ÍR-PLS og KFR-Valkyrjur Bikarmeistarar liða 2024

Facebook
Twitter

Í gærkvöldi fóru fram úrslitaleikirnir í bikarkeppni liða 2024. Leikið var í Keiluhöllinni Egilshöll og áttust við í kvennaflokki lið ÍR-TT og KFR-Valkyrjur.  Viðureignin var spennandi og skildu liðin jöfn 2 – 2 og þurfti bráðabana til að fá niðurstöðu og þar höfðu KFR-Valkyrjur betur og eru því Bikarmeistarar liða 2024 í kvennaflokki.

Í karlaflokki áttust við ÍR-PLS og KFR-Lærlingar, viðureignin var mjög spennandi og fór í fjóra leiki.  Fjórði leikurinn var mjög jafn og vannst einungis á einum pinna 583 – 582 og var það ÍR-PLS sem vann og eru BIkarmeistarar liða 2024 í karlaflokki.

Liðin í öðru sæti voru því ÍR-TT og KFR-Lærlingar

Nýjustu fréttirnar