Keilusalnum á Akranesi lokað til 8. nóvember hið minnsta

Eins og fram hefur komið á fréttamiðlum er mikið um Covid-19 smit á Akranesi. Af þeim sökum er öllum íþróttamannvirkjum lokað frá og með deginum í dag til mánudagsins 8. nóvember hið minnsta. Þessi ráðstöfun hefur auðvitað áhrif á okkar mót og þá leiki sem fara eiga fram upp á Skaga.

Mótanefnd KLÍ er í þeirri vinnu að hliðra til leikjum sem eru undir og þarf smá tækifæri til þess að klára þá vinnu. Aðilar verða látnir vita en aðilum er samt bent á að fylgjast vel með fréttum hér á vef KLÍ og á Fésbókarsíðum keilara.

Gunnar Þór Ásgeirsson í 5. sæti á ECC 2021

Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR varð í 5. sæti á Evrópumóti landsmeistara ECC á Krít í Grikklandi. Hann varð aðeins 27 pinnum frá 4. sætinu til að tryggja sér rétt til að keppa í undanúrslitum mótsins. Gunnar Þór var með 226,2 í meðaltal í mótinu eftir 28 leiki sem hann lék og vann hann sig upp sætalistann frá því að hann komst í 16 manna úrslit en hann var í 9. sætinu eftir forkeppnina. Komst hann upp í 7. sætið í 16 manna úrslitum og tryggði sér þar með rétt til að keppa í 8 manna úrslitum og endaði eins og áður segir í 5. sæti mótsins. Er þetta í þriðja sinn sem íslenskur keilari kemst í 8 manna úrslit ECC.

Það varð Mike Bergmann frá Hollandi sem sigraði mótið í karlaflokki en hann lagði Svíann Mattias Wetterberg í úrslitum 2 – 1. Wetterberg er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur keppt hér á landi á Reykjavíkurleikunum.

Sue Abela frá Möltu sigraði síðan kvennamótið en hún lagði hina dönsku Mika Guldbaek í úrslitum sömuleiðis 2 – 1 en Mika hafði leitt mótið framan af.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Gunnari Þór en hann mun rétt stoppa í einn dag hér heima áður en hann heldur til Dubai með íslenska karlalandsliðinu til keppni á Super World Cup.

Allar upplýsingar um mótið má finna hér.

Gunnar Þór Ásgeirsson í 8 manna úrslit á ECC 2021

Í dag fóru fram 16 manna úrslit á Evrópumóti landsmeistara ECC 2021. Gunnar Þór Ásgeirsson sem var í 9. sæti eftir forkeppnina vann sig upp um tvö sæti í dag og tryggði sér þar með sæti í 8 manna undanúrslitum sem fara fram á morgun sunnudag. Þetta er í þriðja sinn sem Íslendingur kemst í 8 manna úrslit á ECC en fyrr höfðu þeir Hafþór Harðarson úr ÍR og Arnar Davíð Jónsson úr KFR náð þeim árangri.

Í dag lék Gunnar Þór 8 leiki á 1.802 pinnum eða 225,25 í meðaltal. Samtals er hann með 5.390 pinna eða 224,6 í meðaltal. Á morgun er lokadagurinn á mótinu en þá verða leiknir 4 leikir og þá skorið niður í 4 manna undanúrslit og loks úrslit. Gunnar Þór er ekki nema 40 pinnum frá 3. sæti og því er sæti í þeim úrslitum ekki úr greipum enn.

Við sendum Gunnari Þór jákvæða strauma út til Krít.

Fylgjast má með mótinu á vefsíðu þess.

Dagur tvo á ECC hjá Gunnari Þór Ásgeirssyni

Eins og komið hefur fram keppir Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR á Evrópumóti landsmeistara á Krít í Grikklandi. Gunnar Þór lék seinni 8 leikja leikjablokk sína í morgun og er óhætt að segja að Gunnar Þór hafi spilað frábærlega. Hann átti þó rólega byrjun með 203 og 171 leik en þá fór boltinn að rúlla hjá honum. Næstu leikir voru 227 – 207 – 240 – 259 – 238 og að lokum 289. Samtals varð því leikjablokkin upp á 1.834 pinna eða 229,2 í meðaltal og varð hann í 3. sæti síns riðils í morgun.

Gunnar Þór er sem stendur í 4. sæti í heildarkeppninni með 3.588 pinna eða 224,2 í meðaltal en í þessum skrifuðu orðum er seinni riðillinn að keppa og eru búnir 4 leikir hjá þeim af 8. Í þessum seinni riðli er kominn annar fullkomni leikur mótsins hjá körlunum en það var Norðmaðurinn Glenn Morten Predersen sem náði honum í öðrum leik dagsins.

Konurnar hafa lokið forkeppni sinni og efst varð Mika Guldbaek frá Danmörku en hún lék leikina 16 á 3.513 pinnum eða 219,6. 16 efstu komast áfram í milliriðil og þurfti þar 182,1 í meðaltal til að ná inn.

Á morgun fer svo fram téður milliriðill og eru þá leiknir aðrir 8 leikir. Konurnar hefja leik kl. 7 að íslenskum tíma en karlarnir leika kl. 11.

Sjá má upplýsingar um mótið hér.

Siðareglur KLÍ

Stjórn KLÍ hefur undanfarið unnið að siðareglum fyrir sambandið. Á stjórnarfundi í gær voru þær samþykktar og því hér með birtar á vef sambandsins og tilkynning send til formanna aðildarfélaga.

Óþarfi ætti að vera að útskýra þörf siðareglna. Ljóst er að umræðu samfélagsins undanfarnar vikur og í raun missera er mikil þörf samtaka líkt og KLÍ að hafa skýrar viðmiðunarreglur varðandi samskipti okkar á milli. Grunnurinn er jú sá að koma fram að virðingu við sjálfan sig, aðra félagsmenn hvort sem það eru samherjar eða mótherjar innan félagsskaparins.

Reglur þessar verða lagðar fram á næsta Ársþingi sambandsins til umfjöllunar og samþykkis enda má líta svo á að ef Ársþing samþykkir þær þá verður samþykktin sterkari en ella.

Hér má nálgast siðareglurnar í PDF formi og þær eru auk þess komnar inn sem sér síða undir liðnum Um KLÍ.

Iðkendur innan keilunnar eru beðnir um að kynna sér þessar reglur og tileinka.

Fyrstu leikir Gunnars Þórs á ECC 2021

Í morgun lék Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR fyrstu leiki sína á Evrópumóti landsmeistara á Krít. Leiknir voru 8 leikir í fyrri leikjablokk undankeppninnar en sú seinni fer fram í fyrramálið á föstudegi og hefst keppni kl. 7 að morgni á íslenskum tíma. Gunnar byrjaði fyrstu tvo rammana á að opna en skellti svo í lás ef svo má segja og fékk 205. Næstu leikir voru síðan nokkuð góðir, 225 – 226 – 213 og 278. Var hann í 3. sæti síns riðils eftir þá leiki en þá kom einn verri leikur á erfiðu brautarpari 181. Hann lokaði svo deginum með 215 og 207, samtals 1.754 eða 219,2 í meðaltal.

Gunnar er því samanlagt í 8. sæti eftir fyrri daginn en 16 efstu komast áfram í milliriðil keppninnar. Sem stendur er meðaltalið í 16. sætinu 207,2 og gerum við okkur góðar vonir að Gunnar Þór komist í milliriðilinn.

Sem stendur er Rúmeninn Romeo Gagenoiu í efsta sætinu með 239,4 í meðaltal en hann hóf mótið með látum og náði fullkomnum leik í fyrsta leik mótsins. Hjá konunum er það hin danska Mika Guldbaek sem er í efsta sætinu með 1.758 pinna eða 219,8 í meðaltal

Hægt er að fylgjast með mótinu á vefsíðu þess.

Gunnar Þór Ásgeirsson við opnunarathöfn ECC 2021

Frá ECC 2021 – Æfingardagurinn

Nú er Evrópumót landsmeistara, ECC 2021 hafið en æfingadagurinn fyrir mótið var í gær þriðjudag og gekk Gunnari Þór Ásgeirssyni, sem keppir fyrir Íslands hönd, vel á æfingunni. Hann hefur síðan leik á morgun fimmtudag kl. 10 að grískum tíma eða kl. 07 að íslenskum tíma. Sömu leiktimar eru síðan á föstudag hjá Gunnari Þór. Alls taka þátt í mótinu í ár 31 karlar og 28 konur.

Á vefsíðu mótsins má fylgjast með gengi okkar manns og allar upplýsingar um mótið má finna þar. Hér í Grikklandi er enn grímuskylda og þurfa leikmenn að leika með grímur.

Í dag léku fyrstu keilararnir sína leiki á mótinu og er Rúmeninn Romeo Gagenoiu efstur í karlaflokki en hann byrjaði glæsilega með því að leika 300 leik í fyrsta leik mótsins og 8 leikina alls á 1.915 pinnum eða 239,4 í meðaltal. Þegar þessi frétt er skrifuð eru konurnar að leika sína leiki.

Olían sem notuð er í mótinu er 41 fet og 27,95 mL en sjá má olíugrafið hér.

 

Gunnar Þór Ásgeirsson keppir á Evrópumóti landsmeistara á Krít

Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR mun keppa á Evrópumóti landsmeistara ECC sem fram fer á Krít, Grikklandi og hefst mótið á morgun þriðjudag. Gunnar varð í 2. sæti á Íslandsmóti einstaklinga á eftir Hafþóri Harðarsyni úr ÍR en Hafþór átti ekki heiman gengt á mótið í ár og því tók Gunnar Þór hans sæti á mótinu. Þórarinn Már Þorbjörnsson verður Gunnari til halds og traust á mótinu.

Marika Lönnroth sem varð Íslandsmeistari kvenna gat heldur ekki séð sé fært að komast á mótið né heldur næstu tvær úr mótinu og því er engin íslensk kona á mótinu í ár.

Allar upplýsingar um mótið, dagskrá, úrslit og fleira má nálgast á vefsíðu þess.

Breyting á leikjum í kvöld & á morgun

Vegna bilunar á brautum 7 – 10 færast leikir til á brautum í kvöld og á morgun

Mánudagur  25.10.2021 KL:19:15

3-4: ÍR-Broskarlar – ÍR-L (2. deild karla, 5. umferð)

5-6: KR-a – ÍR-Land (2. deild karla, 5. umferð)

Mánudagur  25.10.2021 KL: 19:00
7-8: ÍR-Fagmaður – ÍR-Naddóður (2. deild karla, 5. umferð)

9-10: KFR-JP KAST – ÍR – Blikk (2. deild karla, 5. umferð)

15-16: ÍR-T – ÍR-NAS (3. deild karla, 6. umferð)

17-18: Ösp-Ásar – ÍA-B (3. deild karla, 6. umferð)

19-20: Ösp-Goðar – ÍA-C (3. deild karla, 6. umferð)

21-22: ÍR-Gaurar – ÍR-Keila.is (3. deild karla, 6. umferð)

Þriðjudagur 26.10.2021 KL: 19:15

5-6: ÍR-KK – Ösp-Gyðjur (1. deild kvenna, 6. umferð)

7-8: KFR Skutlurnar – KFR-Valkyrjur (1. deild kvenna, 6. umferð)

Þriðjudagur 26.10.2021 KL: 19:00
9-10: ÍR-Elding – KFR-Afturgöngurnar (1. deild kvenna, 6. umferð)

15-16: ÍR-BK – KFR-Ásynjur (1. deild kvenna, 6. umferð)

17-18: ÍR-N – ÍR-BUFF (1. deild kvenna, 6. umferð)

19-20: ÍR-S – KFR-Stormsveitin (1. deild karla, 5. umferð)

21-22: ÍR-PLS – KFR-Lærlingar (1. deild karla, 5. umferð)

Þing Keilusambands Evrópu – EBF – Nýtt nafn sambandsins

Í dag fór fram í Chania á Krít í Grikklandi þing Keilusambands Evrópu. Alls voru mættir fulltrúar 30 ríkja þar á meðal voru Jóhann Ágúst Jóhannsson formaður KLÍ og Þórarinn Már Þorbjörnsson Framkvæmdastjóri KLÍ. Valgeir Guðbjartsson varaforseti sambandsins stýrði hluta þingsins frá háborði þess.

Helst ber að nefna að ákveðið var að breyta nafni sambandsins úr ETBF (European Tenpin Bowling Federation) í EBF (European Bowling Federation). Er það gert bæði til einföldunar og samræmis við breytingar alheimssambands keilunnar. Samhliða þessu var kynnt nýtt merki sambandsins sem og stefna þess í markaðsmálum á komandi mótum. Nánar verður birt efni því tengdu síðar.

Á þinginu voru samþykktar nokkrar lagabreytingar, aðalega sem miða að nafnabreytingu en einnig tekin sú ákvörðun að taka úr stefnuskrá/lögum sambandsins ákvarðanir um mótahald þess. Er það fært til stjórnar til að hægt sé að vera kvikari í aðgerðum komi til þess að breyta þurfi mótahaldi en það hefur bersýnilega komið í ljós þörf á því undanfarin misseri í Covid faraldri. Þing EBF eru annað hvert ár alla jafna og því hægara um vik ef breyta þarf reglum.

Fram kom að næstu mót sem búið er að úthluta verða samkvæmt sama fyrirkomulagi og verið hefur hingað til í EBF mótum en spurningar komu frá aðildarlöndum um hvort EC mótin færist í sama horf og IBF mótin eru að stefna. Þannig að, við í Evrópu verðum í sama keppnisfyrirkomulagi í það minnsta til 2024.

Ekki fóru fram kosningar í embætti sambandsins til næstu 4 ára. Belginn Mark Beaufays hafði tilkynnt framboð sitt til forseta sambandsins en dróg það framboð til baka líkt og hann dróg framboð sitt á móti Valgeiri 2019 í embætti varaforseta til baka. Því var Addie Ophelders frá Hollandi sjálfkjörinn til næstu 4 ára en hann gaf kost á sér áfram.

Aðeins tveir voru einnig í framboði í tvö sæti framkvæmdastjórnar EBF en það voru þeir Onder Gurkan frá Tyrklandi og Rússinn Sergey Lisitsyn.