Hafþór tilnefndur til Íþróttamanns Reykjavíkur 2011

Facebook
Twitter

 

 

Okkar frábæri keilari Hafþór Harðarson er einn þeirra ellefu íþróttamanna sem hlotið hafa tilnefningu til Íþróttamanns Reykjavíkur 2011.

Miðvikudaginn 4. janúar verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Reykjavíkur 2011. Þetta er í 33. sinn sem hann er kjörinn. Veittar verða viðurkenningar til ellefu íþróttamanna í reykvískum félögum fyrir frábæran árangur og mun einn þeirra hljóta útnefninguna.

Þeir íþróttamenn sem tilnefndir eru:

·         Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari frá Ármanni

·         Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður frá SR

·         Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona frá Ægi

·         Hafþór Harðarson, keilari frá ÍR

·         Hannes Þór Halldórsson, knattspyrnumaður frá KR

·         Hrafnhildur Skúladóttir, handknattleikskona frá Val

·         Jón Margeir Sverrisson, sundmaður frá Fjölni og Ösp

·         María Guðsteinsdóttir, kraflyftingakona frá Ármanni

·         Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur frá GR

·         Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona frá TBR

·         Þormóður Jónsson, júdómaður frá JR

Við óskum Hafþóri innilega til hamingju með árangurinn.

Stjórn KLÍ

 

Nýjustu fréttirnar