Árshátíð KLÍ 2024

Árshátíð KLÍ verður haldinn laugardaginn 13.apríl í Hlégarði mosfellsbæ
U-21 Kóreu liðið mun taka að sér að rigga upp alvöru partý fyrir keilara landsins.
 
Forréttur 
carpaccio
 
Aðalréttur 
Hlaðborð af trufflumarineruð nautalund og hægeldaði salvíu kalkúnabringu, demi glace, bernaise, rótargrænmeti, kartöflum og salati.
 
Eftirréttur 
Sítrónukaka og vanilluís
 
Veislustjóri er Simmi Vill
 
Happdrætti
 
Trúbador
 
Og mögulega leynigestur
 
Ekki láta þessa geggjuðu árshátíð framhjá þér fara
 
Verð 9995.kr  Kaupið miða hér
 
Fyrir þá sem ekki vilja mæta í matinn þá kostar kr. 3.000,- á ballið. einnig selt í Sportabler
 
 

Evrópumót unglinga 2024

Evrópumót unglinga verður haldið dagana 21. mars til 1. apríl 2024 í Helsinki, Finnlandi og Ísland er að sálfsögðu með í ár líkt og undanfarin ár.  Fyrir hönd Ísland keppa:

Piltar:

Ásgeir Karl Gústafsson

Matthías Leó Sigurðsson

Mikael Aron Vilhelmsson

Tristan Máni Nínuson

 

Stúlkur:

Bára Líf Gunnarsdóttir

Olivia Clara Steinunn Lindén

Særós Erla Jóhönnudóttir

Viktoría Hrund Þórisdóttir

 

Þjálfarar Mark Heathorn og Skúli Freyr Sigurðsson

Farastjóri Margrét Björg Jónsdóttir

Íslandsmót unglinga 2024

Íslandsmót unglinga fór fram um helgina. 

Íslandsmót unglinga er ein af þremur keppnum sem KLÍ heldur fyrir ungmenni á hverju tímabili.
Keppt er bæði í pilta- og stúlknaflokki frá 10 ára og yngri upp í 18 ára.
Keppt er í aldursflokkum eða 5 flokkum alls.
Þegar úrslit í hverjum flokki liggja fyrir er keppt í opnum flokki pilta og stúlkna en þar leika þau þrjú sem eru með hæðsta meðaltal úr öllum flokkum. Sigurvegarar hvers flokks eru Íslandsmeistarar viðkomandi flokks og þau sem sigra opna flokkinn eru krýnd Íslandsmeistarar unglinga.

Íslandsmeistarar unglinga 2024 urðu Mikael Aron Vilhelmsson KFR og Særós Erla Jóhönnudóttir ÍA

Úrslit voru eftirfarandi:

Íslandsmeistarar í flokkum eru þeir sem eru feitletraðir.

 

 

Opinn flokkur – PILTAR                                   Opinn flokkur – STÚLKUR

Íslandsmeistari unglinga í OPNUM FLOKKI                     Íslandsmeistari unglinga í OPNUM FLOKKI

          Mikael Aron Vilhelmsson            KFR           Særós Erla Jóhönnudóttir                    ÍA

          Tristan Máni Nínuson                   ÍR               Bára Líf Gunnarsdóttir                            ÍR

          Matthías Ernir Gylfason                ÍA               Viktoría Hrund Þórisdóttir                      KFR

 

 

PILTAR:                                                                STÚLKUR:

  1. fl. Mikael Aron Vilhelmsson  KFR            1. fl.      Viktoría Hrund Þórisdóttir       KFR

             Tristan Máni Nínuson                ÍR                     Nína Rut Magnúsdóttir             ÍA

            Tómas Freyr Garðarsson             ÍA                                                                            

 

 

  1. fl. Matthías Ernir Gylfason KFR             

            Ásgeir Karl Gústafsson               KFR                       

            Guðmundur Árni Guðmundsson  KFR                       

 

 

  1. fl. Viktor Snær Guðmundsson ÍR               3. fl.     Særós Erla Jóhönnudóttir        ÍA

            Þorgils Lárus Davíðsson             KFR                    Bára Líf Gunnarsdóttir               ÍR

            Evan Julburom                           KFR                     Friðmey Dóra Richter                ÍA

 

4. fl. Baltasar Loki Arnarsson           ÍA             4. fl.     Alexandra Erla Guðjónsdóttir    KFR

        Davíð Júlíus Gigja                      ÍR                         Hannah Corella Rosento             ÍR       

                                                                                       Andrea Nótt Goethe                   KFR

5. flokkur                                                                 

5. flokkur 2024

Ásdór Þór Gunnarsson

Breki Már Friðriksson

Elín Dögg Baldursdóttir

Halldór Hrafn Friðriksson

Jóhanna Pála Gigja

Kolmar Freyr Kodjo Sveinarsson

 

Opinn fl. pilta 2024
Opinn fl. súlkna 2024
1. fl. pilta 2024
3. fl. pilta 2024
3. fl. stúlkna 2024
1. fl stúlkna 2024
2. fl pilta 2024
4. fl. pilta 2024
4. fl súlkna 2024

 

Íslandmeistarar einstaklinga 2024 Hafdís Pála Jónasdóttir KFR og Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR

slandsmóti einstaklinga 2024 í keilu lauk á mánudag með hörku úrslitakeppni í beinni útsendingu á Stöð2 sport.

Þátttakan í mótinu var mjög góð þetta árið, en alls tóku þátt 20 konur og 30 karlar og hillir undir að mótið þurfi að vera tvískipt á komandi árum. Í kvenna flokki var yngsti keppandinn 11 ára og sú elsta var 73 ára, en þess má geta að Jóna Gunnarsdóttir tók þátt í sínu 36 íslandsmóti í röð. Í karlaflokki létu ungmennin til sín taka þar sem þrír af átta keppendum í undanúrslitum voru undir 19 ára aldri og sá yngsti einungis 13 ára.

Í kvennaflokki spiluðu til úrslita Hafdís Pála Jónasdóttir KFR, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Nanna Hólm Davíðsdóttir ÍR. Linda féll fyrst úr leik og keppt þær Hafdís og Nanna til úslita.  Íslandsmeistari kvenna 2024 varð Hafdís Pála Jónasdóttir KFR

Loka staða hjá konunum:
1.sæti Hafdís Pála Jónasdóttir KFR 
2.sæti Nanna Hólm Davíðsdóttir ÍR
3.sæti Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR

Í karla flokki var þetta blanda af eldri og yngri sem spiluðu til úrslita, en Ísak er 19 ára.  Þeir sem spiluðu til úrslita vor Hafþór Harðarson,  Gunnar Þór Ásgeirsson og Ísak Birkir sævarsson. Hafþór féll fyrstur úr leik og til úrslita léku þeir Ísak Birkir og Gunnar Þór.  Íslandsmeistari Karla 2024 var Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR

Lokastaða hjá körlum:
1.sæti Gunnar Þór Ásgeirsson  ÍR
2.sæti Ísak Birkir Sævarsson ÍA
3.sæti Hafþór Harðarson ÍR

Bikarkeppni liða, 8 liða úrslit

Fyrir úrslitin í Íslandsmóti Öldunga 2024 var dregið í 8 liða úrslit í bikarkeppni liða.  Eftirfarndi er niðurstaðan og leikið verður 25. febrúar kl. 10:00

Konur:

KFR-Skutlurnar  –  KFR-Ásynjur

ÍR-Elding  –  ÍR-TT

KFR-Afturgöngurnar  –  KFR-Valkyrjur

ÍA-Meyjur  –  ÍR-BK

 

Karlar:

ÍR-KLS  –  ÍR-A

ÍR-Broskarlar / KFR-Grænu töffararnir  –  ÍR-L

KFR-Stormsveitin / ÍR-PLS  –  ÍA-C

ÍA  –  KFR-Lærlingar / ÍR-Fagmaður

Íslandsmót Öldunga 2024

Um liðna helgi var spilað á Íslandsmóti öldunga. Þar geta allir sem eru 50 ára eða eldri tekið þátt. Spilaðir voru 12 leikir í forkeppni á laugardag og sunnudag og komust 6 áfram í undanúrslit. Á mánudag var svo spiluð 6 manna undanúrslit þar sem allir leika við alla og fást bónusstig fyrir sigur í viðureign. Efstu 3 komast svo áfram í úrslit.

 

Í kvennaflokki var það Anna Soffía Guðmundsdóttir KFR sem stóð uppi sem sigurvegari í fyrsta sinn á Íslandsmóti öldunga eftir harða baráttu við Lindu Hrönn Magnúsdóttur ÍR í úrslitaviðureigninni. Snæfríður Telma Jónsson ÍR var í því þriðja.

 

Í karlaflokki varð Þórarinn Már Þorbjörnsson ÍR Íslandsmeistari öldunga eftir að hafa sigrað Guðmund Sigurðsson ÍA í úrslitum. Bjarki Sigurðsson ÍR lenti í þriðja sæti

Til hamingju Anna Soffía og Þórarinn Már!