Landslið Íslands fyrir Evrópumót ungmenna U18, EYC2026 valið

Landsliðsnefnd KLÍ hefur fengið þau Mattias Möller frá Svíþjóð og Katrínu Fjólu Bragadóttur úr KFR til að taka að sér Evrópumót ungmenna U18 sem fram fer í Berlín um komandi páska, EYC2026. Hafa þau valið liðin sem taka þátt en samkvæmt venju eru það 4 piltar og 4 stúlkur sem hvert land getur sent á mótið.

Fyrir hönd Íslands keppa eftirfarandi aðilar:

Stúlkur

  • Alexandra Erla Guðjónsdóttir
  • Bára Líf Gunnarsdóttir
  • Julia Sigrún Filippa Lindén
  • Særós Erla Jóhönnudóttir

Piltar:

  • Ásgeir Karl Gústafsson
  • Svavar Steinn Guðjónsson
  • Tristan Máni Nínuson
  • Þorgils Lárus Davíðsson

Þjálfarar:

  • Mattias Möller
  • Katrín Fjóla Bragadóttir

Framundan hjá Landsliðsnefnd er síðan að ganga frá skipulagi landsliðsmála og velja landsliðsþjálfara allra landsliða KLÍ. Er von á niðurstöðum í því máli á næstu vikum og verða þau mál kynnt sérstaklega hér á vef Keilusambandsins.

Arnar Davíð og Linda Hrönn eru keilarar ársins 2025

Arnar Davíð Jónsson

Arnar Davíð hefur átt mjög gott ár á alþjóða vettvangi. Hann varð í 7. sæti á Evróputúr Keilara. Hann sigraði á úrtökumóti PBA Sweden Scorpion Open sem tryggði honum þátttökurétt á World Series of Bowling 2026. Arnar hefur verið virkur þátttakandi á PBA s.l. tvö ár og hefur sýnt að hann á heima meðal þeirra bestu í greininni. Nafn hans í Keilu heiminum er orðið það þekkt að undir lok árs var honum boðið á stórt mót í Kóreu.

Linda Hrönn Magnúsdóttir

Linda Hrönn átti einstaklega gott keilu ár 2025. Hún varð í 3. Á Íslandsmóti eintaklinga og í öðru sæti yfir konur sem þátt tóku Reykjavíkurleikunum, en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Hún varð Íslands og Bikarmeistari með liði sínu ÍR-TT. Hún varð í öðru sæti á Íslandsmóti para og undir lok árs þá var hún í liði íslands sem tók brons  á HM 65+ sem haldið var í Reno, USA. Einnig vann hún til gullverðlauna ásamt liðsfélaga sínum og vinkonu Guðnýu Gunnarsdóttur í tvímenningi á Tripple crown sem haldið var í Stroud Englandi á árinu.

Arnar Davíð hlýtur starfslaun afreksíþróttafólks

Nú fyrir stundu lauk blaðamannafundi hjá ÍSÍ varðandi fyrstu úthlutun starfslauna til afreksíþróttafólks, en alls hljóta 38 íþróttamenn og konur laun frá ríkinu.  Laununum er skipt niður í tímabil, 12 – 36 mánuði, og fær það íþróttafólk sem stefnir á Ólympíuleika úthlutun í lengstan tíma.  
 
Okkar maður Arnar Davíð Jónsson fékk laun til 12 mánaða með möguleika á framlengingu ef vel gengur.  
 
KLÍ óskar Arnari Davíð innilega til hamingju með að vera kominn í þennan hóp fremsta afeksíþróttafólks Íslands.

Skráning á Reykjavíkurleikana í keilu 2026 er hafin

Búið er að opna á skráningu í keilumótið á Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum 2026 – Reykjavik International Games. Eins og síðustu ár þá verður mótið hluti af Evróputúrnum og í flokki Satelite móta. Mótið hefst með Early bird riðlum helgina 17. og 18. janúar. Úrslit mótsins fara síðan fram sunnudaginn 25. janúar.

Allar nánari upplýsingar um mótið má finna á vef þess www.rigbowling.is

Einnig eru upplýsingar á Fésbókarsíðu mótsins sem og Instagram reikningi þess.

Kvennalandslið Íslands á HM

Þann 24. nóvember hefst HM landsliða en að þessu sinni er keppt í Hong Kong. Íslenska kvennalandsliðinu var boðin þátttaka og heldur liðið út á næstu dögum. Keppt verður í einstaklingskeppni, tvímennings, þrímennings og í 5 manna liðum. Auk þess verður að vanda Masters keppni meðaltalshæstu keppenda á mótinu.

Fyrir Íslands hönd keppa þær:

  • Ágústa Kristín Jónsdóttir
  • Hafdís Pála Jónasdóttir
  • Katrín Fjóla Bragadóttir
  • Linda Hrönn Magnúsdóttir
  • Nanna Hólm Davíðsdóttir
  • Olivía Steinunn Clara Lindén

Þjálfari liðsins verður Skúli Freyr Sigurðsson

Á vefsíðu mótsins má nálgast allar upplýsingar um keppnisdaga, úrslit mótsins, streymi og aðrar áhugaverðar upplýsingar eins og olíuburðinn sem varð fyrir valinu.

Dregið var í Bikarkeppni liða – 32 liða

Fyrir deildarleikina í gærkvöldi var dregið í Bikarkeppni liða, (32 liða úrslit) en leika þarf 5 viðureignir til að koma tölunni í 16 lið.  21 lið hafði skráð sig til keppni í bikar karla.

Leikirnir verða leiknir þann 07.12.2025 kl. 09:00 eftirtaldar viðureignir komu úr hattinum:

ÍR-Fagmaður  –  KFR-Lærlingar

ÍR-Öðlingar  –  ÍR-Krókar

ÍR-Naddóður  –  ÍA-W

ÍR-A  –  KFR-Grænu töffararnir

ÍR-Broskarlar  –  ÍA-B

Fyrsta evrópumót Grand seniora, liðið hefur verið valið.

Landsliðsnefnd, þar sem ekki hefur verið skipaður yfirþjálfari, hefur valið liðin sem keppa fyrir hönd íslands á fyrsta Evrópumóti Grand Seniora (65+), en mótið fer fram í Vín, Austurríki dagana 30. janúar til 8. febrúar 2026.

Liðin eru þannig skipuð:

Karlar:

Björgvin Magnússon

Birgir Guðlaugsson

Sveinn Þrastarson

Þórarinn Már Þorbjörnsson

 

Konur:

Bára Ágústsdóttir

Guðný Gunnarsdóttir

Herdís Gunnarsdóttir

Linda Hrönn Magnúsdóttir

 

Landsliðsnefnd hefur beðið Hörður Ingi Jóhannsson að hafa umsjón og þjálfa liðin.

Hafþór og Gunnar Þór Íslandsmeistarar í tvímenningi

Íslandsmeistaramóti í tvímenningi lauk í dag með sigri Hafþórs Harðarsonar (ÍR) og Gunnars Þórs Ásgeirssonar (ÍR). Þeir voru efstir eftir undankeppni gærdagsins og héldu forustunni í gegnum undanúrslitin. Mikael Aron Wilhelmsson (ÍR) og Ásgeir Karl Gústafsson (KFR) voru í öðru sæti eftir undanúrslitin og mættu því Hafþóri og Gunnari í úrslitum. Úrslitin voru æsispennandi og réðust ekki fyrr en í lokaramma í fjórða leik. Í þriðja sæti urðu feðgarnir Sigurður Þorsteinn Guðmundsson (KFA) og Mattías Leó Sigurðsson (KFA).

Staðan eftir undanúrslit

Staðan eftir forkeppni