Bikarkeppni liða 2013 – 2014

Dregið hefur verið í umspil fyrir 16 liða úrslit í Bikarkeppni liða og munu þessi lið etja kappi þann 13. og 14. október. Eftirtalin lið leika í 32 liða úrslitum karla um sæti í 16 liða úrslitum:

 

32 Liða    
ÍR-L KR-C   Öskjuhlíð
ÍA-B ÍFH-Stuðboltar Skaginn
ÍFH-Múrbrjótur KR-B   Öskjuhlíð
ÍA KR-A   Skaginn

 

 Olíuburður í Bikarkeppni liða er * 2011 USBC Open Championships – Reno

Reykjavíkurmeistarar með forgjöf 2013

Opna Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf 2013 fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll 14. og 15. september s.l.

Halldóra Íris Ingvarsdóttir og Hafþór Harðarson ÍR eru Reykjavíkurmeistarar einstaklinga í keilu með forgjöf 2013. Herdís Gunnarsdóttir ÍR var í öðru sæti hjá konunum og Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR var þriðja. Hjá körlunum voru Guðlaugur Valgeirsson KFR í öðru sæti og Daníel Rodriguez ÍR þriðji.
 

Eftir forkeppnina var staðan hjá konunum þannig að Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR var í fyrsta sæti með 2.029 pinna, Herdís Gunnarsdóttir ÍR  var í öðru sæti með 1.859, Sigurlaug Jakobsdóttir ÍR var í þriðja sæti með 1.848 og Halldóra Íris Ingvarsdóttir ÍR var í fjórða sæti með 1.817. Sjá nánar stöðuna í kvennaflokki eftir forkeppnina.

Í undanúrslitunum vann Halldóra Íris Katrínu Fjólu 2 – 1 og Herdís vann Sigurlaugu 2 – 0. Í úrslitunum vann Halldóra ÍRis Herdísi 2 – 0 og í leiknum um þriðja sætið vann Katrín Fjóla Sigurlaug einnig 2 – 0. Sjá nánar úrslit í kvennaflokki.

Eftir forkeppnina var staðan hjá körlunum þannig að Guðlaugur Valgeirsson KFR var efstur með 2.133 pinna, Hafþór Harðarson ÍR var í öðru sæti með 2.105 pinna, Ásgrímur Helgi Einarsson kFR var í þriðja sæti með 2.075 pinna og og Daníel Rodriguez ÍR var í fjórða sæti með 2.051. Sjá nánar stöðuna í karlaflokki eftir forkeppnina.

Í undanúrslitunum vann Hafþór Atla 2 – 0 og Andrés vann Arnar 2 – 1. Í úrslitunum vann Hafþór Andrés 2 – 0 og Arnar vann Atla 2 – 1 í leik um þriðja sætið. Sjá nánar úrslit í karlaflokki.

KFR-Valkyrjur og ÍA-W eru Meistarar meistaranna 2013

KFR-Valkyrjur og ÍA-W tryggðu sér sigur í Meistarakeppni KLÍ 2013 sem fram fór í Keiluhöllinni í Egilshöll 11. september s.l.  Þetta var í sjötta sinn sem KFR-Valkyrjur tryggðu sér þennan titil, en Skagamenn voru að vinna keppnina í fyrsta sinn.

Bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur mættu þar Íslandsmeisturunum ÍR-TT og unnu þær í spennandi leik með 2.167 gegn 2.128. KFR-Valkyrjur byrjuðu mun betur og voru komnar með 164 pinna í forskot eftir fyrsta leik, en ÍR-TT spilaði betur í seinni tveimur leikjunum og var við það að vinna upp forskotið.

Lið ÍA-W sem hafnaði í 2. sæti í Bikarkeppni liða vann Íslands- og Bikarmeistararana úr ÍR-KLS með 2.197 gegn 2.121. Skagamenn byrjuðu betur og unnu fyrsta leikinn með 109 pinnum og ÍR-KLS náði ekki að vinna upp forskotið.

Hæstu seríur kvöldsins áttu þær Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum með 642, Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT með 602, Elín Óskarsdóttir KFR-Valkyrjum með 597 og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT sem spilaði 542. Hjá körlunum voru það Skúlli Freyr Sigurðsson ÍA-W með 667 og Magnús Magnússon ÍR-KLS 603 sem áttu hæstu seríurnar, Magnús S. Guðmundsson ÍA-W spilaði 555 og Sigurður Þ. Guðmundsson ÍA-W spilaði 526.
 

Reykjavíkurmeistarar 2013

Opna Reykjavíkurmót einstaklinga 2013 fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll 7. og 8. september s.l.

Dagný Edda Þórisdóttir KFR og Hafþór Harðarson ÍR eru Reykjavíkurmeistarar einstaklinga í keilu 2013. Ástrós Pétursdóttir ÍR var í öðru sæti hjá konunum og Jóna Gunnarsdóttir KFR var þriðja. Hjá körlunum voru Andrés Páll Júlíusson ÍR í öðru sæti og Arnar Sæbergsson ÍR þriðji.

Eftir forkeppnina var staðan hjá konunum þannig að Ástrós Pétursdóttir ÍR var í fyrsta sæti með 1.810 pinna eða 201,11 að meðaltali, Dagný Edda Þórisdóttir var í öðru sæti með 1.740 eða 193,33 að meðaltali, Guðný Gunnarsdóttir ÍR var í þriðja sætimeð 1.702 og 189,11 og Jóna Gunnarsdóttir KFR var í fjórða sæti með 1.539 og 171,0. Sjá nánar stöðuna í kvennaflokki eftir forkeppnina.

Í undanúrslitunum vann Ástrós Jónu 2 – 1 og Dagný Edda vann Guðnýju einnig 2 – 1. Í úrslitunum vann Dagný Edda Ástrósu 2 – 0 og í leiknum um þriðja sætið vann Jóna Guðnýju 2 – 1. Sjá nánar úrslit í kvennaflokki.

Eftir forkeppnina var staðan hjá körlunum þannig að Hafþór Harðarson ÍR var efstur með 1.971 pinna eða 219,0 að meðaltali í leik. Arnar Sæbergsson ÍR var í öðru sæti með 1.774 pinna eða 197,11 að meðaltali, Andrés Páll Júlíusson ÍR var í þriðja sæti með 1.640 pinna og 182,22 að meðaltali og Atli Þór Kárason KR var í fjórða sæti með 1.634 pinna og 181,56. Sjá nánar stöðuna í karlaflokki eftir forkeppnina

Í undanúrslitunum vann Hafþór Atla 2 – 0 og Andrés vann Arnar 2 – 1. Í úrslitunum vann Hafþór Andrés 2 – 0 og Arnar vann Atla 2 – 1 í leik um þriðja sætið. Sjá nánar úrslit í karlaflokki.

1. umferð 1. deildar karla

Fyrstu leikirnir í 1. umferð 1. deildar karla á Íslandsmóti liða fóru fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keiluhöllinni Egilshöll þriðjudaginn 17. september. Úrslit leikjanna voru sem hér segir:

 

1. deild Karla     Úrslit viðureignar     Staða
                 
1. umferð                
ÍA KR-B 4 16   KR-B 16
KR-C KFR-Lærlingar 7 13   ÍR-PLS 15
KFR-Stormsveitin ÍR-PLS 5 15   ÍR-KLS 14
ÍR-KLS KR-A 14 6   KFR-Lærlingar 13
ÞÓR ÍA-W       KR-C 7
              KR-A 6
              KFR-Stormsveitin 5
              ÍA 4
              ÞÓR

0

              ÍA-W 0

 Leikur Þórs og ÍA-W fer fram í Keilunni á Akureyri laugardaginn 21. september.

1. umferð 2. deildar karla

  1. umferð 2. deildar karla á Íslandsmóti liða fór fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keiluhöllinni Egilshöll mánudaginn 16. september. Úrslit leikjanna voru sem hér segir:

 

 

2. deild Karla     Úrslit viðureignar     Staða
                 
1. umferð                
ÍR-KEILA.IS ÍR-NAS 16 4   ÍR-KEILA.IS 16
KFR-JP-KAST ÍR-BROSKARLAR 4 16   ÍR-BROSKARLAR 16
KFR-ÞRÖSTUR ÍR-T 7 13   ÍR-BLIKK 15,5
ÍR-A ÍR-L 14 6   ÍR-A 14
ÍR-BLIKK ÍR-NADDÓÐUR 15,5 4,5   ÍR-T 13
              KFR-ÞRÖSTUR 7
              ÍR-L 6
              ÍR-NADDÓÐUR 4,5
              KFR-JP-KAST 4
              ÍR-NAS 4

 

1. umferð 3. deildar karla

 Fyrstu leikirnir í 1. umferð 3. deildar karla á Íslandsmóti liða fóru fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keiluhöllinni Egilshöll mánudaginn 16. september. Úrslit leikjanna voru sem hér segir:

 

 

3. deild Karla     Úrslit viðureignar     Staða
                 
1. umferð                
ÍR-Gaurar ÍFH-STUÐBOLTAR 17,5 2,5   ÍR-Gaurar 17,5
ÞÓR-PLÚS KR-D       ÍR-S 15
ÍR-FAGMAÐUR ÍFH-MÚRBRJÓTUR 12 8   ÍR-FAGMAÐUR 12
ÍR-S ÍA-B 15 5   ÍFH-MÚRBRJÓTUR 8
              ÍA-B 5
              ÍFH-STUÐBOLTAR 2,5
              ÞÓR-PLÚS 0
              KR-D 0

Leikur Þórs-Plús og KR-D fer fram í Keilunni á Akureyri laugardaginn 21. september.

1. umferð 1. deildar kvenna

1. umferð 1. deildar kvenna á Íslandsmóti liða fór fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keiluhöllinni Egilshöll þriðjudaginn 17. september. Sjá stöðuna eftir 1. umferð. Úrslit leikjanna voru sem hér segir:

 

 

1. deild Kvenna     Úrslit viðureignar     Staða
                 
1. umferð             ÍR-N 19
KFR-Valkyrjur ÍFH-ELDING 18 2   KFR-Valkyrjur 18
ÍR-TT ÍR-KK 18 2   ÍR-TT 18
KFR-Afturgöngurnar ÍR-Buff 14 6   ÍR-BK 17
ÍR-SK ÍR-N 1 19   KFR-Afturgöngurnar 14
ÍR-BK ÍA 17 3   ÍR-Buff 6
              ÍA 3
              ÍFH-ELDING 2
              ÍR-KK 2
              ÍR-SK 1
              KFR-Skutlurnar 0

 

Íslandsmót í tvímenningi 2013

Íslandsmót í tvímenningi 2013 verður haldið í Keiluhöllinni í Egilshöll laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. október n.k. Skráning mun fara fram á netinu á netfangið [email protected] og lýkur miðvikudaginn 2. október klukkan 22.00. Sjá nánar í auglýsingu.

Íslandsmót í tvímenningi 2013

Verður haldið í Keiluhöllinni í Egilshöll laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. október n.k.

 
Forkeppni laugardaginn 5. október kl. 8:00 í Egilshöll
Spilaðir eru 4 leikir. Efstu 10 tvímenningarnir halda áfram í milliriðil. Verð í forkeppni kr. 6,500,- pr. tvímenning.
 
Milliriðill laugardaginn 5. október kl. 10:00 í Egilshöll
Spilaðir eru 4 leikir. Efstu 6 tvímenningarnir halda áfram í undanúrslit. Verð í milliriðil kr. 6,000,- pr. tvímenning.
 
Undanúrslit sunnudaginn 6. október kl. 8:00 í Egilshöll
Spilað er allir við alla einföld umferð. Efstu 2 tvímenningarnir leika til úrslita strax að loknum undanúrslitum. Verð í undanúrslit kr. 6,500,- pr. tvímenning.
 
Úrslit sunnudaginn 6. október – strax að loknum undanúrslitum:
Tveir stigahæstu tvímenningarnir leika síðan til úrslita, sá tvímenningur sem er efstur að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflis viðureignir teljast sem hálft stig á hvorn tvímenning. Ef enn er jafnt eftir 5 leiki skal pinnafall ráða. Sjá nánar í reglugerð KLÍ um Íslandsmót í tvímenningi. Skráning mun fara fram á netinu á netfangið [email protected] og lýkur miðvikudaginn 2. október klukkan 22.00. Senda þarf nöfn beggja keppenda tvímenningsins til mótanefndar á [email protected] . Notast verður við þennan skráningarmáta í mót þar til ný lausn finnst á netskráningu.
 
Nefndin áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.
 
Mótanefnd KLÍ
 
HafÞór Harðarson og Einar Már Björnsson úr ÍR eru Íslandsmeistarar í tvímenningi 2012.

Olíuburður í mótum á keppnistímabilinu 2013 – 2014

Stjórn KLÍ hefur nú samþykkt tillögur tækninefndar fyrir olíuburð á keppnistímabilinu 2013 – 2014 og eru þeir eftirtaldir:
Íslandsmót liða fyrri hluti * 2007 EBT 17 – Oltremare Open 41 fet
Íslandsmót liða seinni hluti * 2010 EBT 09 – Bowltech Aalborg International 38 fet
Íslandsmót félaga WTBA Atlanta (38′)_12
Íslandsmót para WTBA Athens (40′)_12

Íslandsmót tvímenning WTBA Athens (40′)_12 og WTBA Mexico City (45′)_12
Íslandsmót 50 ára+ 2013 USBC Senior Masters
Íslandsmót einstaklinga m/forgjöf WTBA Athens (40′)_12
Íslandsmót einstaklinga WTBA Beijing (35′)_12 og WTBA Athens (40′)_12
Deildarbikar liða MIDDLE ROAD – 4239 39 fet
Bikarkeppni liða * 2011 USBC Open Championships – Reno
Utandeild MIDDLE ROAD – 4239 39 fet

Sjá nánar auglýsingu og upplýsingar um mót á vegum KLÍ