Úrslit Bikarkeppni KLÍ 2013

Úrslit Bikarkeppni liða í keilu 2013 fara fram í Keiluhöllinni Egilshöll á morgun laugardaginn 4. maí og hefst keppni kl. 12:00. Deildarmeistararnir KFR-Valkyrjur mæta nýkýndum Íslandsmeisturum í ÍR-TT í kvennaflokki og ÍA-W og nýkrýndir Deildar- og Íslandsmeistarar ÍR-KLS eigast við í karlaflokki.

KFR-Valkyrjur og ÍR-TT spila á brautum 3 – 4 og ÍA-W og ÍR-KLS á brautum 5 -6.

 

Olíuburður í Bikarkeppni KLÍ er 40 fet Vargen.

Sjá reglugerð um Bikarkeppni liða og úrslit fyrri umferða.

ÍR-KLS urðu bikarmeistarar liða síðustu 3 árin 2010 – 2012 og átta sinnum alls, ÍR-TT urðu bikarmeistarar 2012 og 2010, KFR-Valkyrjur voru bikarmeistarar 5 ár í röð á árunum 2004 til 2009, en ÍA hefur aldrei unnið þennan titil. Sjá bikarmeistara fyrri ára.

ÍA og KFR Íslandsmeistarar félaga 2013

Fjórða og síðasta umferð Íslandsmóts félaga fór fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð í kvöld, fimmtudaginn 2. maí. Eftir hörkuspennandi keppni til lokaleiks var það ÍA sem stóð uppi sem sigurvegari í keppninni og tryggði sér titilinn Íslandsmeistari félaga í opnum flokki í fyrsta sinn með 171 stig. Flestum að óvörum þá voru það kvennaliðin sem veittu Skagamönnunum mesta keppni og voru öruggar í næstu tveimur sætum. ÍR konur voru í 2. sæti með 165,5 stig og KFR konur enduðu í 3. sæti með 161,5 stig.

KFR konur tryggðu sér hins vegar titilinn Íslandsmeistari félaga í kvennaflokki árið 2013 með 59 stig. Þær unnu í kvöld stórsigur á ÍR konum sem náðu ekki að verja titilinn og máttu sætta sig við 2. sætið með 47 stig og ÍFH konur enduðu í 3. sæti með 2 stig.
 

Úrslit í Opnum flokki:
1. sæti ÍA 171 stig
2. sæti ÍR konur 165,5 stig
3. sæti KFR konur 161,5 stig
4. sæti ÍR karlar 156 stig
5. sæti KFR karlar 141 stig
6. sæti KR 134 stig
7. sæti ÍFH karlar 45 stig
8. sæti ÍFH konur 34 stig

Úrslit í kvennaflokki:
1. sæti KFR konur 59 stig
2. sæti ÍR konur 47 stig
3. sæti ÍFH konur 2 stig

Sjá nánar félagakeppni

ÍR Íslandsmeistari unglingaliða 2013

Úrslitakeppni Íslandsmóts unglingaliða fór fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 27. apríl. Til úrslita kepptu fjögur efstu liðin í mótinu eftir allar fimm umferðir vetrarins, en þau voru ÍA 1, ÍR 1, KFR 1 og ÍR 2.

Lið ÍR 1 mætti mjög einbeitt til leiks og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Lið ÍA 1 varð í 2. sæti og lið ÍR 2 og KFR 1 urðu í 3. sæti. Með liði ÍR 1 spiluðu Þorsteinn Hanning Kristinsson, Benedikt Svavar Björnsson og Alexander Halldórsson.

Í undanúrslitunum vann lið ÍA 1 mótherjana í ÍR 2 með samtals 860 pinnum á móti 703 og lið ÍR 1 vann mótherjana í KFR 1 með 961 pinna á móti 692. Í úrslitunum vann lið ÍR 1 mótherjana í ÍA 1 með samtals 998 pinnum á móti á móti 860.

Sjá skor og úrslitin í mótinu

 

Árshátíð KLÍ 4. maí 2013

Árshátíð KLÍ 2013 verður haldin í Rúbín Öskjuhlíð laugardaginn 4. maí n.k. Boðið verður upp á fordrykk og glæsilegt hlaðborð. Afhent verða verðlaun fyrir veturinn, happdrætti með fjölda góðra vinninga, skemmtiatriði og ball. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 19:45. Árshátíðin er í umsjón og til styrktar karlalandsliðinu sem keppir á heimsmeistaramótinu í keilu í Las Vegas í ágúst.

Miðaverð kr. 6.000. Miðapantanir eru hjá Einari Má [email protected] og í síma 869 0616, eða öðrum landsliðsmönnum. Á fimmtudaginn 2 maí verður karlalandsliðiðið í Öskjuhlíðinni frá klukkan 18:30 – 23:00 að selja og afhenda miða á árshátíðina. Þeir sem vilja leggja inn á reikning frekar geta gert það á reikning 0331-26-1281 KT 0112815169.

Missið ekki af tækifærinu til að enda keppnistímabilið og fagna með félögunum.

Meðal vinninga í happdrættinu er:
Keilukúlur
2ja kúlu keilutaska
Leikhúsmiðar fyrir 2 í Borgarleikhúsið
Golf sólgleraugu og golfkúlur
Snyrtivörur
Gisting á ION Iceland Nesjavöllum
Aðgöngumiði á Typpasafnið
3stk. Pure Komachi 2 Hnífar
Gjafabréf á andlitsmeðferð
Árskort í Bláfjöll
Gjafabréf frá Worldclass
Gjafabréf á tertu fyrir 16 manns
Pizzur
Geisladiskar og DVD myndir
Úti kertalugt
Kertastjakar
Baðvörur frá Bed, Bath and bodyworks
Matur á Saffran
Matur á TGI
Gisting í Sumarbústað
Gisting á Hótel Holt með morgunverði og freyðivíni
Dinner á Hótel Holti
Flugtími hjá Keili
Gisting á Fosshóteli
Ostakörfur
Matur á Kaffi Paris

Íslandsmót félaga 4. og síðasta umferð

Fjórða og síðasta umferð Íslandsmóts félaga fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð á morgun, fimmtudaginn 2. maí og hefst keppni kl. 19:00.

Staðan er þannig eftir 3. umferð að ÍA er í efsta sætinu í Opna flokknum, með 134 stig. Röð næstu liða er einnig óbreytt þannig að KFR-Konur eru í 2. sæti með 122,5 og ÍR-Konur eru í 3. sæti með 118,5 stig. ÍR-Karlar eru í 4. sæti með 114,5 stig, en KFR-Karlar eru í 5. sæti með 106,5 stig. KFR-Konur eru í efsta sæti í kvennaflokki með 42 stig, ÍR-konur eru í 2. sæti með 37 stig og ÍFH-Konur eru í 3. sæti með 3 stig.

 Olíuburður í Íslandsmóti félaga er 40 fet Vargen. Sjá nánar félagakeppni
 

ÍR-KLS Íslandsmeistarar liða 2013

Lið ÍR-KLS tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla annað árið í röð, en liðið var að vinna titilinn í áttunda sinn frá upphafi. Í liði ÍR-KLS eru Magnús Magnússon, Einar Sigurður Sigurðsson, Andrés Páll Júlíusson, Arnar Sæbergsson, Árni Geir Ómarsson og Stefán Claessen.

Þriðja og síðasta viðureignin í úrslitunum á móti ÍR-PLS fór fram í Egilshöllinni í kvöld. Fyrir leikinn í kvöld var ÍR-KLS komið með 25 stig á móti 15 stigum ÍR-PLS. ÍR-KLS vann fyrsta leikinn 5 – 1 og tryggði sér sigurinn í öðrum leik sem fór 1 – 5 og gaf því þriðja leikinn. Samtals vann því ÍR-KLS með 31 stigi á móti 29 hjá ÍR-PLS.

Lið ÍR-KLS mætti mjög ákveðið til leiks og vann fyrsta leikinn 5 – 1 með 779 á móti 745 hjá ÍR-PLS. ÍR-PLS vann síðan annan leikinn með 825 á móti 715 hjá ÍR-KLS sem var þar með búið að tryggja sér titilinn og gaf því þriðja leikinn. Samtals var ÍR-KLS með 1.494 og ÍR-PLS með 1.570. Hafþór Harðarson ÍR-PLS spilaði best í kvöld með 435 í tveimur leikjum og Magnús Magnússon ÍR-KLS var með 411. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

ÍR-TT Íslandsmeistarar liða 2013

Lið ÍR-TT tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í keilu annað árið í röð. Þetta var í þriðja skiptið sem liðið hampar titlinum, en þær urðu í fyrsta skiptið Íslandsmeistarar árið 2010. Í liði ÍR-TT eru Katrín Fjóla Bragadóttir, Guðný Gunnarsdóttir, Sigríður Klemensdóttir, Sigurlaug Jakobsdóttir og Linda Hrönn Magnúsdóttir.

Þriðja og síðasta viðureignin í úrslitunum á móti deildarmeisturunum KFR-Valkyrjum fór fram í Egilshöllinni í kvöld. ÍR-TT vann viðureignina í spennandi keppni með 14 stigum á móti 6 og vann því samtals í úrslitunum með 39 stigum á móti 21 hjá  KFR-Valkyrjum. Sömu lið eigast við í úrslitum Bikarkeppni liða á laugardaginn.

KFR-Valkyrjur mættu mjög ákveðnar til leiks í kvöld og byrjuðu á því að vinna fyrsta leikinn 5 – 1 með 718 á móti 707 hjá ÍR-TT og staðan í einvíginu var því orðin 25 hjá ÍR-TT á móti 15 hjá KFR-Valkyrjum. Lið ÍR-TT var hins vegar ekki á því að gefast upp og vann næsta leikinn 6 – 0 með 747 á móti 691 og voru þær þá búnar að tryggja sér titilinn. ÍR-TT vann síðan síðasta leikinn 5 – 1 með 713 á móti 606 hjá KFR-Valkyrjum samtals spilaði ÍR-TT 2.167, en KFR-Valkyrjur 2.015. Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT spilaði best allra í kvöld með 587 seríu og unglingalandsliðskonan Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR-TT setti persónulegt met í einum leiki þegar hún spilaði 233 og þremur leikjum með 583 seríu. Stöðuna í úrslitakeppninni er hægt að sjá hér

Úrslit Bikarkeppni liða 2013

Úrslit Bikarkeppni liða í keilu 2013 fara fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 4. maí og hefjast kl. 12:00. Þar mætast KFR-Valkyrjur og ÍR-TT í kvennaflokki og ÍA-W og  ÍR-KLS eigast við í karlaflokki.

ÍR-KLS urðu bikarmeistarar liða síðustu 3 árin 2010 – 2012 og átta sinnum alls, ÍR-TT urðu bikarmeistarar 2012 og 2010, KFR-Valkyrjur voru bikarmeistarar 5 ár í röð á árunum 2004 til 2009, en ÍA hefur aldrei unnið þennan titil.

KFR-Valkyrjur og ÍR-TT spila á brautum 3 – 4 og ÍA-W og ÍR-KLS á brautum 5 -6.

Olíuburður í Bikarkeppni KLÍ er 40 fet Vargen.

Sjá reglugerð um Bikarkeppni liða og úrslit fyrri umferða.

Sjá bikarmeistara fyrri ára.

Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ

Úrslitakeppni Utandeildar KLÍ fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 4. maí og hefst keppni kl. 11:00. Til úrslita keppa efstu tvö liðinu úr hverjum riðli, en þau eru Landsbankinn 1 og Utandeildarmeistarar síðasta árs Geirfuglar úr Riðli 1. Naddóður og Langi burður og feykjurnar úr Riðli 2 og Steven Segal og Amish-the way of life úr Riðli 3. Keppnin fer fram á brautum 7 – 12, sjá brautaskipan í úrslitum.

Sjá upplýsingar um Utandeild KLÍ hér

Í úrslitum leika liðin einfalda umferð eftir sama fyrirkomulagi og í riðlakeppninni. Það lið sem hefur flest stig að þessum leikjum umferðum loknum er Utandeildarmeistari. Ef tvö eða fleiri lið eru með jafnmörg stig sigrar það lið sem er með hærra meðaltal úr úrslitakeppninni. Ef það er jafnt gildir meðaltal úr forkeppninni og ef það er jafnt skal hlutkesti ráða úrslitum. Ef fjöldi liða í úrslitakeppni er fleiri en 4 lið skal leika einfalda umferð. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í deildinni og hlýtur sigurvegarinn auk þess veglegan farandgrip til varðveislu í eitt ár. Auk þessa eru veitt margvísleg liða- ogeinstaklingsverðlaun.