild keppnistímabilið á undan skal hlutkesti ráða hvaða ný lið taka sæti í efri deild.
Þrátt fyrir framangreint er Mótanefnd KLÍ og stjórn KLÍ heimilt að færa lið milli deilda til að jafna fjölda í deildum verði miklar breytingar á fjölda liða milli tímabila. Ákvarðanir stjórnar skulu taka mið af þeim reglum sem gilda þegar lið dregur sig úr keppni sbr. 3. gr. Sjái stjórn fram á að fækka þurfi í deildum skal sú ákvörðun tilkynnt í upphafi tímabils og taka gildi að því tímabili loknu ef nokkur kostur er.
- grein
Lið dregur sig úr keppni – Umspil
Dragi lið úr efri deild sig úr keppni áður en mót hefst eða taki ekki sæti sem það á rétt til, skal færa lið milli deilda eða efna til umspils sbr. neðangreint. Umspil skal spilað fyrir 1. júní.
Deildarkeppni karla
Ef eitt sæti losnar í efri deild taka þátt í umspili þau lið sem enduðu í næst neðsta og neðsta sæti efri deildar. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær lægra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar tvær viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða. Ef tvö sæti losna í efri deild færast bæði liðin upp í efri deild.
Ef þrjú sæti losna í efri deild færist liðið sem varð í 3. sæti í neðri deild upp í efri deild og svo koll af kolli þar til búið er að fylla öll sæti í viðkomandi deildum.
Sömu reglur gilda um sæti sem óhjákvæmilega losnar í næstu deild uns komið er niður í neðstu deild.
Ef fjölda liða í neðstu deild fækkar með þessu í 4 lið eða færri skal hún sameinuð næstu deild fyrir ofan sbr. 2. gr.
Deildarkeppni kvenna
Ef eitt sæti losnar í efri deild kvenna færist í efri deild það lið sem tapaði umspili um sæti í efri deild skv. 2. gr.
Ef tvö sæti losna í efri deild fær það lið sem varð í 3. sæti í neðri deild sæti í efri deild og svo koll af kolli þar til búið er að fylla öll sæti í viðkomandi deildum.
Sömu reglur gilda um sæti sem óhjákvæmilega losnar í næstu deild uns komið er niður í neðstu deild.
Ef fjölda liða í neðstu deild fækkar með þessu í 4 lið eða færri skal hún sameinuð næstu deild fyrir ofan sbr. 2. gr.
- grein
Stigagjöf
Hver viðureign skal vera þrír leikir. Fyrir hærra samanlagt skor liðsmanna í hverjum leik fyrir sig fær lið eitt stig og fyrir hærra heildarskor eftir leikina þrjá fær lið tvö stig.
Fyrir jafntefli í einum leik fær hvort lið hálft stig. Fyrir jafnt heildarskor fær hvort lið eitt stig.
Veitt eru aukastig þannig að einnig er innbyrðiskeppni leikmanna er leika í sömu röð þannig að leikmaður sem er með hærra skor fær 1 stig fyrir unninn leik.
Stigin færast á hvern leikmann fyrir sig og getur hver leikmaður fengið þrjú stig úr hverri viðureign. Ef skorið er jafnt hjá leikmönnum er veitt hálft stig til hvors um sig.
Samtals er um 14 stig að ræða fyrir hverja viðureign liða.
Staðan í deildinni raðast eftir stigum:
- Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn að stigum gilda stig úr innbyrðis viðureignum
- Ef tvö eða fleiri lið eru enn jöfn gildir heildarskor úr innbyrðis viðureignum
- Ef tvö eða fleiri lið eru enn jöfn gildir hlutkesti
- grein
Leikskýrslur
Fyrir hverja viðureign skulu fyrirliðar eða staðgenglar þeirra skrifa leikskýrslu sbr. 3. gr. Reglugerðar KLÍ um liðakeppnir.
- grein
Úrslitakeppni 1. deildar
Úrslitakeppni 1. deildar karla
Fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni þar sem spilað er skv. útsláttarfyrirkomulagi, þ.e. lið 1 keppir við lið 4 og lið 2 keppir við lið 3. Leiknar skulu tvær viðureignir, heima og heiman, og fær lægra liðið heimaleik fyrst. Ráðast úrslit af stigum liðanna eftir þessar tvær viðureignir, ef lið eru jöfn skal pinnafall ráða.
Sigurvegarar úr þessum tveim viðureignum skulu leika þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það lið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða í karlaflokki“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þrem viðureignum ráða úrslitum.
Úrslitakeppni 1. deildar kvenna
Tvö efstu liðin eftir deildarkeppnina komast í úrslitakeppni. Leika skal þrjár viðureignir heima og heiman. Liðið sem varð hærra í deildarkeppninni skal eiga heimaleik fyrst og svo til skiptis. Það lið sem hlýtur fleiri stig úr þessum þremur viðureignum hlýtur titilinn „Íslandsmeistarar liða í kvennaflokki“. Ef lið verða jöfn að stigum skal hærra pinnafall í fyrrgreindum þrem viðureignum ráða úrslitum.
- grein
Skipulag
Skipulag Íslandsmóts liða skal vera í höndum framkvæmdastjóra KLÍ sem setur upp dagskrá en mótanefnd KLÍ sér um framkvæmd móts. Framkvæmdastjóri KLÍ skal sjá til þess að staða í deildum sé birt fyrir næstu umferð.
- grein
Liðaskipti
Liðaskipti skulu fara fram samkvæmt Reglugerð KLÍ um skráningu leikmanna.
- grein
Réttur til verðlauna
Leikmenn eiga eingöngu rétt til einstaklings verðlauna í þeirri deild sem þeir leika í með sínu aðalliði, þ.e. því liði sem þeir eru skráðir í. Leikmenn sem leika í deild á grundvelli vensla eiga því ekki rétt til einstaklings verðlauna í viðkomandi deild.
Skor sem nást í úrslitakeppni eru ekki tekin með við útreikning á meðaltali né reiknuð með á lista yfir hæstu skor í leik eða seríu í mótinu.
Til að eiga kost á einstaklingsverðlaunum sem veitt eru vegna meðaltals, þarf leikmaður að hafa lokið í það minnsta 21 leik í viðkomandi deild.
Rétt til verðlauna, sem lið í heild vinnur til, hafa allir leikmenn liðsins sem hafa leikið fleiri en 21 leik í deildinni.
Eftirtalin verðlaun eru veitt í deildarkeppni:
- Deildarmeistari liða og 2. og 3. sæti liða í öllum deildum.
- Hæsti leikur, hæsta sería og hæsta meðaltal einstaklings.
- Hæsti leikur, hæsta sería og hæsta meðaltal liðs.
- Stjörnuskjöldur – fyrir flestar stjörnur liðs að meðaltali.
- Felluverðlaun – fyrir flestar fellur einstaklings að meðaltali.
- Framfaraverðlaun í hverri deild – sá einstaklingur sem tekur mestum framförum (hækkun meðaltals) á milli ára. Leikjafjöldi fyrra árs sé a.m.k. 21.
- Stigameistari deildar, fyrir flest stig að meðaltali.
- grein
Lið dregur sig úr, er vísað úr eða hættir keppni
- Dragi lið sig úr keppni á tímabilinu 15. maí til 31. júlí greiðir félagið sekt samkvæmt gjaldskrá KLÍ.
- Dragi lið sig úr keppni frá 1. ágúst til upphafs keppnistímabilsins greiðir félagið fullt þátttökugjald.
- Ef lið dregur sig úr keppni eftir að keppnistímabilið er hafið greiðir félag liðsins sekt samkvæmt gjaldskrá KLÍ. Þá eru stig þess og skor þurrkuð út. Mótherjar sem eiga leiki gegn liðinu sem vísar er úr keppni þurfa að spila sína leiki á áður auglýstum leiktíma þó svo að mótherjanum hafi verið vísað úr keppni.
Liðið fer í leikbann það sem eftir er keppnistímabilsins og ef liðið hefur keppni aftur keppnistímabilið á eftir skal það byrja í neðstu deild.
Það lið sem dregur sig úr keppni endar neðst í viðkomandi deild.
- grein
Kærufrestur
Brot gegn reglum þessum eru kæranleg. Kærufrestur er 7 dagar frá því að meint brot átti sér stað.
Áður Reglugerð um Íslandsmót liða
Breytt af stjórn KLÍ 24. september 2020
Bráðabirgðabreyting vegna Covid – Breytt af stjórn 28. janúar 2021
Breytt af stjórn KLÍ 13. september 2023
Breytt af stjórn KLÍ 15.06.2025