Valgeir Guðbjartsson kjörinn Varaforseti ETBF

Facebook
Twitter

Valgeir Guðbjartsson var rétt í þessu kjörinn varaforseti evrópska keilusambandsins ETBF til næstu 4 ára á ársþingi sambandsins sem fram fer í Munchen Þýskalandi. Valgeir hefur verið í stjórn ETBF í 14 ár og þar af sem framkvæmdastjóri þess s.l. 9 ár. Með því að ná kjöri sem varaforseti ETBF færast aðrar skyldur á Valgeir en hann mun m.a. núna sjá um evrópsku mótaröðina í keilu ásamt öðrum verkefnum.

Þetta er mikill heiður fyrir Valgeir og störf hans í sambandinu síðustu ár og óskar KLÍ honum til hamingju með kjörið.

Nýjustu fréttirnar