Íslandsmót para 2024

Alls tóku 21 par þátt í mótinu.  Í milliriðil fóru 8 efstu pörin úr forkeppninni sem leikin var laugardaginn að loknum milliriðlinum þá léku tvö efstu pörin til úrslita. Það voru þau Linda Hrönn Magnúsdóttir og Gunnar Þór Ásgeirsson annarsvegar og hinsvegar Hafdís Pála Jónasdóttir og Hafþór Harðarson.  Við tók maraþon úrslitakeppni sem endaði með sigri Hafdísar og Hafþórs.

 

Mark Heathorn yfirþjálfari hættir störfum fyrir KLÍ

Keilusamband Íslands og yfirþjálfari landsliða, Mark Heathorn hafa komist að
samkomulagi um starfslok yfirþjálfara fyrir sambandið. Báðir aðilar hafa sammælst um
að þetta fyrirkomulag henti hvorki vel fyrir íslenskt keilufólk né Mark sjálfan. Ákvörðunin
var tekin á sameiginlegum grundvelli til að tryggja möguleika beggja aðila til að grípa ný
tækifæri sem henta betur þó með möguleika á að semja um einstaka verkefni í
framtíðinni. Keilusambandið vill þakka Mark fyrir hans störf, hollustu við hlutverk sitt og
þann árangur sem náðst hefur á þessum 10 mánuðum sem hann hefur starfað fyrir
sambandið. Mark vill þakka Jónu og stjórn hennar fyrir tækifærið með þessari ráðningu
og minningarnar sem skapast hafa á mótum og við störf hans á Íslandi, hann óskar
einnig keilufólki íslands góðs gengis í framtíðinni.
Skúli Freyr hefur starfað náið með Mark við undirbúning þeirra verkefna sem framundan
eru hjá landsliðum, bæði ungmenna og karla. Því hefur stjórn samið við Skúla um að
taka við tímabundið og ljúka verkefnum og undirbúningi á þeim forsendum sem þeir
höfðu þegar unnið sameiginlega að. Mark mun einnig vera til staðar fyrir Skúla leiti hann
eftir því og mun val á aðstoðarþjálfurum fylgja því skipulagi sem unnið hafði verið að.
Þetta er gert til að tryggja stöðugleika í undirbúningi og skipulagi meðan stjórn gefur sér
smá tíma til að ákveða næstu skref í uppbyggingu landsliða Íslands í keilu.

 


Iceland Bowling Federation and Head Coach Mark Heathorn announce an early
termination of their contract. Both parties have agreed that the structure in place is not
the ideal solution for the bowlers of Iceland or for Mark. With this in mind both parties
can pursue other opportunities as they see fit, with the possibility of one off
arrangements in the future. KLÍ would like to thank Mark for his work, dedication to the
role, and the improvements and success he has achieved in the 10 months with us.
Mark would like to thank Jona and her board for the opportunity afforded to him in this
appointment, and for the memories created at Championships and whilst working in
Iceland. He also stated that he wishes Iceland Bowlers every success in the future. 
Skúli Freyr has worked closely with Mark in the preparation of the upcoming projects for
the national teams, both youth and men. Therefore, the board has agreed with Skúli to
temporarily take over and complete the projects and preparations on the basis that they
had already worked together on. Mark will support Skúli if needed and assistant coaches
will also be chosen according to the plan already made by Mark and Skúli. This is done
to ensure stability in preparation and organization while the board gives itself some time
to decide the next steps in the development of the Icelandic national bowling teams.

Íslandsmót Para 2024

Íslandsmót para verður haldið í Keiluhöllinni Egilshöll helgina 5 & 6.okt 2024,
sjá reglugerð um Íslandsmót para
Skráning hér

Vinsamlegast skráið nöfn beggja leikmanna:

Annar aðili er sá sem að skráir sig og er hinn settur inn í sem athugasemd.


Olíuburður er: Sunset Strip – 42 fet 

 

Forkeppni:

Laugardaginn 5.okt kl. 09:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Efstu 8 pörin halda áfram í milliriðil.

Verð í forkeppni kr. 14.000,- pr. par

Milliriðill :

Sunnudaginn 6.okt kl. 09:00

Spilaðir eru 6 leikir.

Efstu 2. pörin leika til úrslita strax að loknum milliriðli.

Verð í milliriðil i kr. 14.000,- pr. par

Úrslit – strax að loknum milliriðli:

Verð í úrslit kr. 7.000,- pr. par

Tvö stigahæstu pörin leika síðan til úrslita, það par sem er efst að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig).
Jafnteflis viðureignir skal útkljá með því að pörin kasta einu kasti hvert og ræður samtala parsins úrslitum. Ef enn er jafnt skal kasta aftur og endurtaka þar til úrslit liggja fyrir.
Ef jafnt er í síðasta leik skal hver leikmaður kasta einu kasti.
Ef enn er jafnt skal kasta öðru kasti og halda þannig áfram þar til úrslit liggja fyrir.

Sigurvegararnir hljóta titilinn „Íslandsmeistarar para 2024″.

Minnt er á að forkeppnin veitir stig fyrir Úrvalsdeildina í keilu sem haldin verður í samstarfi við Stöð 2 sport. 

Mótanefnd KLÍ
Nefndin áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.

Meistarakeppni KLÍ 2024

Meisarakeppni KLÍ 2024 fór fram 17.09.2024 og áttust við annrsvegar ÍR-PLS og KFR-Lærlingar í karlaflokki og hinsvegar KFR-Valkyrjur og ÍR-TT í kvennaflokki.

Leikur ÍR-PLS og KFR-Lærlinga var sennandi allt til loka og endaði viðureignin 1903 – 1871 fyrir ÍR-PLS það eru því ÍR-PLS sem eru Meistara meistaranna árið 2024 í karlaflokki.

 

Leikur KFR-Valkyrja og ÍR-TT var einnig spennandi allt til loka og endaði viðureignin  1607 – 1571 fyrir KFR-Valkyrjur.  Það eru því KFR-Valkyrjur sem eru Meistarar meistaranna árið 2024 í kvennaflokki.

 

 

Utandeild veturinn 2024-2025

Utandeild KLÍ verður starfrækt veturinn 2024-2025 líkt og undan farin ár.  Leikið verður með sama sniði og áður þ.e. 3 leika hverju sinni og það eru 3 leikir á hverju leikkvöldi. Í hverju liði geta verið allt að 8 leikmenn.  Leikið verður á miðvikudagskvöldum og hefst keppni kl. 19:30.  Leikið er einu sinni í mánuði og er riðlum skipt niður á miðvikudaga.  Tekið er við skráningu liða á netfangið [email protected]

Utandeildin 2024-2025

Triple Crown U19 og U16

Hópur barna og ungmenna þ.e. U19 og U16 lið Íslands tekur þátt í árlegu móti Triple Crown, en mótið fer að þessu sinni fram í Dublin Írlandi og verður leikið í keilu salnum Leisureplex í Blanchardstown.  Dagskrá mótsins má sjá hér. 

Fyrir hönd íslands keppa:

U19 Stúlkur

Olivia Clara Lindén

Nína Rut Magnúsdóttir

Viktoría Hrund Þórisdóttir

Hannah Corella Rosento

 

U19 Piltar

Mikael Aron Vilhelmsson

Matthías Ernir Gylfason

Tómas Freyr Garðarsson

Tristan Máni Nínuson

 

U16 Stúlkur

Alexandra Erla Guðjónsdóttir

Bára Líf Gunnarsdóttir

Júlía Sigrún Lindén

Særós Erla Jóhönnudóttir

 

U16 Piltar

Evan Julburom

Svavar Steinn Guðjónsson

Viktor Snær Guðmundsson

Þorgils Lárus Davíðsson

 

Áfram Ísland

 

Dagskrá leiktímabilsins 2024-2025

Dagskrá leiktímabilsins 2024-2025 hefur nú verið birt á vef KLÍ

Ég vil eindregið hvetja alla til að yfirfara dagskrána og senda athugasemdir á [email protected] ef einhverjar eru.  Eins vil ég biðja fyrirliða að skoða leiki sinna liða og gera ráðstafanir strax ef breyta á leikdögum eða vöktum.  Reglur um frestanir leikja eru eftirfarandi:

4. grein

Frestanir
Viðureignum verður ekki frestað nema vegna veikinda, samgönguerfiðleika vegna veðurs, eða sökum þess að leikmaður er fjarverandi á vegum KLÍ. Sækja þarf um frestun að lágmarki 24 klst. áður en upprunaleg viðureign átti að hefjast. Sé fallist á frestun mun mótanefnd tilkynna liðum um nýjan leikdag.

Þrátt fyrir 1. mgr. getur lið óskað eftir frestun með að lágmarki tveggja vikna fyrirvara. Lið skulu koma sér saman um nýjan leikdag og tilkynna mótanefnd um nýjan leikdag eigi síðar en viku áður en upprunaleg viðureign átti að hefjast. Ef lið hafa ekki komið sér saman um nýjan leikdag viku áður en upprunaleg viðureign átti að hefjast skal mótanefnd setja á nýjan leikdag.

Lið sem óskar eftir frestun skv. 2. mgr. er óheimilt að óska eftir frestun á sömu viðureign. Þá má liðið eingöngu nota þá leikmenn sem löglegir voru með liðinu þegar upprunaleg viðureign átti að fara fram.

Óheimilt er að fresta leikjum nema í þeim tilvikum sem 1. og 2. mgr. kveða á um.

Sækja skal um frestanir innan viðeigandi tímamarka með tölvupósti á netfangið [email protected]

Síðasta umferð hverrar deildar skal fara fram á sama tíma. Öllum öðrum leikjum skal lokið fyrir næst síðustu umferð.

World Youth 2024

Nú hafa U21 strákarnir hafið leik á World Youth 2024 sem fram fer í Suður Kóreu.  Nú er forkeppni í sigles lokið og ljóst að þeir Ísak Birkir Sævarsson (9) og Hinrik Óli Gunnarsson (15) hafa tryggt sér sæti í úrslitum.  Alls eru 140 keppendur og því stórkostlegur árangur að eiga 2 í topp 16.  Úrslitin verða svo leikin í kvöld 11.07.2024 kl. 24:00 að Íslenskum tíma. Fylgjast má með keppninni hér.  Allir íslensku keppendurnir eru að spila flotta keilu Mikael Aron Vilhelmsson (37) og Aron Hafþórsson (87).

 
Áfram Ísland

Úrvalsdeildin í keilu á Stöð 2 sport næsta vetur

Leikfyrirkomulag

Í samstarfi við Stöð 2 sport verður skemmtileg nýjung á næsta tímabili, Úrvalsdeildin í keilu.

Fyrirkomulagið verður þannig að tólf spilurum verður boðið að keppa í Úrvalsdeildinni í keilu sem verður haldin í beinni útsendingu á Stöð 2 sport á sunnudagskvöldum frá 16. febrúar til 9. mars á næsta ári.

Keppt verður í 3 riðlum sem skiptast niður á fyrstu þrjú kvöldin. Fjórða kvöldið verður svo úrslitakvöld. Dregið skal í riðla en að lágmarki einn aðili af hvoru kyni skal vera í hverjum riðli.

Riðlakeppnin spilast þannig að allir leika við alla og er hver viðureign heildarskor úr tveimur leikjum. Skipt verður um brautarsett eftir fyrri leikinn. Gefin eru 2 stig fyrir sigur og 1 stig fyrir jafntefli. Efsti maður úr hverjum riðli fer beint í úrslit en annað sætið fer í undanúrslit. Ef jafnt er að stigum ræður heildarskor úr öllum leikjum og þar á eftir innbyrðis viðureignir Ef enn er jafnt skal leikinn bráðabani sem spilast þannig að kasta skal upphafskasti þar til úrslit liggja fyrir, dregið skal á braut upphafsköstin skulu köstuð.

Úrslitakvöldið spilast þannig:

Þeir sem spila til undanúrslita leika einn leik á brautum 21-22 og skal hæsta skor úr þeim leik spila til úrslita sem fjórða sæti. Ef skor leikmanna er jafnt skal leikinn bráðabani sem spilast þannig að kasta skal upphafskasti þar til úrslit liggja fyrir. Bráðabani skal hefjast á braut 21 og skipt skal á milli brauta ef enn er jafnt.   

Þeir sem unnu sína riðla skulu samtímis og undanúrslitin eru spiluð leika einn leik á brautum 19-20. Hæsta skor úr þeim leik kemur inn í úrslitin sem fyrsta sæti, næst hæsta skor úr þeim leik kemur inn í úrslitin sem annað sæti og þriðja hæsta skor úr þeim leik kemur inn í úrslitin sem þriðja sæti. Ef skor leikmanna er jafnt spilast bráðabani eftir sama fyrirkomulagi og undanúrslitin nema á brautum 19-20.

Ekki er olíuborið á milli.

Úrslitin skulu spiluð með 4-3-2-1 útsláttarfyrirkomulagi. Fjórða sæti mætir þriðja sæti. Sigurvegari úr þeim leik mætir öðru sæti og sigurvegari úr þeim leik mætir fyrsta sæti. Sigurvegari úr þeim leik telst sigurvegari Úrvalsdeildarinnar í keilu. Efra sætið skal velja á hvorri brautinni það spilar.

 

Þátttökuréttur

  1. Íslandsmeistari karla 2024
  2. Íslandsmeistari kvenna 2024
  3. Íslandsmeistari karla 2023. Ef sami karl og vann 2024 þá fer sætið til efsta karls á stigalista skv. reglu 7.
  4. Íslandsmeistari kvenna 2023. Ef sami karl og vann 2023 þá fer sæti til efstu konu á stigalista skv. reglu 7.
  5. Sigurvegari RIG 2024 ef spilari á Íslandi. Ef ekki spilari á Íslandi eða aðili þegar kominn með þátttökurétt þá fer sæti eftir reglu 7.
  6. Sigurvegariþessa boðsmóts árið áður – fyrsta mótið eða ef aðili er þegar kominn með þátttökurétt þá fer sæti eftir reglu 7.
  7. Fjórir stigahæstu leikmennirnir.
  8. Stigahæsti u21 leikmaðurinn
  9. Ef ekki eru komnir að lágmarki þrír leikmenn af hvoru kyni skal einu sæti úthlutað til þess kyns sem hallar á til efsta sætis af því kyni á stigalista skv. reglu 7. Ef komnir eru þrír leikmenn af hvoru kyni skal sætinu úthlutað til efsta leikmanns skv. reglu 7.

 

Stigalistinn er þannig að veitt eru stig fyrir 16 efstu sætin í forkeppnum RIG, Íslandsmóti einstaklinga án forgjafar, Íslandsmóti para og Íslandsmótinu í tvímenning. Veitt eru 16 stig fyrir fyrsta sætið, 15 stig fyrir annað sætið og svo koll af kolli. Forkeppni í Íslandsmóti para og tvímenningi telja 0,75% miðað við forkeppni í RIG og Íslandsmóti einstaklinga.  Bæta skal við 48 pinnum við skor kvenmanna í forkeppni Íslandsmóti para við röðun í sæti.