Íslenska landsliðið á EYC2016

Facebook
Twitter

Íslenska landsliðið sem keppir á EYC2016 í Keiluhöllinni EgilshöllUm páskana fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll Evrópumót ungmenna EYC2016. Er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið hér á landi og kemur það til vegna þess hversu vel gekk að halda hér Evrópumót einstaklinga um haustið 2014. Evrópumót ungmenna er þó öllu stærra í framkvæmd því flest lið senda um nokkra keppendur í bæði pilta- og stúlknaflokki auk þjálfara og aðstoðarfólks.Alls verða um 140 þátttakendur á mótinu frá 26 Evrópuþjóðum og verða vel á annað hundrað þjálfarar og aðstoðarmenn þeim til halds og trausts.

Fyrir hönd Íslands keppa 4 piltar og 4 stúlkur en það eru þau:

  • Ágúst Ingi Stefánsson ÍR
  • Jóhann Ársæll Atlason ÍA
  • Jökull Byron Magnússon KFR
  • Þorsteinn Hanning Kristinsson ÍR

og

  • Elva Rós Hannesdóttir ÍR
  • Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir Þór (vantar á mynd)
  • Helga Ósk Freysdóttir KFR
  • Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir ÍA

Maria Bulanova frá RússlandiMeðal þátttakenda á mótinu er núverandi Evrópumeistari kvenna í fullorðinsflokki hún Maria Bulanova frá Rússlandi en hún er fædd í október 1998 og því á 18. ári. Maria keppti hér á landi á áðurnefndu Evrópumeistaramóti einstaklinga sem fram fór í október 2014. Maria sigraði á ECC2015 sem fram fór í San Marino á síðasta ári. Einnig mæta til leiks mjög sterkir keilarar frá Svíþjóð og Finnlandi svo einhverjir séu nefndir.

Mótið hefst í Keiluhöllinni Egilshöll á sunnudaginn með formlegri æfingu kl. 10 og stendur hún fram eftir degi. Allar upplýsingar um mótið, dagskrá, keppendur, skor o.fl. má finna á vef mótsins www.eyc2016.eu

Fréttir af mótinu verða einnig birtar hér og á Fésbókarsíðu Keilusambandsins.

Nýjustu fréttirnar