Breytingar/frestanir leikja á Íslandsmóti liða

Facebook
Twitter

Mótanefnd KLÍ hefur tilkynnt eftirfarandi breytingar/frestanir á leikjum á Íslandsmóti liða:

Leik ÍA-W og ÍR-KLS í 6. umferð 1. deildar karla sem leika á Í Keilusalnum á Akranesi sunnudaginn 28. október n.k. hefur verið frestað að beiðni ÍR-KLS. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um nýjan leikdag.

Leik ÍR-PLS og KFR-Lærlinga í 4. umferð 1. deildar karla sem fara átti fram í Keilhöllinni Egilshöll þriðjudaginn 16. október var frestað að beiðni ÍR-PLS vegna þátttöku Hafþórs Harðarsonar í móti á vegum KLÍ, en ekki búið að ákveða nýjan leikdag.
Leik Þórs og ÍFH-A í 5. umferð A riðils 2. deildar karla sem leika átti í Keilunni á Akureyri laugardaginn 20. október hefur verið frestað að beiðni ÍFH-A og hefur nýr leikdagur verið áveðinn laugardaginn 17. nóvember n.k. kl. 15:00.
Leikur ÍR-TT á móti KFA-ÍA í 8. umferð 1. deildar kvenna sem var á dagskránni í Egilshöllinni mánudaginn 26. nóvember hefur verið fluttur til þriðjudagsins 20. nóvember kl. 19:00 að beiðni ÍR-TT vegna þátttöku Guðnýjar Gunnarsdóttir í móti erlendis.
Leikur ÍA og ÍR-Buff í 9. umferð 1. deildar kvenna sem fara átti fram í Keilusalnum á Akranesi sunnudaginn 9. desember, hefur verið fluttur á mánudaginn 10. desember kl. 19:00 að ósk ÍR-Buff.
Sjá nánar

Nýjustu fréttirnar