Arnar Davíð í 19.sæti í Svíþjóð

Arnar Davíð Jónsson keilari úr KFR hafnaði á nýliðinni helgi í 19.sæti á Storm Lucky Larsen Masters sem fram fór í Helsingborg í Svíþjóð.
Mótið er hluti af heimsmótaröðinni og voru margir sterkir keppendur með í mótinu þar af fjölmargir sem komu frá Bandaríkjunum af atvinnumannatúrnum þar. Arnar spilaði mjög vel í forkeppninni fyrir úrslitin en hann endaði í 21.sæti og tryggði sig þannig áfram í úrslitin.
Hann byrjaði vel í úrslitunum og tryggði sig áfram í næsta þrep en þar endaði mótið fyrir Arnari. Hann var í góðum málum eftir 4 leiki en því miður lenti hann í vandræðum seinustu tvo leikina og datt hann niður í 19.sæti en 18 manns fóru áfram.
Gríðarlega svekkjandi endir en frábær frammistaða samt sem áður en þetta er líklega sterkasta mót sem Arnar hefur keppt á til þessa.

Heimsmeistaramóti öldunga í Las Vegas lokið

HM öldunga 50+ lauk í gærkvöldi að staðartíma í Las Vegas en þá var leikið til úrslita í Masters keppninni. Um síðastliðna helgi var leikið í liðakeppni þar sem íslensku keppendurnir léku annarsvegar með rússnesku keppendunum í karlaflokki en þeim ísraelsku í kvennaflokki.

Þórarinn Már Þorbjörnsson varð í 79. sæti af 159 sé tekið mið af meðaltali allra leikja einstaklinganna í keppninni með 191,06 í meðaltal. Guðmundur Sigurðsson varð í 118. sæti með 182,72 í meðaltal.

Guðný Gunnarsdóttir varð í 70. sæti af 101 keppendum í kvennaflokki með 172,94 í meðaltal og Linda Hrönn Magnúsdóttir varð í því 72. með 172, 67 í meðaltal.

Næst mót í flokki öldunga 50+ verður EM í Vín Austurríki í lok janúar á komandi ári.

Tore Torgersen frá Noregi varð efstur karla með 225,83 í meðaltal í öllum keppnum en Leanne Hulsenberg frá Bandaríkjunum varð efst kvenna með 215,67 í meðaltal.

Úrslit mótsins urðu þessi:

  • Einstaklingskeppni karla – Lennie Boresch Bandaríkjunum
  • Einstaklingskeppni kvenna – Yumiko Yoshida Japan
  • Tvímenningur karla – Lennie Boresch og Ron Mohr Bandaríkjunum
  • Tvímenningur kvenna – Leanne Hulsenberg og Tish Johnsson Bandaríkjunum
  • Liðakeppni karla – Lið Bandaríkjanna
  • Liðakeppni kvenna – Lið Bandaríkjanna
  • Masterskeppni karla (24 meðaltalshæðstu leikmenn mótsins) – Tomas Leandersson Svíþjóð
  • Masterskeppni kvenna – Leanne hulsenberg Bandaríkjunum

Lið Íslands á mótinu skipuðu þau:

  • Guðmundur Sigurðsson ÍA
  • Þórarinn Már Þorbjörnsson ÍR
  • Guðný Gunnarsdóttir ÍR
  • Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR

Þjálfari og fararstjóri var Jóhann Ágúst Jóhannsson

Allar upplýsingar um HM mótið má finna á vefsíðu mótsins.

Linda og Guðný með ísraelsku keppendunum í liðakeppninni

Guðmundur og Þórarinn með rússnesku keppendunum í liðakeppninni.

Brynjar Lúðvíksson & Málfríður Jóna Freysdóttir Reykjavíkur meistarar m/forgjöf 2019

Laugardaginn 7.sept var haldið Reykjavíkurmót einstaklinga m/ forgjöf
Í ár voru það 12 konur og 16 karlar sem að hófu leik.
Spilaðir voru 6 leikir og eftir það far farið í step lader meðal efstu 5 keppenda í hvorum flokk.
Skor úr mótinu má sjá hér fyrir neðan:


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Opna Reykjavíkurmótið í keilu 2019
Án forgjafar verður laugardaginn 14.sept kl 11:00

Mótið fer þannig fram að leikin er ein 6 leikja sería, skipt um brautarpar eftir hvern leik. Að lokinni seríunni far 5 efstu í SteppLadder úrslitakeppni þar sem 5. sætið keppir við 4. og þarf að vinna einn leik til að komast áfram.

Sigurvegarinn verður því Reykjavíkurmeistari í keilu 2019 

Verð í mótið er aðeins 6.000,- ATH að það er ekki posi á staðnum

Skráning stendur yfir til kl 22:00 fimmtudaginn 12.sept skráning hér

Olíuburður verður sá sami og í deild

 

 

 

 

 

Frá HM öldunga 50+ í Las Vegas

Frá Bandaríkjahreppi er það að frétta að einstaklings- og tvímenningkeppnum er lokið. Guðný Gunnarsdóttir og Linda Hrönn Magnúsdóttir léku á fimmtudaginn í einstaklingskeppninni. Guðný endaði í 51. sæti með 180.33 í meðaltal og Linda endaði í 74. sæti með 171,0 í meðaltal. Einstaklingkeppnina sigraði Yumiko Yoshida frá Japan en hún lagði hina sænsku Susanne Olson í úrslitaleiknum.

Einstaklingkeppni karla fór eins og áður hefur komið fram þannig að Þórarinn Már Þorbjörnsson varð í 32. sæti með 204,0 í meðaltal en Guðmundur Sigurðsson varð í 87. sæti með 187,83 í meðaltal. Sigurvegari keppninnar varð svo Lennie Boresch frá Bandaríkjunum en hann lagði hinn kanadíska Michael Snow í úrlsitaleiknum.

Tvímenningskeppnin fór þannig að þeir Guðmundur og Þórarinn enduðu í 45. sæti með 191,67 í meðaltal. Sigurvegarar karlakeppninnar var lið Bandaríkjanna 2 þeir Lennie Borsch og Ron Mohr en þeir lögðu lið Svíþjóðar 2 þá Tomas Leanderson og Raymond Janssonmeð 457 gegn 399.

Tvímenningskeppni kvenna fór þannig að þær Guðný og Linda enduðu í 44. sæti með 165,08 í meðaltal. Sigurvegarar keppninnar urðu þær Leanne Hulsenberg og Tish Johnson í liði Bandaríkjanna 1 en þær lögðu lið Þýskalands 2 þær Martina Beckel og Bianca Volkl-Brandt með 443 gegn 372.

Núna þegar þetta er sett inn er að fara af stað liðakeppni karla. Þeir Guðmundur og Þórarinn leika með Rússunum Viktor Krasavkin og Alexandr Pashkovskii og hefja þeir leik kl. 10 að staðartíma eða kl. 17 að íslenskum og byrja á brautum 53-54. Þær Linda og Guðný leika svo kl. 21. að íslenskum eða kl. 14 að staðartíma. Þær leika með þeim Sara Aviram Harlap og Ziva Gur frá Ísrael. Byrja þær á brautum 25-26.

Allar upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess.

Einstaklingskeppni karla á Heimsmeistaramóti öldunga 50+

Einstaklingskeppni karla á HM öldunga 50+ var leikinn í gær, miðvikudag. Guðmundur Sigurðsson ÍA og Þórarinn Már Þorbjörnsson ÍR létu í fyrri riðli keppninnar. Þórarinn endaði með 1.224 pinna eða 204 í meðaltal og varð í 17. sæti í riðlinum og alls í 32. sæti þegar báðir riðlar voru búnir. Guðmundur lék leikina 6 á 1.127 pinnum eða 187,83 sem skilaði honum í 43. sæti síns riðils og alls í 87. sæti í heildarkeppninni. Alls eru 159 keppendur í karlaflokki.

Efstur í einstaklingkeppninni varð Norðmaðurinn Tore Thorgersen en hann lék leikina 6 á 1.394 pinnum eða 232,3 í meðaltal. Finninn Mika Koivuniemi eða Major Mika varð í 6. sæti og Bandaríkjamennirnir Parken Bohn III og Walter Ray Williams Jr. urðu í 8. og 43. sæti. Úrslitakeppnin fer fram í lok dags þegar konurnar hafa lokið sínum leikjum.

Í dag fimmtudag kl. 09 að staðartíma eða kl. 16 að íslenskum tíma leika þær Guðný Gunnarsdóttir ÍR og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR. Byrja þær á braut 26, fara svo á þessar brautir: 30 / 38 / 40 / 50 og loks 4

Þeir Guðmundur og Þórarinn leika síðan í tvímenningskeppninni í dag kl. 15:30 að staðartíma eða kl. 22:30.

Allar upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess.

Ísland keppir á HM öldunga 50+

Í dag hefst keppni á Heimsmeistaramóti öldunga – 50+ en keppni fer fram á South Point hótelinu í Las Vegas Bandaríkjunum. Ísland sendir fjóra keppendur á mótið en það eru þau Guðný Gunnarsdóttir, Linda Hrönn Magnúsdóttir, Guðmundur Sigurðsson og Þórarinn Már Þorbjörnsson. Þjálfari og fararstjóri er Jóhann Ágúst Jóhannsson. Keppni hefst í dag með því að liðin fá æfingu í salnum í olíuburðinum sem verður í mótinu en hann er WB Tokyo 42 fet. Á morgun miðvikudag hefst einstaklingskeppin og byrja karlarnir mótið en konurnar hefja keppni á fimmtudag kl. 9 að staðartíma eða kl. 16 að íslenskum tíma, 7 tíma mismunur er á Las Vegas og Íslandi. Ekki er enn ljós í hvorum riðlinum Guðmundur og Þórarinn leika en sá fyrri er kl. 9 en sá seinni kl. 13:30 að staðartíma.

Hægt er að fylgjast með keppninni á vefsíðu mótsins. Þar má sjá úrslit, lifandi skor sem og beina útsendingu á vefnum.

Mótinu lýkur svo mánudaginn 9. september.

Opna Reykjavíkurmótið í keilu 2019

Opna Reykjavíkurmótið í keilu 2019
Verða haldin 7 & 14.sept
með forgjöf 2019 verður laugardaginn 7.Sept og hefst kl. 11:00.
Án forgjafar verður laugardaginn 14.sept kl 11:00

Mótið fer þannig fram að leikin er ein 6 leikja sería, skipt um brautarpar eftir hvern leik. Að lokinni seríunni far 5 efstu í SteppLadder úrslitakeppni þar sem 5. sætið keppir við 4. og þarf að vinna einn leik til að komast áfram.

Forgjöf reiknast sem 80% af mismur meðaltals og meðaltalshæsta þátttakenda.

Þó aldrei hærri en 64 pinnar.

Ekki verður hægt að spila hærri leik en 300 með forgjöf

Sigurvegarinn verður því Reykjavíkurmeistari í keilu 2019 með forgjöf.

Verð í mótið er aðeins 6.000,- ATH að það er ekki posi á staðnum

Skráning stendur yfir til kl. 22:00 fimmtudaginn 5. sept. fyrir forgjafarmótið skráning hér
og til kl 22:00 fimmtudaginn 12.sept fyrir án forgjafar skráning hér

Olíuburður verður sá sami og í deild

HM kvenna að hefjast í Las Vegas

HM kvenna hefst í keilusalnum á South Point Hotel í Las Vegas á fimmtudaginn kemur eða þann 22. ágúst og stendur það yfir til föstudagsins 30 ágúst. Að þessu sinni ákvað Keilusambandið að senda ekki lið til leiks á mótinu vegna uppbyggingar A liðs kvenna og vegna mikils kostnaðar við þetta mót. HM kvenna mun standa yfir til 30. ágúst. Í framhaldinu verður Alheimsþing keilusambanda haldið á sama stað þann 1. september og í beinu framhaldi verður svo HM öldunga 50+ frá 2. september til 10. Munu 4 íslenskir keppendur taka þátt í því móti, nánar um það síðar.

Á HM kvenna keppa að þessu sinni 179 keilarar. Meðal þekktra nafna eru þær bandarísku Danielle McEwan sem kom hingað til lands fyrr á árinu og keppti á RIG leikunum og Shannon O‘Keefe. Þær stöllur eru í efstu sætum á PWBA mótaröðinni í ár og vann Danielle US Open fyrir stuttu síðan, einn risatitla í kvennkeilunni vestan hafs. Wegner systurnar Casja og Jenny mæta á mótið fyrir hönd Svía en þær eru meðal sterkustu evrópsku kvennkeilara í dag. Einnig keppir hin danska Mai Ginge Jensen en hún sigraði á Evrópumóti landsmeistara 2018 og er því núverandi Evrópumeistari kvenna en næsta mót mun fara fram í Tyrklandi í nóvember n.k.

Allar upplýsingar um HM kvenna má finna á vefsíðu mótsins. Þar eru stöðufærslur, vísanir í lifandi útsendingar og fleira.

Fjölgun liða í 1. deild kvenna

Á komandi keppnistímabili mun kvennaliðum á Íslandsmóti liða fjölga sem er mikið gleðiefni fyrir keiluna. Tvö ný lið bætast við í deildarkeppnina og af þeim sökum ákvað stjórn KLÍ að fjölga liðum í 1. deild kvenna á komandi tímabili til að jafna fjölda liða í deildum. Verða kvennadeildirnar báðar skipaðar 8 liðum og því verða umferðirnar þrjár í hvorri deild skv. reglugerð. Einnig ákvað stjórn að taka þá upp fyrra fyrirkomulag í úrslitakeppni 1. deildar kvenna þannig að 4 efstu lið, að lokinni deildarkeppni, keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Stjórn KLÍ samþykkti á stjórnarfundi í gær breytingu á Reglugerð um Íslandmót liða í þá veru. Verður reglugerðin uppfærð á vefnum von bráðar.

Þau lið sem fá sæti í 1. deild kvenna verða því lið ÍR BK, sem féll úr deildinni á síðasta tímabili, og KFR Skutlurnar sem varð í 2. sæti í 2. deild og keppti við KFR Afturgöngurnar um laust sæti í 1. deild.

Dagskrá komandi vetrar verður birt á næstu dögum en gert er ráð fyrir óbreyttum keppnistíma deilda í vetur.

Arnar Davíð sigraði í Munchen

Arnar Davíð Jónsson keilari úr KFR sigraði í dag á Track Open sem fram fór í Munchen í Þýskalandi. Mótið er hluti af Evróputúrnum og er þetta í annað sinn sem Arnar sigrar á móti á túrnum en hann vann mót í Óðinsvéum í september í fyrra.

Arnar sem býr í Svíþjóð og spilar með Höganas BC spilaði mjög vel í dag og náði forystunni í mótinu þegar 2 leikir voru eftir. Hann leit aldrei til baka eftir það og kláraði mótið með stæl.

Með sigrinum fór Arnar aftur á toppinn á stigalista Evróputúrsins en hann hafði fallið niður í 2. sæti eftir að hafa verið efstur í nokkrar vikur. Næsta mót fer fram í Óðinsvéum í Danmörku 25. ágúst til 1. september. Arnar á góðar minningar frá því móti og er til alls líklegur á mótaröðinni í ár.

Myndir / images: StreamForceBowling