Vegna framkomu áhorfanda í úrslitaviðureign 1. deildar karla

Atvik átti sér stað í undanúrslitum 1. deildar karla á dögunum. Áhorfandi sem er félagsmaður innan keilunnar var þar sýnilega ölvaður að fylgjast með viðureignunum sem þá voru í gangi. Á ákveðnum tímapunkti var reynt að biðja viðkomandi um að gæta að hegðun sinni og á endanum reynt að vísa honum frá leikstað vegna truflunar á leikjum kvöldsins. Gekk það ekki eftir og kom til orðaskipta viðkomandi við bæði leikmenn, stjórnarmann KLÍ og starfsmann KLÍ. Fór það meðal annars svo að viðkomandi ýtti við stjórnarmanni KLÍ. Á endanum var viðkomandi vísað frá leikstað með valdi af öðrum áhorfenda.

Skýrslur bárust stjórn KLÍ og aganefnd vegna málsins. Þar sem reglugerðir okkar og lög ná ekki yfir áhorfendur heldur aðeins leikmenn í keppni er ekki hægt að taka málið fyrir innan okkar raða. Viðkomandi aðili hefur þó sent póst til stjórnar og fleiri og beðist afsökunar á framferði sínu umrætt kvöld og ber að virða það.

Stjórn KLÍ vill hins vegar koma því á framfæri að KLÍ frábiður sér framkomu af þessu tagi á hvaða móti sem er innan vébanda KLÍ hvort sem um áhorfanda eða aðra ræðir. Neysla áfengis á ekki samleið með íþrótt og er í raun algjörlega andstætt lögum og reglum ÍSÍ. Fólk verður að geta fengið að stunda keilu sem íþrótt án þess að eiga hættu á að áhorfendur eða aðrir séu að trufla í ölæði.

Stjórn KLÍ hefur hafið vinnu við að útbúa reglur og uppfæra reglugerðir sambandsins til samræmis við önnur sérsambönd innan ÍSÍ til að get tekið á svona málum í framtíðinni.

Stjórn KLÍ

Verðlaun vegna tímabilsins 2020-2021

Venjulega er afhending verðlauna fyrir afrek vetrarins á lokahófi keilara, en í ár verður ekkert lokahóf þannig að brugðið var á það ráð að af henda verðlaunin við smærri athöfn á Cafe Easy í Laugardalnum.  

Eftirtaldir keilarar unnu til verðlauna á liðnu tímabili:

  1. deild:

Hæsti leikur:                Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        236                             

Hæsta sería:                 Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        651

Hæsta meðaltal:           Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        185,33

Fellukóngur:                Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        5,03

Stigameistari:              Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        0,85

Mestu framfarir:          Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)

Stjörnuskjöldur:                      ÍR Land                                               105   Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     ÍR Land                                               634

Hæsta sería liðs:                      ÍR Land                                               1677

Hæsta meðaltal liðs:                ÍR Land                                               163,80

3.Sæti: ÍA-C

2.Sæti: ÍR-T

Meistarar:          ÍR-Land

        2. deild karla:

Hæsti leikur:                Sigurður Þorsteinn Guðmundsson (ÍA-W)     255     

Hæsta sería:                 Sveinn Þrastarson (KFR Þröstur)                   656

Hæsta meðaltal:           Sveinn Þrastarson (KFR Þröstur)                   188,58

Fellukóngur:                Sigurður Þorsteinn Guðmundsson (ÍA-W)     4,77

Stigameistari:              Konráð Þór Ólafsson (KFR JP-Kast)             0,88

Mestu framfarir:          Björgvin Helgi Valdimarsson (Þór-Víkingar)

Stjörnuskjöldur:                      KFR Þröstur                                        108 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     KFR Þröstur                                        644

Hæsta sería liðs:                      KFR Þröstur                                        1759

Hæsta meðaltal liðs:                KFR Þröstur                                        170,84

3. Sæti: KFR-JP-Kast

2. Sæti: Þór

Meistarar:    ÍA-W                                     

  1. deild kvenna:

Hæsti leikur:                Þórunn Stefanía Jónsdóttir (KFR-Skutlurnar)            222

Hæsta sería:                 Þórunn Stefanía Jónsdóttir (KFR-Skutlurnar)            541

Hæsta meðaltal:           Snæfríður Telma Jónsson (ÍR N)                                160,27

Felludrottning:            Snæfríður Telma Jónsson (ÍR N)                                2,73

Stigameistari:              Vilborg Lúðvíksdóttir (ÍA-Meyjur)                            0,80

Mestu framfarir:          Viktoría Hrund Þórisdóttir (ÍA-Meyjur)

Stjörnuskjöldur:                      ÍR-BK                                                 70 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     ÍR-BK                                                 531

Hæsta sería liðs:                      ÍR-BK                                                 1496

Hæsta meðaltal liðs:                ÍR-BK                                                 149,29

3. Sæti: ÍR-N

2. Sæti: ÍR-BK

Meistarar:    KFR-Skutlurnar

 1. deild kvenna:

Hæsti leikur:                Linda Hrönn Magnúsdóttir (ÍR-TT)               245

Hæsta sería:                 Dagný Edda Þórisdóttir (KFR Valkyrjur)       652

Hæsta meðaltal:           Ástrós Pétursdóttir (ÍR Buff)                          182,90

Felludrottning:            Hafdís Pála Jónasdóttir (KFR Valkyrjur)       4,21

Stigameistari:              Hafdís Pála Jónasdóttir (KFR Valkyrjur)       0,72

Mestu framfarir:          Helga Ósk Freysdóttir (KFR-Ásynjur)

Stjörnuskjöldur:                      KFR Valkyrjur                                    190 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     KFR Valkyrjur                                    610

Hæsta sería liðs:                      KFR Valkyrjur                                    1774

Hæsta meðaltal liðs:                KFR Valkyrjur                                    175,37

Deildarmeistarar:  KFR Valkyrjur

3. Sæti: ÍR TT  

3. Sæti: ÍR Píurnar

2. Sæti: ÍR Buff

Íslandsmeistarar:      KFR Valkyrjur

  1. deild karla:

Hæsti leikur:                Hafþór Harðarson (ÍR PLS)                            290

Hæsta sería:                 Hlynur Örn Ómarsson (ÍR S)                          749

Hæsta meðaltal:           Hafþór Harðarson (ÍR PLS)                            225,45

Fellukóngur:                Hafþór Harðarson (ÍR PLS)                            7,00

Stigameistari:              Gústaf Smári Björnsson (KFR Stormsveitin) 0,81

Mestu framfarir:          Hinrik Óli Gunnarsson (ÍR L)

Stjörnuskjöldur:                      ÍR PLS                                                 166 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     ÍR PLS                                                 760

Hæsta sería liðs:                      ÍR S                                                     2114

Hæsta meðaltal liðs:                ÍR PLS                                                 208,27

Deildarmeistarar:  ÍR PLS 

3. Sæti: ÍA                   

3. Sæti: KFR-Lærlingar

2. Sæti: KFR-Stormsveitin

Íslandsmeistarar:      ÍR-PLS

Bikarúrslit og verðlaunaafhending KLÍ fyrir veturinn

Á laugardaginn kemur þann 5. júní verða úrslit í Bikarkeppni KLÍ 2021. Þar keppast við í kvennaflokki lið ÍR-Buff og KFR-Valkyrjur sem áttust einnig við í úrslitum 1. deildar kvenna þar sem Valkyrjur stóðu uppi sem Íslandsmeistarar. Í karlaflokki verða það lið nýkrýndra Íslandsmeistara ÍR-PLS og lið ÍA sem eigast við. Hefst keppni kl. 10 í Keiluhöllinni Egilshöll. Eru keilarar hvattir til að mæta og hvetja sitt lið.

Klukkan 14:00 þann sama dag verður svo lokahóf / verðlaunaafhending Keilusambandsins. Fer athöfnin fram á Café Easy í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Þar verða afhent verðlaun fyrir árangur vetrarins eins og vani er að gera almennt á lokahófum KLÍ.

ÍR-PLS eru Íslandsmeistarar 1. deildar karla 2021

ÍR-PLS tryggðu sér í kvöld Íslandsmeistaratitil 1. deildar eftir sigur á KFR-Stormsveitinni í 3. og síðustu umferð úrslitanna. Fyrir kvöldið var ÍR-PLS með 17 stig á móti 11 stigum KFR-Stormsveitarinnar. ÍR-PLS þurfti því 4,5 stig í kvöld til að landa titlinum. Þeir mættu heldur betur til leiks í kvöld og tóku fyrsta leikinn 4 – 0 og því aðeins 0,5 stigum frá markmiði sínu. Það tókst í 2. leik þegar Einar vann sinn keppinaut en ÍR-PLS vann leik 2 samtals 3 – 1 og því var viðureignin búin.

*uppfært*
Þetta er í 9, sinn sem ÍR-PLS landar þeim stóra. Þeir stíga þá eitt skref nær ÍR-KLS að Íslandsmeistara titlum  sem hafa unnið alls 11 en á eftir ÍR-PLS eru KFR-Lærlingar með 8 Íslandsmeistaratitla.

Best í úrslitakeppninni spilaði Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR-PLS en hann var með 238,5 í meðaltal. Skúli Freyr Sigurðsson KFR-Stormsveitinni var þar næstur á eftir með 227,0 í meðaltal. Gunnar átti einni hæsta leik 277 og hæstu seríu 725 í úrslitarimmunni.

Keikir kvöldsins fóru annars svona:

Leikur 1         ÍR-PLS KFR-Storm.
Einar 217 vs. 188 Gústaf 1 0
Gunnar 277 vs. 218 Skúli Freyr 1 0
Hafþór 216 vs. 195 Guðjón 1 0
Samt. 710   601 Heild 1 0
        Samtals 4 0
Leikur 2            
Einar 214 vs. 192 Guðjón 1 0
Gunnar 201 vs. 221 Gústaf 0 1
Hafþór 256 vs. 190 Skúli Freyr 1 0
Samt. 671   603 Heild 1 0
        Samtals 3 1
Leikur 3            
Einar   vs.   Skúli Freyr 0 0
Gunnar   vs.   Guðjón 0 0
Hafþór   vs.   Gústaf 0 0
Samt. 0   0 Heild 0 0
        Samtals 0 0
             
3. umferð     Heild Meðaltal Stig  
ÍR-PLS   1.381 230,2 9  
KFR-Stormsveitin     1.204 200,7 1  
             
Samtals     Umf. 1 Umf. 2 Umf. 3 Samtals
ÍR-PLS     7 10 11 28
KFR-Stormsveitin   7 4 3 14
             
Íslandsmeistarar 1. deildar karla eru:      
ÍR-PLS            

Úrslitakeppni 1. deildar karla heldur áfram

Í kvöld áttust við lið KFR-Stormsveitarinnar og ÍR-PLS í öðrum leik úrslita 1. deildar karla 2021. Nú vara það heimaleikur Stormsveitarinnar og völdu þau langa burðinn fyrir rimmuna. Staðan eftir 1. umferð var jöfn 7 stig gegn 7.

Stormsveitin stillti upp í 1. leika þeim Skúla, Gauja og Gústaf en PLS menn röðuðu upp Hafþóri, Einari og Gunnari. Leikurinn var jafn framan af en það voru PLS menn sem náðu í 3 stig gegn einu. Hafþór tapaði gegn Skúla en Gunnar og Einar sigruðu sína menn og heildina. Sama var upp á teningnum í 2. leik það er að PLS menn náðu aftur 3 stigum gegn 1. Í lokaleiknum gáfu Stormsveitarmenn ennþá meira í og spiluðu bestu seríu sína en að sama skapi náði PLS menn að halda í og fór 2 – 2. Samtals vann því PLS í kvöld 10 – 4 og er komið í 17 stig gegn 11.

Lokaleikurinn fer fram annaðkvöld í Egilshöll og hefst kl. 19. Leiknum verður streymt beint á Fésbókarsíðu KLÍ. PLS þarf 4,5 stig til að hampa titlinum en Stormsveitin þarf að ná í 10,5 stig. Fari leikar jafnt að stigum gildir hærra pinnafall. ÍR-PLS hefur valið aftur að hafa langa olíuburðinn á.

Keikir kvöldsins fóru annars svona:

Leikur 1           KFR-Storm. ÍR-PLS
Skúli Freyr 211 vs. 158 Hafþór   1 0
Guðjón 160 vs. 201 Einar   0 1
Gústaf 189 vs. 225 Gunnar   0 1
Samt. 560   584 Heild   0 1
        Samtals   1 3
Leikur 2              
Skúli Freyr 244 vs. 214 Gunnar   1 0
Mikael 191 vs. 225 Hafþór   0 1
Gústaf 180 vs. 218 Einar   0 1
Samt. 615   657 Heild   0 1
        Samtals   1 3
Leikur 3              
Skúli Freyr 245 vs. 221 Einar   1 0
Mikael 189 vs. 266 Gunnar   0 1
Gústaf 216 vs. 201 Hafþór   1 0
Samt. 650   688 Heild   0 1
        Samtals   2 2
               
2. umferð     Heild Meðaltal   Stig  
KFR-Stormsveitin   1.825 202,8   4  
ÍR-PLS     1.929 214,3   10  
               
Samtals     Umf. 1 Umf. 2   Samtals  
ÍR-PLS     7 10   17  
KFR-Stormsveitin   7 4   11  

Úrslitaleikir 1. deildar karla eru hafnir

Í morgun fór fram fyrsta viðureign af þrem í úrslitum 1. deildar karla 2021. Það eru ÍR-PLS og KFR-Stormsveitin sem eigast við. ÍR-PLS voru deildarmeistarar og eiga því heimaleikjaréttinn og í dag völdu þeir ROUT 66 olíuburðinn eða þann langa.

ÍR-PLS lagði KFR-Lærlinga í æsispennandi viðureign í undanúrslitum þar sem úrslit réðust ekki fyrr en í síðasta kasti leiksins um hvort liðið kæmist í úrslitin úr þeirri viðureign. KFR-Stormsveitin lagði ÍA nokkuð auðveldlega og mættu því kannski aðeins betur hvíldir til leiks í dag. Það fór svo að Stormsveitin sigraði fyrsta leikinn 3 – 1, tóku svo annan leikinn 4 – 0 en allir þekkja að þessi lið gefast ekkert svo auðveldlega upp. Fór svo að ÍR-PLS gaf allt í botn í síðasta leiknum og náðu þar í 6 stig því þeir tóku heildina í þeim leik. Fór leikurinn því 7 – 7 og er ljóst að þessi lið ætla að halda spennu í viðureigninni fyrir okkur áhorfendur.

Næsta umferð verður annakvöld sunnudagskvöldið 30. maí og hefst leikur kl. 19:00 og verður honum streymt beint á Fésbókarsíðu KLÍ. Það verður þá heimaleikur Stormsveitarinnar og hafa þeir valið sama olíuburð og var í dag.

Leikirnir í dag fóru annars svona:

Leikur 1         ÍR-PLS KFR-Storm.
Einar Már 180 vs. 213 Gústaf Smári 0 1
Gunnar Þór 223 vs. 235 Skúli Freyr 0 1
Hafþór 221 vs. 211 Guðjón 1 0
Samt. 624   659 Heild 0 1
        Samtals 1 3
Leikur 2            
Einar Már 213 vs. 214 Guðjón 0 1
Gunnar Þór 236 vs. 259 Gústaf Smári 0 1
Hafþór 199 vs. 238 Skúli Freyr 0 1
Samt. 648   711 Heild 0 1
        Samtals 0 4
Leikur 3            
Einar Már 245 vs. 235 Skúli Freyr 1 0
Gunnar Þór 266 vs. 194 Guðjón 1 0
Hafþór 221 vs. 189 Gústaf Smári 1 0
Samt. 732   618 Heild 1 0
        Samtals 4 0
             
      Heild Meðaltal Stig  
ÍR-PLS     2.004 222,7 7  
KFR-Stormsveitin   1.988 220,9 7  

Reykjavíkurmót ungmenna 2021 lokið

Reykjavíkurmót ungmenna fór fram í vikunni en það fer fram á æfingartíma og markar lok æfinga ungmenna í Reykjavík á hverju tímabili. Leikið var samkvæmt fyrirkomulagi Íslandsmóts unglinga þannig að 1. og 2. flokkur pilta og stúlkna leika 6 leiki hvorn daginn og 3. til 5. flokkur leika 3 leiki hvorn daginn. Ekki er leikið sérstaklega til úrslita heldur ræður samtalan úrslitum.

Þjálfarar Reykjavíkurfélaganna þakka iðkendum sínum fyrir góðan keiluvetur og hlakkar til að sjá krakkana á haustönn 2021.

Úrlit og leikir mótsins urðu þessi:

1. fl. pilta (fæddir 2002-2004) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3 Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6   Leikur 7 Leikur 8 Leikur 9 Leikur 10 Leikur 11 Leikur 12
  Hinrik Óli Gunnarsson ÍR 206,0 2.472 181 204 202 238 226 229   222 220 170 224 184 172
  Aron Hafþórsson ÍR 204,0 2.448 177 212 191 256 226 206   232 189 198 150 199 212
  Guðbjörn Joshua Guðjónsson ÍR 160,7 1.928 179 224 191 237 132 169   140 103 130 157 136 130
  Adam Geir Baldursson ÍR 162,3 974               161 152 156 153 146 206
                                   
1. fl. stúlkna (fæddar 2002-2004) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3 Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6   Leikur 7 Leikur 8 Leikur 9 Leikur 10 Leikur 11 Leikur 12
  Málfríður Jóna Freysdóttir KFR 173,9 2.087 183 190 167 201 191 186   140 179 154 173 172 151
                                   
2. fl. stúlkna (fæddar 2005-2006) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3 Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6   Leikur 7 Leikur 8 Leikur 9 Leikur 10 Leikur 11 Leikur 12
  Sóley Líf Konráðsdóttir KFR 157,5 1.890 180 124 222 144 146 181   143 159 165 145 114 167
                                   
3. fl. pilta (fæddir 2007-2008) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3         Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6      
  Mikael Aron Vilhelmsson KFR 206,7 1.240 257 179 212         193 176 223      
  Tristan Máni Nínuson ÍR 192,8 1.157 210 200 202         223 145 177      
  Ísak Freyr Konráðsson KFR 162,3 974 138 180 147         209 155 145      
  Kristinn Már Þorsteinsson ÍR 145,0 870 117 164 173         144 107 165      
                                   
4. fl. pilta (fæddir 2009-2010) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3         Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6      
  Viktor Snær Guðmundsson  ÍR 121,7 730 103 89 141         140 140 117      
  Svavar Steinn Guðjónsson KFR 108,7 652 70 118 129         116 118 101      
  Ólafur Breki Sigurðsson KFR 93,8 563 93 122 72         80 110 86      
  Bjarki Leó Ólafsson ÍR 89,2 535 92 92 115         79 86 71      
                                   
5. fl. pilta (fæddir 2011-2018) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3         Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6      
  Gottskálk Ryan Guðjónsson ÍR 105,8 635 109 118 99         97 100 112      
                                   
5. fl. stúlkna (fæddar 2011-2018) Félag M.tal Heild Leikur 1 Leikur 2 Leikur 3         Leikur 4 Leikur 5 Leikur 6      
  Bára Líf Gunnarsdóttir ÍR 125,8 755 152 128 116         126 120 113      
  Alexandra Erla Guðjónsdóttir KFR 66,0 396 43 75 64         77 89 48      

1. flokkur pilta frá vinstri: Aron Hafþórsson ÍR, Hinrik Óli Gunanrsson ÍR og Guðbjörn Joshua Guðjónsson ÍR.

1 flokkur stúlkna: Málfríður Jóna Freysdóttir KFR

2. flokkur stúlkna: Sóley Líf Konráðsdóttir KFR

3. flokkur pilta, frá vinstri: Ísak Freyr Konráðsson KFR, Mikael Aron Vilhelmsson KFR og Tristan Máni Nínuson ÍR

4. flokkur pilta, frá vinstri: Ólafur Breki Sigurðsson KFR, Viktior Snær Guðmundsson ÍR og Svavar Steinn Guðjónsson KFR

5. flokkur pilta: Gottskálk Ryan Guðjónsson ÍR

5. flokkur stúlkna, frá vinstri: Alexandra Erla Guðjónsdóttir KFR og Bára Líf Gunnarsdóttir ÍR

ÍR PLS og KFR Stormsveitin í úrslitum

Í kvöld fóru fram seinni leikirnir í undanúrslitum karla, voru þeir annarsvegar spilaðir á Akranesi þar sem að lið ÍA tók á móti liði KFR Stormsveitin. Fyrri viðureignin þar fór þannig að KFR Stormsveitin vann lið ÍA með 11 stigum gegn 3 þannig að KFR Stormsveitinni nægði 4 stig til að vinna.

Hinn leikurinn fór fram í Egilshöll þar sem að lið KFR Lærlinga tók á móti liði ÍR PLS. Var von á hörku keppni í þeim leik þar sem að fyrri viðureignin fór 8,5 – 5,5 fyrir ÍR PLS. Óhætt er að segja að það fór þannig þar sem að úrslitin réðust í loka ramma í síðasta leik.

Leikir kvöldsins voru:

ÍA                     KFR Stormsveitin          
Leikur 1
Jóhann  146        Gústi      179
Gummi  135        Skúli       181
Maggi    164        Gaui       174
Samtals 445        Samtals 534
Stig        0                            4

Leikur 2
Jóhann  222        Gaui       175
Gummi  207        Mikael   123
Maggi    138        Gústi      237
Samtals 567        Samtals 535
Stig        3                            1

Leikur 3
Jóhann  203        Gústi      234
Ísak        154        Gaui       162
Maggi    165        Mikael   226
Samtals 522        Samtals 622
Stig        0                            4

Stig vegna heildar             0                            2
Samtalls allir leikir            1534                     1691
Stig        3                            11
Stig gærdagsins        3                            11
Samtals báðir dagar  6                            22

KFR Lærlingar                            ÍR PLS        

Leikur 1
Andri     259        Hafþór  227
Freyr      196        Einar      172
Jón Ingi 188        Gunnar  192
Samtals 643                       591
Stig        3                            1

Leikur 2
Andri     200        Gunnar 257
Freyr      166        Hafþór  194
Jón Ingi 212        Bjarni Páll            178
Samtals 578                       629
Stig        1                            3

Leikur 3
Andri     246        Einar      221
Freyr      192        Gunnar  225
Jón Ingi 216        Hafþór  210
Samtals 654                       656
Stig        2                            2

Samtalls allir leikir            1875                     1876
Stig vegna heildar                0                          2
Stig        6                            6
Stig gærdagsins             5,5                           8,5
Samtals báðir dagar        11,5                      16,5

Leikdagar fyrir úrslit:
Leikur 1,  laugardaginn 29. maí  kl. 09:00
Leikur 2,  sunnudaginn 30. maí  kl. 19:00
Leikur 3,  mánudaginn  31. maí  kl. 19:00

Undanúrslit í 1. deild karla 2021

Í kvöld 25.05.2021 hófust undanúslit í 1.deild karla.
Þau lið sem að mætast eru:
ÍR PLS – KFR Lærlingar
KFR Stormsveitin – ÍA
Seinni leikirnir fara svo fram annað kvöld 26.05.2021 kl 19:00
Í Egilshöll mætast
KFR Lærlingar – ÍR PLS og verður spilað í ROUT 66 45fet (langur burður
og á Akranesi mætast
ÍA – KFR Stormsveitin og verður spilað í  ABT#1  34fet  (stuttur burður) 

Úrslitin verða síðan leikin á eftirfarandi dögum:
Leikur 1,  laugardaginn 29. maí  kl. 09:00
Leikur 2,  sunnudaginn 30. maí  kl. 10:00
Leikur 3,  sunnudaginn 30. maí  kl. 19:00

Leikir kvöldsins fóru:
ÍR PLS  – KFR Lærlingar 
Leikur 1           
Einar      248        Jón Ingi 246
Gunnar  200        Freyr      200
Haffi      207        Andri      253
Samtals 655                       699
Stig        1,5                        2,5

Leikur 2                                            
Einar      184        Andri      195
Gunnar  214        Jón Ingi 212
Haffi      227        Freyr      178
Samtals 625                       585
Stig        3                            1

Leikur 3                                            
Einar      236        Freyr      246
Gunnar  289        Andri      216
Haffi      214        Jón Ingi 246
Samtals 739                       708
Stig        2                            2
Samtalls allir leikir            2019                     1992
Stig Kvöldsins   
ÍR PLS          KFR Lærlingar
8,5                        5,5

Stormsveitin                      ÍA          
Leikur 1
Skúli       225        Maggi    183
Gaui       183        Gummi  176
Gústi      175        Jóhann  245
Samtals 583        Samtals 604
Stig        2                            2

Leikur 2                                            
Skúli       200        Jóhann  238
Gaui       235        Maggi    215
Gústi      224        Gummi  193
Samtals 659        Samtals 646
Stig        3                            1

Leikur 3
Skúli       278        Gummi  170
Gaui       210        Jóhann  204
Gústi      244        Maggi    215
Samtals 732        Samtals 589
Stig        4                            0
Samtalls allir leikir            1974                     1839

Stig kvöldsins:
Stormsveitin         ÍA             
11                          3