Liðakeppni lokið á Evrópumóti U18

Facebook
Twitter

Steindór Máni Björnsson ÍR og Ágúst Ingi Stefánsson ÍR á EYC2018Í dag fóru fram seinni þrír leikirnir í liðakeppni á EYC 2018 í Álaborg í Danmörku. Stelpurnar hófu leik í morgun og léku þessa þrjá leiki á samtals 1.815 pinnum eða 151,2 í meðaltal. Enduðu þær í neðsta sæti í dag og samtals á 3.815 pinnum eða 159 í meðaltal og í 11. sæti í liðakeppni mótsins. Strákarnir tóku svo við og léku sína þrjá leiki á 2.342 eða 195,2 í meðaltal og spiluðu aðeins betur í dag en í gær. Enduðu þeir í 13. sæti í liðakeppninni, samtals með 4.526 eða 188,6 í meðaltal.

Steindór Máni er kominn í 26. sæti í All-Event keppninni með 204,7 í meðaltal og aðeins 15 pinnum frá niðurskurðinum en 24 meðaltalshæstu keilararnir leika til úrslita í þeirri keppni í lok mótsins.

Allar nánari upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess sem og á Fésbókarsíðu hópsins.

Nýjustu fréttirnar