Fyrstu leikir Gunnars Þórs á ECC 2021

Í morgun lék Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR fyrstu leiki sína á Evrópumóti landsmeistara á Krít. Leiknir voru 8 leikir í fyrri leikjablokk undankeppninnar en sú seinni fer fram í fyrramálið á föstudegi og hefst keppni kl. 7 að morgni á íslenskum tíma. Gunnar byrjaði fyrstu tvo rammana á að opna en skellti svo í lás ef svo má segja og fékk 205. Næstu leikir voru síðan nokkuð góðir, 225 – 226 – 213 og 278. Var hann í 3. sæti síns riðils eftir þá leiki en þá kom einn verri leikur á erfiðu brautarpari 181. Hann lokaði svo deginum með 215 og 207, samtals 1.754 eða 219,2 í meðaltal.

Gunnar er því samanlagt í 8. sæti eftir fyrri daginn en 16 efstu komast áfram í milliriðil keppninnar. Sem stendur er meðaltalið í 16. sætinu 207,2 og gerum við okkur góðar vonir að Gunnar Þór komist í milliriðilinn.

Sem stendur er Rúmeninn Romeo Gagenoiu í efsta sætinu með 239,4 í meðaltal en hann hóf mótið með látum og náði fullkomnum leik í fyrsta leik mótsins. Hjá konunum er það hin danska Mika Guldbaek sem er í efsta sætinu með 1.758 pinna eða 219,8 í meðaltal

Hægt er að fylgjast með mótinu á vefsíðu þess.

Gunnar Þór Ásgeirsson við opnunarathöfn ECC 2021

Frá ECC 2021 – Æfingardagurinn

Nú er Evrópumót landsmeistara, ECC 2021 hafið en æfingadagurinn fyrir mótið var í gær þriðjudag og gekk Gunnari Þór Ásgeirssyni, sem keppir fyrir Íslands hönd, vel á æfingunni. Hann hefur síðan leik á morgun fimmtudag kl. 10 að grískum tíma eða kl. 07 að íslenskum tíma. Sömu leiktimar eru síðan á föstudag hjá Gunnari Þór. Alls taka þátt í mótinu í ár 31 karlar og 28 konur.

Á vefsíðu mótsins má fylgjast með gengi okkar manns og allar upplýsingar um mótið má finna þar. Hér í Grikklandi er enn grímuskylda og þurfa leikmenn að leika með grímur.

Í dag léku fyrstu keilararnir sína leiki á mótinu og er Rúmeninn Romeo Gagenoiu efstur í karlaflokki en hann byrjaði glæsilega með því að leika 300 leik í fyrsta leik mótsins og 8 leikina alls á 1.915 pinnum eða 239,4 í meðaltal. Þegar þessi frétt er skrifuð eru konurnar að leika sína leiki.

Olían sem notuð er í mótinu er 41 fet og 27,95 mL en sjá má olíugrafið hér.

 

Gunnar Þór Ásgeirsson keppir á Evrópumóti landsmeistara á Krít

Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR mun keppa á Evrópumóti landsmeistara ECC sem fram fer á Krít, Grikklandi og hefst mótið á morgun þriðjudag. Gunnar varð í 2. sæti á Íslandsmóti einstaklinga á eftir Hafþóri Harðarsyni úr ÍR en Hafþór átti ekki heiman gengt á mótið í ár og því tók Gunnar Þór hans sæti á mótinu. Þórarinn Már Þorbjörnsson verður Gunnari til halds og traust á mótinu.

Marika Lönnroth sem varð Íslandsmeistari kvenna gat heldur ekki séð sé fært að komast á mótið né heldur næstu tvær úr mótinu og því er engin íslensk kona á mótinu í ár.

Allar upplýsingar um mótið, dagskrá, úrslit og fleira má nálgast á vefsíðu þess.

Breyting á leikjum í kvöld & á morgun

Vegna bilunar á brautum 7 – 10 færast leikir til á brautum í kvöld og á morgun

Mánudagur  25.10.2021 KL:19:15

3-4: ÍR-Broskarlar – ÍR-L (2. deild karla, 5. umferð)

5-6: KR-a – ÍR-Land (2. deild karla, 5. umferð)

Mánudagur  25.10.2021 KL: 19:00
7-8: ÍR-Fagmaður – ÍR-Naddóður (2. deild karla, 5. umferð)

9-10: KFR-JP KAST – ÍR – Blikk (2. deild karla, 5. umferð)

15-16: ÍR-T – ÍR-NAS (3. deild karla, 6. umferð)

17-18: Ösp-Ásar – ÍA-B (3. deild karla, 6. umferð)

19-20: Ösp-Goðar – ÍA-C (3. deild karla, 6. umferð)

21-22: ÍR-Gaurar – ÍR-Keila.is (3. deild karla, 6. umferð)

Þriðjudagur 26.10.2021 KL: 19:15

5-6: ÍR-KK – Ösp-Gyðjur (1. deild kvenna, 6. umferð)

7-8: KFR Skutlurnar – KFR-Valkyrjur (1. deild kvenna, 6. umferð)

Þriðjudagur 26.10.2021 KL: 19:00
9-10: ÍR-Elding – KFR-Afturgöngurnar (1. deild kvenna, 6. umferð)

15-16: ÍR-BK – KFR-Ásynjur (1. deild kvenna, 6. umferð)

17-18: ÍR-N – ÍR-BUFF (1. deild kvenna, 6. umferð)

19-20: ÍR-S – KFR-Stormsveitin (1. deild karla, 5. umferð)

21-22: ÍR-PLS – KFR-Lærlingar (1. deild karla, 5. umferð)

Þing Keilusambands Evrópu – EBF – Nýtt nafn sambandsins

Í dag fór fram í Chania á Krít í Grikklandi þing Keilusambands Evrópu. Alls voru mættir fulltrúar 30 ríkja þar á meðal voru Jóhann Ágúst Jóhannsson formaður KLÍ og Þórarinn Már Þorbjörnsson Framkvæmdastjóri KLÍ. Valgeir Guðbjartsson varaforseti sambandsins stýrði hluta þingsins frá háborði þess.

Helst ber að nefna að ákveðið var að breyta nafni sambandsins úr ETBF (European Tenpin Bowling Federation) í EBF (European Bowling Federation). Er það gert bæði til einföldunar og samræmis við breytingar alheimssambands keilunnar. Samhliða þessu var kynnt nýtt merki sambandsins sem og stefna þess í markaðsmálum á komandi mótum. Nánar verður birt efni því tengdu síðar.

Á þinginu voru samþykktar nokkrar lagabreytingar, aðalega sem miða að nafnabreytingu en einnig tekin sú ákvörðun að taka úr stefnuskrá/lögum sambandsins ákvarðanir um mótahald þess. Er það fært til stjórnar til að hægt sé að vera kvikari í aðgerðum komi til þess að breyta þurfi mótahaldi en það hefur bersýnilega komið í ljós þörf á því undanfarin misseri í Covid faraldri. Þing EBF eru annað hvert ár alla jafna og því hægara um vik ef breyta þarf reglum.

Fram kom að næstu mót sem búið er að úthluta verða samkvæmt sama fyrirkomulagi og verið hefur hingað til í EBF mótum en spurningar komu frá aðildarlöndum um hvort EC mótin færist í sama horf og IBF mótin eru að stefna. Þannig að, við í Evrópu verðum í sama keppnisfyrirkomulagi í það minnsta til 2024.

Ekki fóru fram kosningar í embætti sambandsins til næstu 4 ára. Belginn Mark Beaufays hafði tilkynnt framboð sitt til forseta sambandsins en dróg það framboð til baka líkt og hann dróg framboð sitt á móti Valgeiri 2019 í embætti varaforseta til baka. Því var Addie Ophelders frá Hollandi sjálfkjörinn til næstu 4 ára en hann gaf kost á sér áfram.

Aðeins tveir voru einnig í framboði í tvö sæti framkvæmdastjórnar EBF en það voru þeir Onder Gurkan frá Tyrklandi og Rússinn Sergey Lisitsyn.

Marika Lönnroth og Jón Ingi Ragnarsson úr KFR eru Íslandsmeistarar para 2021

Í dag lauk Íslandsmóti para 2021 og urðu þau Marika og Jón Ingi úr KFR Íslandsmeistarar. Sigruðu þau feðginin Frey Bragason og Helgu Ósk Freysdóttur í úrslitum í tveim leikjum en Marika og Jón Ingi urðu efst eftir milliriðilinn og nægðu þeim því tveir vinningar til að hampa titlinum. Í 3. sæti urðu svo þau Nanna Hólm Davíðsdóttir ÍR og Gústaf Smári Björnsson KFR.

Alls tóku 14 pör þátt í mótinu í ár en það hefur ekki verið haldið frá árinu 2019 sökum Covid. Átt efstu pörin komust í milliriðilinn að lokinni forkeppni sem var ansi spennandi í lokin upp á hvaða pör kæmust áfram.

Streymt var frá milliriðli og úrslitum og má sjá þá útsendingu á Fésbókarsíðu KLÍ.

Skor úr mótinu varð eins og hér segir

Úrslit

Nafn Leikur 1 Leikur 2
Jón Ingi Ragnarsson 192 204
Marika Katarina E. Lönnroth 195 150
Samtals 387 354
     
Freyr Bragason 213 165
Helga Ósk Freysdóttir 153 166
Samtals 366 331

Milliriðill

Sæti Samtals Mtl. pars Fork.   Nafn Skor Mtl. L1 L2 L3 L4 L5 L6
1 4.617 192,4 2.303 1.288 Jón Ingi Ragnarsson 1.225 209,4 163 186 241 165 279 191
        1.015 Marika Katarina E. Lönnroth 1.089 175,3 159 168 146 236 169 211
2 4.451 185,5 2.280 1.243 Freyr Bragason 1.155 199,8 203 190 150 222 198 192
        1.037 Helga Ósk Freysdóttir 1.016 171,1 162 131 190 154 157 222
3 4.359 181,6 2.071 1.112 Gústaf Smári Björnsson 1.126 186,5 148 145 184 200 235 214
        959 Nanna Hólm Davíðsdóttir 1.162 176,8 133 235 192 191 178 233
4 4.335 180,6 2.099 1.182 Gunnar Þór Ásgeirsson 1.246 202,3 192 212 202 187 194 259
        917 Linda Hrönn Magnúsdóttir 990 158,9 188 162 161 164 161 154
5 4.331 180,5 2.175 1.128 Hafþór Harðarson 1.227 196,3 181 200 194 236 224 192
        1.047 Katrín Fjóla Bragadóttir 929 164,7 149 161 165 173 145 136
6 4.270 177,9 2.229 1.202 Skúli Freyr Sigurðsson 1.114 193,0 187 196 206 179 185 161
        1.027 Margrét Björg Jónsdóttir 927 162,8 170 136 169 132 167 153
7 4.181 174,2 2.051 1.101 Mikael Aron Vilhelmsson 1.130 185,9 207 199 232 162 156 174
        950 Málfríður Jóna Freysdóttir 1.000 162,5 173 178 177 179 161 132
8 3.784 157,7 2.030 1.179 Sigurður Björn Bjarkason 989 180,7 172 144 124 188 179 182
        851 Laufey Sigurðardóttir 765 134,7 126 130 99 138 160 112

Forkeppni

Sæti Samtals Mtl. pars Nafn Skor Mtl. einst. L1 L2 L3 L4 L5 L6
1 2.303 191,9 Jón Ingi Ragnarsson 1.288 214,7 226 167 234 243 185 233
      Marika Katarina E. Lönnroth 1.015 169,2 133 182 144 176 192 188
2 2.280 190,0 Freyr Bragason 1.243 207,2 194 259 171 192 237 190
      Helga Ósk Freysdóttir 1.037 172,8 188 134 133 237 171 174
3 2.229 185,8 Skúli Freyr Sigurðsson 1.202 200,3 216 207 197 179 203 200
      Margrét Björg Jónsdóttir 1.027 171,2 180 153 171 139 181 203
4 2.175 181,3 Hafþór Harðarson 1.128 188,0 195 187 183 184 200 179
      Katrín Fjóla Bragadóttir 1.047 174,5 199 171 179 196 148 154
5 2.099 174,9 Gunnar Þór Ásgeirsson 1.182 222,0 179 222 207 163 190 221
      Linda Hrönn Magnúsdóttir 917 191,0 156 191 154 137 113 166
6 2.071 172,6 Gústaf Smári Björnsson 1.112 185,3 129 159 164 236 245 179
      Nanna Hólm Davíðsdóttir 959 159,8 167 156 129 174 159 174
7 2.051 170,9 Mikael Aron Vilhelmsson 1.101 183,5 172 214 160 169 164 222
      Málfríður Jóna Freysdóttir 950 158,3 172 165 178 126 155 154
8 2.030 169,2 Sigurður Björn Bjarkason 1.179 196,5 205 234 162 220 179 179
      Laufey Sigurðardóttir 851 141,8 138 131 133 145 163 141
9 2.025 168,8 Ísak Birkir Sævarsson 1.156 192,7 224 199 193 171 158 211
      Jóna Gunnarsdóttir 869 144,8 147 172 105 138 166 141
10 2.007 167,3 Hannes Jón Hannesson 1.047 174,5 179 161 183 159 170 195
      Elva Rós Hannesdóttir 960 160,0 139 187 178 145 171 140
11 2.005 167,1 Þórarinn Már Þorbjörnsson 1.119 186,5 191 181 178 185 189 195
      Bára Ágústsdóttir 886 147,7 118 144 127 196 159 142
12 1.981 165,1 Guðmundur Sigurðsson 1.009 168,2 158 165 160 174 171 181
      Helga Sigurðardóttir 972 162,0 165 139 168 148 212 140
13 1.962 163,5 Svavar Þór Einarsson 1.011 168,5 197 176 146 158 151 183
      Halldóra Í. Ingvarsdóttir 951 158,5 149 175 134 198 141 154
14 1.841 153,4 Matthías Leó Sigurðsson 1.006 167,7 189 143 179 193 179 123
      Viktoría Hrund Þórisdóttir 835 139,2 155 163 118 131 138 130

Guðlaugur Valgeirsson KFR / Högänäs með 300 leik í Svíþjóð

Guðlaugur Valgeirsson setti í einn 300 leik á Skånemästerskapet mótinu á Skáni í Svíþjóð um liðna helgi. Er þetta mót hluti af mótaröð sem er þar í gangi en keppt var í Klippans Bowlinghall salnum sem Mattias Möller rekur á svæðinu.

Þetta er annar fullkomni leikurinn sem Guðlaugur nær í keppni en fyrst náði hann þessum áfanga í Egilshöll 4. nóvember 2012 og því alveg kominn tími á næsta fullkomna leik hjá kappanum. Greinilegt er að sænska umhverfið fer vel í okkar mann úti og vonandi er styttra í næsta fullkomna leik hjá honum.

 

Guðlaugur Valgeirsson

 

Arnari Davíð boðið að leika með liði í frönsku deildinni í keilu

Arnari Davíð Jónssyni úr KFR / Högänäs var á dögunum boðið að leika með franska liðinu F300 í frönsku deildinni. Reglur deildarinnar heimila hverju liði að fá einn erlendan leikmann til liðsins hverju sinni. Keppnin fer þannig fram að 10. liða deildir eru og er keppt í landskeppninni 3 helgar yfir tímabilið. Hvert lið skiptar 5 spilandi leikmönnum og er leikið allir við alla í deildinni viðkomandi keppnishelgi. Lið Arnars F300 vann 7 af 9 leikjum sínum í þessari fyrstu umferð og er í 2. sæti.

Óhætt er að segja að þetta sé mikill heiður fyrir Arnar Davíð að fá þetta boð og er hann klárlega búinn að skapa sér nafn innan evrópsku keilunnar.

Arnar Davíð Jónsson fyrir miðju með franska liðinu F300

 

Meisarakeppni ungmenna 2021 til 2022 1. umferð

Um helgina fór fram 1. umferð í Meistarakeppni ungmenna þetta keppnistímabilið. Sem fyrr er keppt í Keiluhöllinni og var keppni í öllum flokkum nema 5. flokki stúlkna. Bestur pilta í þessari umferð varð Hinrik Óli Gunnarsson ÍR en hann leikur í 2. flokki. Spilaði hann leikina 6 á 1.117 pinnum eða 186,2 í meðaltal. Best stúlkna spilaði Alexandra Kristjánsdóttir ÍR í 2. flokki en hún lék leikina 6 á 996 pinnum eða 166,0 í meðaltal.

Úrslit umferðarinnar urðu þessi:

1. fl. pilta 18 – 20 (fæddir 2001-2003) Félag L1 L2 L3 L4 L5 L6 Samt. M.tal
  Steindór Máni Björnsson ÍR 170 182 182 168 187 185 1.074 179,0
  Adam Geir Baldursson ÍR 127 147 182 126 140 146 868 144,7
                     
1. fl. stúlkna 18 – 20 ára (fæddar 2001-2003) Félag L1 L2 L3 L4 L5 L6 Samt. M.tal
  Elva Rós Hannesdóttir ÍR 150 148 153 145 146 148 890 148,3
  Málfríður Jóna Freysdóttir KFR 133 111 162 158 98 137 799 133,2
                     
2. fl. pilta 15 – 17 ára (fæddir 2004-2006) Félag L1 L2 L3 L4 L5 L6 Samt. M.tal
  Hinrik Óli Gunnarsson ÍR 189 199 169 192 190 178 1.117 186,2
  Hlynur Helgi Atlason KFA 156 154 180 159 158 200 1.007 167,8
  Aron Hafþórsson ÍR 145 171 195 182 152 142 987 164,5
  Ísak Birkir Sævarsson KFA 115 154 135 157 172 227 960 160,0
  Guðbjörn Joshua Guðjónsson ÍR 153 147 125 123 158 175 881 146,8
                     
2. fl. stúlkna 15 – 17 ára (fæddar 2004-2006) Félag L1 L2 L3 L4 L5 L6 Samt. M.tal
  Alexandra Kristjánsdóttir ÍR 144 175 183 163 160 171 996 166,0
  Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR 160 172 142 154 130 166 924 154,0
  Viktoría Þórisdóttir KFA 148 94 124 122 137 119 744 124,0
                     
3. fl. pilta 12 – 15 ára (fæddir 2007 -2009) Félag L1 L2 L3 L4 L5 L6 Samt. M.tal
  Tristan Máni Nínuson ÍR 166 190 153 173 195 187 1.064 177,3
  Ásgeir Karl Gústafsson KFR 193 182 180 167 140 134 996 166,0
  Mikael Aron Vilhelmsson KFR 170 152 130 177 157 175 961 160,2
  Matthías Leó Sigurðsson KFA 149 130 158 145 119 148 849 141,5
  Tómas Freyr Garðarsson KFA 137 147 109 177 142 135 847 141,2
  Matthías Ernir Gylfason KFR 109 95 95 99 88 117 603 100,5
                     
3. fl. stúlkna 12 – 15 ára (fæddar 2007 -2009) Félag L1 L2 L3 L4 L5 L6 Samt. M.tal
  Nína Rut Magnúsdóttir KFA 93 86 111 88 111 95 584 97,3
                     
4. fl. pilta 9 – 11 ára (fæddir 2010 -2012) Félag L1 L2 L3 Samt. M.tal      
  Gottskálk Ryan Guðjónsson ÍR 109 123 133 365 121,7      
  Viktor Snær Guðmundsson  ÍR 87 89 108 284 94,7      
  Ólafur Breki Sigurðsson KFR 98 93 80 271 90,3      
  Svavar Steinn Guðjónsson KFR 94 77 100 271 90,3      
  Haukur Leó Ólafsson KFA 71 85 80 236 78,7      
  Þorbjörn Guðrúnarson ÍR 47 75 85 207 69,0      
                     
4. fl. stúlkna 9 – 11 ára (fæddar 2010 -2012) Félag L1 L2 L3 Samt. M.tal      
  Særós Erla Jóhönnudóttir KFA 130 102 151 383 127,7      
  Bára Líf Gunnarsdóttir ÍR 99 122 118 339 113,0      
  Friðmey Dóra Richter KFA 117 66 78 261 87,0      
  Alexandra Erla Guðjónsdóttir KFR 64 85 98 247 82,3      
                     
5. fl. pilta 5 – 8 ára (fæddir 2013-2017) Félag L1 L2 L3 Samt. M.tal      
  Sigfús Áki Guðnason ÍR 47 71 65 183 61,0      

Myndir frá verðlaunaafhendingu

1. flokkur pilta: Adam Geir Baldursson ÍR og Steindór Máni Björnsson ÍR

1. flokkur stúlkna: Elva Rós Hannesdóttir ÍR og Málfríður Jóna Freysdóttir KFR

2. flokkur pilta: Hlynur Helgi Atlason ÍA, Hinrik Óli Gunnarsson ÍR og Aron Hafþórsson ÍR

2. flokkur stúlkna: Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR, Alexandra Kristjánsdóttir ÍR og Viktoría Þórisdóttir ÍA

3. flokkur pilta: Ásgeir Karl Gústafsson KFR, Tristan Máni Nínuson ÍR og Mikael Aron Vilhelmsson KFR

3. flokkur stúlkna: Nína Rut Magnúsdóttir ÍA

Arnar Davíð Jónsson KFR / Höganäs í 2. sæti á ETB Brunswick Open 2021

Arnar Davíð Jónsson úr Keilufélagi Reykjavíkur varð um helgina í 2. sæti á Brunswick Open 2021 mótinu í Wittelsheim í Frakklandi en mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni í keilu.

Arnar Davíð, sem kom sér upp í 1. sætið fyrir lokaúrslitin laut í lægra haldi gegn Svíanum Carl Eklund í tveim leikjum 245 gegn 244 og svo 213 gegn 258. Engu að síður stórglæsilegur árangur Arnars Davíðs en eins og kunnugt er sigraði hann mótaröðina 2019 fyrstur Íslendinga og varð 5. í kjöri Íþróttafréttamanna það árið fyrir Íþróttamann ársins.

Arnar Davíð varð í 26. sæti forkeppni mótsins með 1.411 seríu eða 235,17 í meðaltal og tryggði sig þar með inn í úrslitakeppnina en þar er Arnar Davíð alla jafna í essinu sínu og vann hann sig jafnt og þétt upp listann. Í úrslitastigi 1 af 5 vann Arnar Davíð sig upp í 17. sæti með 220,5 í meðaltal eftir 4 leiki. Í úrslitastigi 2 vann hann sig enn ofar og endaði í 7. sæti með 247,75 í meðaltal eftir 4 leiki. Arnar Davíð fór niður í 8. í úrslitastigi 3 með 232,0 í meðaltal en það var síðasta sætið sem gaf rétt á loka úrslitastiginu en þar gerði Arnar Davíð sér lítið fyrir og kom sér í efsta sætið með frábærri spilamennsku með 242,0 í meðaltal í 7 leikjum.

Efstu tveir léki svo til úrslita í mótinu og þar hafði eins og áður sagði Svíinn Carl Eklund sigur úr bítum.

Stórglæsilegur árangur Arnars Davíðs en skammt er á milli móta nú þegar mótaröðin virðist vera að komast í eðlilegt horf en næsta mót Opna norska mótið hefst um komandi helgi og mun Arnar Davíð keppa seinni helgina á því móti.