Meðaltal

Keilusambandið gefur út Allsherjarmeðaltal, en meðaltalið er notað í viðurkenndum A og B mótum til að skipta í flokka eða reikna forgjöf fyrir leikmenn.

Einnig er gefið út Utandeildarmeðaltal sem reiknað er á sama máta og Allsherjarmeðaltal, en byggir aðeins á leikjum í utandeild.

Til meðaltal teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí.

Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“. Þeir leikmenn sem ekki hafa leikið leik sem telur til meðaltals næstu 24 mánuði á undan eru ekki birtir á þessum lista. Hinsvegar má fá upplýsingar um skráð meðaltal þeirra, líkt og annarra keilara, með því að fletta viðkomandi upp undir Leikmenn hér til hliðar.

Tölfræði einstakra keilara

Nálgast má upplýsingar um þróun meðaltals, síðustu leiki, helstu afrek og fleira hér að neðan.

Allsherjarmeðaltal

31. mars 2024
Halvar Hagen Nilsen219,00
Hafþór Harðarson217,84
Jón Ingi Ragnarsson215,87
Patryk Preus215,50
Mikael Aron Vilhelmsson214,04
Gunnar Þór Ásgeirsson213,70
Hlynur Örn Ómarsson211,97
Adam Pawel Blaszczak210,88
Skúli Freyr Sigurðsson209,05
Hinrik Óli Gunnarsson205,97
Allt meðaltalið (PDF)

Eldri meðtaltöl (PDF):

Utandeildar meðaltal

31. mars 2024
Adam Pawel Blaszczak221,56
Jón Ingi Ragnarsson219,44
Einar Már Björnsson215,94
Hlynur Örn Ómarsson209,24
Róbert Dan Sigurðsson201,62
Gústaf Smári Björnsson199,83
Ísak Birkir Sævarsson192,79
Þórarinn Már Þorbjörnsson186,95
Linda Hrönn Magnúsdóttir184,33
Ásgeir Karl Gústafsson183,75
Allt meðaltalið (PDF)

Eldri meðtaltöl (PDF):