Reykjavíkurmót einstaklinga 2021

Reykjavíkurmót einstaklinga í keilu fara fram laugardaginn 4. september en þá verður forgjafarmótið haldið og laugardaginn 11. september en þá verður mótið án forgjafar. Keppni hefst stundvíslega kl. 09:00 báða dagana.

Olíuburðurinn verður miðlungs deildarburðurinn í ár sem er sérhannaður fyrir okkur í ár.

Verð í mótið er kr. 7.000,- og verður einungis hægt að greiða með pening á staðnum. Enginn posi mun því vera á staðnum en hægt er að millifæra inn á reikning 0115-26-005910 kt. 591094-2039 (Íþróttafélag Reykjavíkur – Keiludeild) – Sendið staðfestingu á [email protected]

Mótafyrirkomulag er eftirfarandi:

  • Keppt er í aðskildum kynjaflokkum
  • Forkeppni eru 6 leikir með hefðbundinni skiptingu brauta milli hvers leiks
  • Sé jafnt eftir forkeppni ræður hærri síðasti leikur
  • Úrslit fara fram strax eftir forkeppni og er leikið 3 – 2 – 1 Stepp Ladder format
  • Ekki er olíuborið fyrir úrslitakeppni
  • Sé jafnt eftir leik í úrslitum er Roll Off

Forgjafarmótið

  • Forgjöf er 80% af mismun meðaltals hæsta leikmanns viðkomandi flokki og leikmanns
  • Hæsti mögulegi leikurinn er 300

Skráningar í mót

Olíuburðir fyrir keppnistímabilið 2021 til 2022

Tækninefnd KLÍ sendi tillögur sínar til stjórnar KLÍ með olíuburði fyrir komandi keppnistímabil. Málið var tekið fyrir á stjórnarfundi í gær og afgreitt þar. Búið er að uppfæra síðuna fyrir olíuburðina og má nálgast hana hér.

Sú nýjung er þetta tímabilið að Tækninefnd fékk John Janawicz frá Kegel til að hanna deildarburðina fyrir komandi tímabil, stutta, miðlungs sem verður sjálfgefinn burður og þann langa. Eru þeir þá hannaðir miðað við aðstæður okkar og verður spennandi að sjá hvernig keilurum tekst að eiga við brautirnar í vetur. John hefur starfað hjá Kegel frá árinu 1998 og meðal annars séð um úttektir á sölum fyrir PBA og ETBF mót. Mikill fengur er í því að hafa fengið aðstoð hans.

Bent er á reglur varðandi val á olíuburði fyrir heimaleiki en senda þarf póst á netfangið [email protected] fyrir kl. 22 miðvikudaga fyrir leiki í vikunni á eftir og fyrir kl. 22 á mánudegi fyrir leiki komandi helgar.

Dagskráin komin á vefinn

Dagskrá vetrarins er komin á vefinn og má sjá hana hér. Einnig er þá komið inn allir deildarleikir viðkomandi liða, sjá hér. Von er á því að olíuburðir vetrarins verði kynntir á föstudaginn kemur þann 20. ágúst en Tækninefnd KLÍ hefur skilað tillögum að olíuburðum til stjórnar og verður það tekið fyrir á komandi stjórnarfundi á fimmtudagskvöldið.

Við byrjum dagskránna með því að blása til Reykjavíkurmóts einstaklinga með forgjöf laugardaginn 4. september og verður skráning auglýst sér á allra næstu dögum. Helgina eftir, laugardaginn 11. september verður síðan Opna Reykjavíkurmót einstaklinga 2021.

Keppnistímabilið 2021 til 2022 fer að hefjast

Senn líður að því að keppnistímabilið 2021 til 2022 hefjist. Búið er að setja niður á hvaða dögum deildirnar verða en deildarkeppnin hefst mánudaginn 20. september en þá hefja leik 2. deild kvenna ásamt 2. og 3. deildum karla. 1. deildir karla og kvenna hefja svo leik daginn eftir þriðjudaginn 21. september. Verið er að klára að setja niður leiki norðanmanna og þegar það er komið er hægt að birta deildarniðurröðun.

Stefnt er að því að Reykajvíkurmótin verði haldin laugardaginn 4. september en þá verður væntanlega forgjafarmótið og svo helgina þar á eftir laugardaginn 11. er stefnt að Opna Reykjavíkurmóti einstaklinga.

Tæknideild KLÍ er að leggja lokahönd á val olíuburða fyrir komandi tímabil og verður það tilkynnt sérstaklega hér á vefnum þegar valið kemur frá nefndinni.

Unglingakeppnirnar hefjast svo laugardaginn 2. október með Íslandsmóti unglingaliða og Meistarakeppni ungmenna hefst síðan helgina þar á eftir.

Nokkur erlend verkefni eru á dagskrá í vetur og byrja ungmenni á því að fara á EYC sem verður í Tilburg Hollandi nú í september. ECC verður síðan á Krít í október og fara Marika K E Lönnroth úr KFR, Íslandsmeistari kvenna 2021, og Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR en hann varð í 2. sæti á Íslandsmóti karla 2021. Hafþór Harðarson ÍR sem sigraði mótið á ekki heimangengt á þessum tíma og fer því Gunnar í hans stað. Í nóvember verða síðan IBF Super World Cup en þá verður keppt í karla- og kvennaflokki auk þess sem IBF World Cup Masters verður haldið en það er mót 50+ og 65+ Á síðasta heimsþingi World Bowling, fyrirrennara IBF, var samþykkt að stækka það mót og keppa í tveim flokkum sökum mikillar aukningar iðkenda í þessum aldurshópi það er 50+

Stefnt er að því að lokaumferðir deilda fari fram laugardaginn 23. apríl og að sama dag fari þá fram lokahóf KLÍ. Útslitakeppni 1. deildar karla og kvenna fer síðan fram í maí byrjun.

Ný sóttvarnaráætlun KLÍ

Í dag tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir og hafa sóttvarnarreglur KLÍ því verið uppfærðar til samræmis. en þær má sjá á upplýsingasíðu okkar.

Eðlilega þar sem tímabili okkar er lokið og vinna við næsta tímabil er farið í gang snerta þær okkur ekki mikið upp á fjöldatakmarkanir en samt sem áður þarf að hafa almennar smitvarnir í huga þegar æft er í sölunum. Hvetjum við keilara til að gæta að sínum vörnum.

Vegna framkomu áhorfanda í úrslitaviðureign 1. deildar karla

Atvik átti sér stað í undanúrslitum 1. deildar karla á dögunum. Áhorfandi sem er félagsmaður innan keilunnar var þar sýnilega ölvaður að fylgjast með viðureignunum sem þá voru í gangi. Á ákveðnum tímapunkti var reynt að biðja viðkomandi um að gæta að hegðun sinni og á endanum reynt að vísa honum frá leikstað vegna truflunar á leikjum kvöldsins. Gekk það ekki eftir og kom til orðaskipta viðkomandi við bæði leikmenn, stjórnarmann KLÍ og starfsmann KLÍ. Fór það meðal annars svo að viðkomandi ýtti við stjórnarmanni KLÍ. Á endanum var viðkomandi vísað frá leikstað með valdi af öðrum áhorfenda.

Skýrslur bárust stjórn KLÍ og aganefnd vegna málsins. Þar sem reglugerðir okkar og lög ná ekki yfir áhorfendur heldur aðeins leikmenn í keppni er ekki hægt að taka málið fyrir innan okkar raða. Viðkomandi aðili hefur þó sent póst til stjórnar og fleiri og beðist afsökunar á framferði sínu umrætt kvöld og ber að virða það.

Stjórn KLÍ vill hins vegar koma því á framfæri að KLÍ frábiður sér framkomu af þessu tagi á hvaða móti sem er innan vébanda KLÍ hvort sem um áhorfanda eða aðra ræðir. Neysla áfengis á ekki samleið með íþrótt og er í raun algjörlega andstætt lögum og reglum ÍSÍ. Fólk verður að geta fengið að stunda keilu sem íþrótt án þess að eiga hættu á að áhorfendur eða aðrir séu að trufla í ölæði.

Stjórn KLÍ hefur hafið vinnu við að útbúa reglur og uppfæra reglugerðir sambandsins til samræmis við önnur sérsambönd innan ÍSÍ til að get tekið á svona málum í framtíðinni.

Stjórn KLÍ

Verðlaun vegna tímabilsins 2020-2021

Venjulega er afhending verðlauna fyrir afrek vetrarins á lokahófi keilara, en í ár verður ekkert lokahóf þannig að brugðið var á það ráð að af henda verðlaunin við smærri athöfn á Cafe Easy í Laugardalnum.  

Eftirtaldir keilarar unnu til verðlauna á liðnu tímabili:

  1. deild:

Hæsti leikur:                Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        236                             

Hæsta sería:                 Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        651

Hæsta meðaltal:           Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        185,33

Fellukóngur:                Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        5,03

Stigameistari:              Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)        0,85

Mestu framfarir:          Aron Hafþórsson        (ÍR-Land)

Stjörnuskjöldur:                      ÍR Land                                               105   Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     ÍR Land                                               634

Hæsta sería liðs:                      ÍR Land                                               1677

Hæsta meðaltal liðs:                ÍR Land                                               163,80

3.Sæti: ÍA-C

2.Sæti: ÍR-T

Meistarar:          ÍR-Land

        2. deild karla:

Hæsti leikur:                Sigurður Þorsteinn Guðmundsson (ÍA-W)     255     

Hæsta sería:                 Sveinn Þrastarson (KFR Þröstur)                   656

Hæsta meðaltal:           Sveinn Þrastarson (KFR Þröstur)                   188,58

Fellukóngur:                Sigurður Þorsteinn Guðmundsson (ÍA-W)     4,77

Stigameistari:              Konráð Þór Ólafsson (KFR JP-Kast)             0,88

Mestu framfarir:          Björgvin Helgi Valdimarsson (Þór-Víkingar)

Stjörnuskjöldur:                      KFR Þröstur                                        108 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     KFR Þröstur                                        644

Hæsta sería liðs:                      KFR Þröstur                                        1759

Hæsta meðaltal liðs:                KFR Þröstur                                        170,84

3. Sæti: KFR-JP-Kast

2. Sæti: Þór

Meistarar:    ÍA-W                                     

  1. deild kvenna:

Hæsti leikur:                Þórunn Stefanía Jónsdóttir (KFR-Skutlurnar)            222

Hæsta sería:                 Þórunn Stefanía Jónsdóttir (KFR-Skutlurnar)            541

Hæsta meðaltal:           Snæfríður Telma Jónsson (ÍR N)                                160,27

Felludrottning:            Snæfríður Telma Jónsson (ÍR N)                                2,73

Stigameistari:              Vilborg Lúðvíksdóttir (ÍA-Meyjur)                            0,80

Mestu framfarir:          Viktoría Hrund Þórisdóttir (ÍA-Meyjur)

Stjörnuskjöldur:                      ÍR-BK                                                 70 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     ÍR-BK                                                 531

Hæsta sería liðs:                      ÍR-BK                                                 1496

Hæsta meðaltal liðs:                ÍR-BK                                                 149,29

3. Sæti: ÍR-N

2. Sæti: ÍR-BK

Meistarar:    KFR-Skutlurnar

 1. deild kvenna:

Hæsti leikur:                Linda Hrönn Magnúsdóttir (ÍR-TT)               245

Hæsta sería:                 Dagný Edda Þórisdóttir (KFR Valkyrjur)       652

Hæsta meðaltal:           Ástrós Pétursdóttir (ÍR Buff)                          182,90

Felludrottning:            Hafdís Pála Jónasdóttir (KFR Valkyrjur)       4,21

Stigameistari:              Hafdís Pála Jónasdóttir (KFR Valkyrjur)       0,72

Mestu framfarir:          Helga Ósk Freysdóttir (KFR-Ásynjur)

Stjörnuskjöldur:                      KFR Valkyrjur                                    190 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     KFR Valkyrjur                                    610

Hæsta sería liðs:                      KFR Valkyrjur                                    1774

Hæsta meðaltal liðs:                KFR Valkyrjur                                    175,37

Deildarmeistarar:  KFR Valkyrjur

3. Sæti: ÍR TT  

3. Sæti: ÍR Píurnar

2. Sæti: ÍR Buff

Íslandsmeistarar:      KFR Valkyrjur

  1. deild karla:

Hæsti leikur:                Hafþór Harðarson (ÍR PLS)                            290

Hæsta sería:                 Hlynur Örn Ómarsson (ÍR S)                          749

Hæsta meðaltal:           Hafþór Harðarson (ÍR PLS)                            225,45

Fellukóngur:                Hafþór Harðarson (ÍR PLS)                            7,00

Stigameistari:              Gústaf Smári Björnsson (KFR Stormsveitin) 0,81

Mestu framfarir:          Hinrik Óli Gunnarsson (ÍR L)

Stjörnuskjöldur:                      ÍR PLS                                                 166 Stjörnur

Hæsti leikur liðs:                     ÍR PLS                                                 760

Hæsta sería liðs:                      ÍR S                                                     2114

Hæsta meðaltal liðs:                ÍR PLS                                                 208,27

Deildarmeistarar:  ÍR PLS 

3. Sæti: ÍA                   

3. Sæti: KFR-Lærlingar

2. Sæti: KFR-Stormsveitin

Íslandsmeistarar:      ÍR-PLS

Bikarúrslit og verðlaunaafhending KLÍ fyrir veturinn

Á laugardaginn kemur þann 5. júní verða úrslit í Bikarkeppni KLÍ 2021. Þar keppast við í kvennaflokki lið ÍR-Buff og KFR-Valkyrjur sem áttust einnig við í úrslitum 1. deildar kvenna þar sem Valkyrjur stóðu uppi sem Íslandsmeistarar. Í karlaflokki verða það lið nýkrýndra Íslandsmeistara ÍR-PLS og lið ÍA sem eigast við. Hefst keppni kl. 10 í Keiluhöllinni Egilshöll. Eru keilarar hvattir til að mæta og hvetja sitt lið.

Klukkan 14:00 þann sama dag verður svo lokahóf / verðlaunaafhending Keilusambandsins. Fer athöfnin fram á Café Easy í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Þar verða afhent verðlaun fyrir árangur vetrarins eins og vani er að gera almennt á lokahófum KLÍ.

ÍR-PLS eru Íslandsmeistarar 1. deildar karla 2021

ÍR-PLS tryggðu sér í kvöld Íslandsmeistaratitil 1. deildar eftir sigur á KFR-Stormsveitinni í 3. og síðustu umferð úrslitanna. Fyrir kvöldið var ÍR-PLS með 17 stig á móti 11 stigum KFR-Stormsveitarinnar. ÍR-PLS þurfti því 4,5 stig í kvöld til að landa titlinum. Þeir mættu heldur betur til leiks í kvöld og tóku fyrsta leikinn 4 – 0 og því aðeins 0,5 stigum frá markmiði sínu. Það tókst í 2. leik þegar Einar vann sinn keppinaut en ÍR-PLS vann leik 2 samtals 3 – 1 og því var viðureignin búin.

*uppfært*
Þetta er í 9, sinn sem ÍR-PLS landar þeim stóra. Þeir stíga þá eitt skref nær ÍR-KLS að Íslandsmeistara titlum  sem hafa unnið alls 11 en á eftir ÍR-PLS eru KFR-Lærlingar með 8 Íslandsmeistaratitla.

Best í úrslitakeppninni spilaði Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR-PLS en hann var með 238,5 í meðaltal. Skúli Freyr Sigurðsson KFR-Stormsveitinni var þar næstur á eftir með 227,0 í meðaltal. Gunnar átti einni hæsta leik 277 og hæstu seríu 725 í úrslitarimmunni.

Keikir kvöldsins fóru annars svona:

Leikur 1         ÍR-PLS KFR-Storm.
Einar 217 vs. 188 Gústaf 1 0
Gunnar 277 vs. 218 Skúli Freyr 1 0
Hafþór 216 vs. 195 Guðjón 1 0
Samt. 710   601 Heild 1 0
        Samtals 4 0
Leikur 2            
Einar 214 vs. 192 Guðjón 1 0
Gunnar 201 vs. 221 Gústaf 0 1
Hafþór 256 vs. 190 Skúli Freyr 1 0
Samt. 671   603 Heild 1 0
        Samtals 3 1
Leikur 3            
Einar   vs.   Skúli Freyr 0 0
Gunnar   vs.   Guðjón 0 0
Hafþór   vs.   Gústaf 0 0
Samt. 0   0 Heild 0 0
        Samtals 0 0
             
3. umferð     Heild Meðaltal Stig  
ÍR-PLS   1.381 230,2 9  
KFR-Stormsveitin     1.204 200,7 1  
             
Samtals     Umf. 1 Umf. 2 Umf. 3 Samtals
ÍR-PLS     7 10 11 28
KFR-Stormsveitin   7 4 3 14
             
Íslandsmeistarar 1. deildar karla eru:      
ÍR-PLS