Lög Keilusambands Íslands

1. grein

Keilusamband Íslands (KLÍ) er æðsti aðili um öll keilumál innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

2. grein

Keilusamband Íslands er samband sérráða og héraðssambanda. Öll þau félög innan ÍSÍ er iðka, æfa og/eða keppa í keiluíþróttum geta orðið aðilar að KLÍ.

3. grein

Tilgangur KLÍ er í meginatriðum …:

  1. að hafa yfirstjórn allra keiluíþrótta innan ÍSÍ.
  2. að vinna að eflingu keiluíþrótta í landinu.
  3. að vera málsvari ÍSÍ varðandi keiluíþróttir innanlands sem erlendis.

4. grein

Málefnum KLÍ stjórna:

  1. Ársþing
  2. Stjórn KLÍ

5. grein

Ársþingið fer með æðsta vald í málefnum KLÍ. Þingið sitja fulltrúar frá þeim félögum sem mynda það. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu keppenda í keilu í ársmeðaltali, þannig að fyrir allt að 20 keppendur koma 3 fulltrúar og síðan tveir fyrir hverja 30 upp í 110 keppendur og þá einn fyrir hverja 40 þar fram yfir. Miðað skal við ársmeðaltal síðasta almanaksárs.  Einnig fær stjórn hvers héraðssambands/íþróttabandalags einn fulltrúa.  Þingið skal árlega háð fyrir lok maí. Skal boða það bréflega með minnst 6 vikna fyrirvara. Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn KLÍ minnst 4 vikum fyrir þingið. Þá skal stjórn KLÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins, ásamt tillögum og lagabreytingum sem borist hafa, í síðasta lagi 2 vikum fyrir þing. Ársþingið er lögmætt ef löglega hefur verið til þess boðað.

6. grein

Á ársþinginu hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:

  1. Stjórn KLÍ
  2. Framkvæmdastjórn ÍSÍ
  3. Fastráðnir starfsmenn KLÍ og ÍSÍ
  4. Formenn nefnda
  5. Íþróttafulltrúi ríkisins

Auk þess getur stjórn KLÍ boðið öðrum aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til. Aðeins sá sem er í félagi sem iðkar keiluíþróttir innan sérráðs eða héraðssambands er kjörgengur fulltrúi þess á ársþingið. Hver fulltrúi hefur aðeins eitt atkvæði.

Þegar langt eða dýrt er að sækja þingið eða annar fulltrúi veikist eða forfallast á síðustu stundu frá að sækja þingið, getur þingið heimilað  að fulltrúi fari með fleiri en eitt atkvæði, en aðeins með atkvæði þess aðila – sérráðs eða héraðssambands – sem hann er fulltrúi fyrir. Þó gildir þessi undanþága ekki um fulltrúa þeirra aðila sem eiga heima þar sem þingið er háð. Umboðið, sem jafnframt er beiðni til þingsins um að fulltrúi megi fara með fleiri en eitt atkvæði, verður að vera skriflegt og vera frá stjórn hlutaðeigandi sambandsaðila. Enginn fulltrúi getur farið með fleiri en tvö atkvæði.

7. grein

Aukaþing skal halda þegar helmingur sambandsaðila óskar þess. Alla boðunar- og tilkynningarfresti til aukaþings má hafa styttri en til reglulegs þings. Fulltrúar á aukaþingi eru þeir sömu og voru á næsta reglulega þingi á undan og gilda sömu kjörbréf. Þó má kjósa að nýju í stað fulltrúa sem hættur er í félaginu eða fluttur úr héraðinu eða forfallast á annan hátt.

Á aukaþingi má ekki gera lagabreytingar og ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum.

Að öðru leyti gilda um það sömu reglur og um reglulegt ársþing.

8. grein

Störf ársþings eru:

  1. Þingsetning.
  2. Kosnir fastir starfsmenn þingsins.
  3. Kosnar fastanefndir:
    1. Kjörbréfanefnd
    2. Fjárhagsnefnd
    3. Laganefnd
    4. Allsherjarnefnd
    5. Kjörnefnd
      Nefndir þessar eru skipaðar 3 mönnum hver
  4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína
  5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar
  6. Stjórnin leggur fram í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár
  7. Lagðar fram lagabreytingar þær sem fram hafa komið
  8. Teknar til umræðu aðra tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar

    ÞINGHLÉ

  9. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðslur um þær
  10. Önnur mál
  11. Kosning stjórnar, varastjórnar, fulltrúa og varafulltrúa á íþróttaþing ÍSÍ
  12. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og tveir til vara
  13. Þingslit

Fái fleiri en þeir sem kjósa á jafnmörg atkvæði, skal kjósa um þá á ný bundinni kosningu.

Verði þeir enn jafnir ræður hlutkesti. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum nema um laga-breytingar sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða viðstaddra fulltrúa. Þingið getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra fulltrúa leyft að taka fyrir mál sem komið hafa fram eftir að dagskrá þingsins var send sambandsaðilum (skv 5.gr. 3.mgr.). Ársskýrslu KLÍ sem stjórnin skal leggja fjölritaða fyrir þingið svo og ágrip af fundargerðum þingsins, skal senda framkvæmastjórn ÍSÍ og sambandsaðilum KLÍ innan tveggja mánaða frá þingslitum.

9. grein

Stjórn KLÍ fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórn KLÍ skipa 5 menn: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn.  Á sama þingi skal kjósa tvo stjórnarmenn einnig til tveggja ára.  Á næsta þingi skal kjósa tvo stjórnarmenn til tveggja ára. Skal kjósa bundinni, leynilegri kosningu.Stjórnarmenn skipta með sér störfum eftir hvert ársþing.

Á hverju þingi skal kjósa 3 menn í varastjórn til eins árs í senn, og taka þeir sæti í stjórninni ef aðalmaður forfallast. Koma þeir inn í sömu röð og þeir voru kosnir. Stjórninni er heimilt að ráða launað starfsfólk. Aðsetur stjórnarinnar er í Reykjavík.

Reikningsár KLÍ er 1. janúar til 31. desember.

10. grein

Starfssvið stjórnar KLÍ er:

  1. að vinna að eflingu keiluíþrótta í landinu
  2. að framkvæma ályktanir ársþinga
  3. að fara með málefni KLÍ milli ársþinga
  4. að semja leikreglur og reglugerðir fyrir keiluíþróttir
  5. að senda sambandsstjórn og framkvæmdastjórn ÍSÍ lögboðnar skýrslur og tilkynningar
  6. að senda aðildarfélögum fundargerðir stjórnar KLÍ
  7. að líta eftir því að lög og reglugerðir KLÍ séu haldin
  8. að koma fram erlendis fyrir hönd keiluíþróttarinnar í landinu

11. grein

Formaður KLÍ boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.

12. grein

Nefndir á vegum KLÍ með úrskurðarvald.

Stjórn KLÍ skal á hverju ári skipa þrjá aðila í hverja af eftirfarandi nefndum og skal formaður hverrar nefndar skipaður sérstaklega:

  • Aganefnd
  • Mótanefnd
  • Dómaranefnd

Nefndir á vegum KLÍ skulu starfa skv. lögum og reglugerðum KLÍ.

13. grein

Vald nefnda á vegum KLÍ.

Aganefnd skal starfa skv. lögum og reglugerðum KLÍ og vera þar til bær úrskurðaraðili um öll þau deiluefni sem ekki eru sérstaklega falin öðrum í reglugerðum KLÍ.

Mótanefnd skal starfa skv. lögum og reglugerðum KLÍ og vera þar til bær úrskurðaraðili um þau efni sem henni er sérstaklega falið í reglugerðum KLÍ.

Dómaranefnd skal starfa skv. lögum og reglugerðum KLÍ og sjá um skipulag og framkvæmd dómgæslu í mótum sem haldin eru á vegum KLÍ.

Um hæfi nefndarmanna til úrskurða í einstaka málum skal farið eftir hæfisreglum stjórnsýslulaga. Sé nefndarmaður vanhæfur til meðferðar máls skal stjórn KLÍ skipa annan aðila í hans stað í því tiltekna máli.

Unnt er að kæra framangreinda úrskurði nefnda á vegum KLÍ til dómstóls ÍSÍ.

14. grein

Sérráðin (héraðssambönd) eru tengiliðir milli félaga sinna og stjórnar KLÍ. Þau skulu og senda henni skýrslur um mót sem haldin eru innan umdæmisins. Þessar skýrslur skulu sendar innan mánaðar eftir að mótinu lauk. Ársskýrslur sínar um störf sérráðsins (héraðs­sambands­ins) og tölu iðkenda keiluíþrótta í umdæminu skulu þau senda stjórn KLÍ fyrir 1. ágúst ár hvert.

15. grein

KLÍ skal, í samráði við hlutaðeigandi héraðssambönd, vinna að stofnun nýrra sérráða.

16. grein

Stjórn KLÍ hefur frjálsan aðgang að öllum keilumótum og sýningum sem fram fara innan vébanda KLÍ. Einnig á hún rétt á að sitja aðalfundi sérráða og héraðssambanda sem eru aðilar að sambandinu.

17. grein

Heiðursfélaga KLÍ má stjórn kjósa ef hún er einhuga um það.

18. grein

Tillögur um að leggja KLÍ niður má aðeins taka fyrir á lögmætu ársþingi. Til þess að samþykkja þá tillögu þurfa minnst 3/4 atkvæðisbærra fulltrúa að greiða henni atkvæði. Hafi slík tillaga verið samþykkt skal gera öllum sambandsaðilum grein fyrir henni í þinggerðinni og tillagan látin ganga til næsta reglulega þings. Verði tillagan þá samþykkt aftur er það fullgild ákvörðun um að leggja KLÍ niður. Skal þá afhenda ÍSÍ eignir KLÍ til varðveislu.

19. grein

Lög þessi öðlast gildi þegar sambandsstjórn ÍSÍ hefur samþykkt þau.

 

Lögin voru samþykkt af sambandsstjórn 1992
Breytt á þingi KLÍ 2. maí 2012
Breytt á þingi KLÍ 16 . maí 2013
Breytt á þingi KLÍ 22. ágúst 2020
Breytt á þingi KLÍ 15. maí 2021