Meistarakeppni ungmenna 1. umferð

1. umferð Meistarakeppni ungmenna á keppnistímabilinu 2013 – 2014 fer fram á morgun laugardaginn 28. september í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og hefst keppni kl. 9:00. Að þessu sinni eru 48 ungmenni skráð til keppni á mótinu frá þremur keilufélögum, 28 keppendur frá Keiludeild ÍR og 20 keppendur frá Keilufélagi Reykjavíkur og Keilufélagi Akraness.

Í Meistarakeppni ungmenna taka þátt börn og ungmenni, 20 ára og yngri sem æfa hjá keilufélögunum og er skráning í mótið hjá þjálfurum félaganna. Keppni í Meistarakeppni ungmenna í keilu fer fram u.þ.b. mánaðarlega yfir veturinn, sjá leikdaga í dagskrá 

Keppt er í fjórum aldursflokkum:
1. flokkur 18 – 19 – 20 ára
2. flokkur 15 – 16 – 17 ára
3. flokkur 12 – 13 – 14 ára
4. flokkur 9 – 10 – 11 ára
Miða skal við afmælisár, en keppendur halda sínum flokki fram yfir áramótin og til loka móts.

Raðað er í sæti eftir heildarskori í hverjum flokki í hverri umferð. Stig eru gefin fyrir öll sæti í hvert skipti. Stigagjöf er eftirfarandi:
1. sæti hlýtur 12 stig
2. sæti hlýtur 10 stig
3. sæti hlýtur 8 stig
4. sæti hlýtur 7 stig
5. sæti hlýtur 6 stig
6. sæti hlýtur 5 stig
7. sæti hlýtur 4 stig
8. sæti hlýtur 3 stig
9. sæti hlýtur 2 stig
10. sæti og neðar hlýtur 1 stig

Sjá nánar í regluferð um Meistarakeppni ungmenna

AMF World Cup 1. umferð 2013 – 2014

Fyrsta umferð AMF mótaraðarinnar 2013 – 2014 fer fram í Keiluhöllinni í Egilshöll 16., 19. og 20. október n.k. Hægt verður að velja um tvo riðla í forkeppninni, miðvikudaginn 16. október kl. 19:00 og laugardaginn 19. október kl. 9:00. 10 efstu keppendurnir án forgjafar keppa til úrslita sunnudaginn 20. október og hefst keppnin kl. 9:00. Skráning er á netfangið [email protected] og taka skal fram hvaða leikdag/-daga skráningin á við. Olíuburður í mótinu er 2007 USBC Open Championships (3340).

Þetta mót er fyrsta mótið í röð þriggja móta sem geta tryggt þátttakendum rétt til keppni um sæti  Heimsbikarmóti Qubica AMF World Cup 2014. Í úrsitum mótaraðarinnar eiga keppnisrétt 10 stigahæstu keppendurnir úr öllum þremur AMF mótum vetrarins. Sjá nánar í auglýsingu og reglugerð fyrir AMF mótin.

Arnar Sæbergsson og Guðný Gunnarsdóttir úr ÍR tryggðu sér sigurinn á AMF mótaröðinni á síðasta keppnistímabili og munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsbikarmóti Qubica AMF World Cup 2013 sem fram fer í borginni Krasnoyarsk í Síberíu í Rússlandi í 15. – 24. nóvember n.k.

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Í október hefst haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs almenns hluta sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Haustfjarnám 1. stigs í þjálfaramenntun ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 7. október nk. og tekur átta vikur.  Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.-  Allt efni er innifalið í gjaldinu s.s. bókin Þjálffræði sem send er heim til þátttakenda ásamt öðru efni.  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum landsins.  Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur!  Skráning er á [email protected] eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 3. október. Sjá nánar í auglýsingu

Haustfjarnám 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 14. október nk. og tekur það fimm vikur.  Um er að ræða samtals 40 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 18.000.-  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Það er sjálfstætt framhald náms á 1. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms, s.s. náms í ÍÞF 1024. Skráning er á [email protected] eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 10. október n.k. Sjá nánar í auglýsingu
 

Unglingamót á keppnistímabilinu 2013 – 2014

Dagskrá unglingamóta á keppnistímabilinu 2013 – 2014 hefur nú verið birt á heimasíðu KLÍ. Að venju verður keppt í Meistarakeppni ungmenna, Íslandsmóti unglingaliða og Íslandsmóti unglinga. Fyrsta umferðin í Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 28. september n.k. og fyrsta umferðin á Íslandsmóti unglingaliða fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 12. október n.k. Nánari upplýsingar og skráning í mótin er hjá þjálfurum keilufélaganna.

Nýtt meðaltal 31. ágúst 2013

Birt hefur verið nýtt allsherjarmeðaltal miðað við 31. ágúst 2013

Hafþór Harðarson ÍR, Magnús Magnússon ÍR og Robert Anderson ÍR eru með hæsta meðaltal karla með 214 pinna að meðaltali í leik. Næstir á eftir þeim koma Arnar Sæbergsson ÍR með 210, Skúli Freyr Sigurðsson ÍA með 207 og Magnús S. Guðmundsson ÍA með 201.

Guðný Gunnarsdóttir ÍR er með hæsta meðaltal kvenna 191 pinna að meðaltali í leik. Næstar á eftir henni koma Dagný Edda Þórisdóttir KFR með 186, Elín Óskarsdóttir KFR og Ástrós Pétursdóttir ÍR með 180, Ragna Matthíasdóttir KFR með 179 og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR með 176.

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Deildarbikar liða 2013 – 2014

Dregið hefur verið að nýju í riðla fyrir keppni í Deildarbikar liða á keppnistímabilinu 2013 – 2014 og hefst 1. umferð þann 8. október með því að A riðill leikur í Öskjuhlíðinni en B og C riðlar leika í Egilshöllinni. Alls eru það 19 lið sem keppa í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Skipting liða í riðla er eftirfarandi:

 

 

  Deildarbikar Riðill
kv- ÍR-TT A
kv- ÍFH-Elding A
1- ÍR-PLS A
1- KR-A A
2- ÍR-L A
3- ÍFH-Stuðboltar A
3- ÍR-Fagmaður A
kv- KFR-Afturgöngurnar B
kv- ÍR-Buff B
1- ÍA B
1- KR-B B
2- KFR-Þröstur B
3- ÍFH-Múrbrjótur B
kv- ÍR-BK C
1- ÍR-KLS C
1- KR-C C
1- ÍA-W C
2- ÍR-Broskarlar C
3- KR-D C

Sjá dagskrá Deildarbikars í vetur. Olíuburður í Deildarbikar liða er MIDDLE ROAD – 4239 39 fet

ÍR-KLS er Deildarbikarmeistari liða 2013. Á myndinni má sjá Andrés Pál Júlíusson, Magnús Magnússon og Arnar Sæbergsson.