Keilusambandið auglýsir starf Íþróttastjóra KLÍ laust til umsóknar

Facebook
Twitter

KLÍ leitar að Íþróttastjóra í 50% starf og hefur starfið verið auglýst á bæði Störf.is og Alfreð. Umsóknarfrestur er til 18. júní n.k. Ráðið verður í stöðuna strax.

Aðalverkefni íþróttastjóra KLÍ er að:

  • hafa yfirumsjón með landliðsverkefnum KLÍ, afrekshópum KLÍ og fylgja þar eftir afreksstefnu sambandsins
  • vera í samskiptum við landsliðsþjálfara og landsliðsnefnd KLÍ, aðildarfélög þess, ÍSÍ og önnur sérsambönd eftir því sem við á
  • skýrslugerðir ásamt öðrum tilfallandi verkefnum

Nýjustu fréttirnar