NMU 2013 – Liðakeppni

Eftir fyrri 3 leikina í liðakeppninni á Norðurlandamóti 23 ára og yngri eru Finnar í forystu hjá piltunum með 2.618 pinna, Svíar komust í 2. sæti í síðasta leiknum og eru með 2.550, Danir koma í 3. sæti með 2.449, Norðmenn komust upp fyrir Ísland í síðasta leiknum og eru í 4. sæti með 2.233 og Ísland er í 5. sæti með 2.164. Sjá stöðuna í liðakeppni pilta

Svíar eru efstar í stúlknaflokki með samtals 2.447 pinna, Finnar koma í 2. sæti með 2.358, Norðmenn eru í 3. sæti með 2.209, Danir eru í 4. sæti með 2.163 og Ísland er í 5. sæti með 1.998 pinna. Sjá stöðuna í liðakeppni stúlkna

Seinni þrír leikirnir í liðakeppninni verða spilaðir fyrir hádegi á morgun og hefst keppni kl. 10:00 að staðartíma. Fylgist með á heimasíðu mótsins, beinni útsendingu og skorinu

Staðan er þannig í heildarkeppninni (All-Events) að Jesper Svensson er kominn með góða forystu hjá piltunum og er með samtals 2.121 pinna eða 235,67 að meðaltali í leik í 9 leikjum. Finninn Tony Ranta er kominn í 2. sætið með samtals 1.967 og Svíinn Markus Jansson er þriðji með 1.927. Arnari Davíð gekk ekki eins vel í liðakeppninni eins og í einstaklingskeppninni í morgun og féll niður í 7. sætið og er með 1.884 pinna eða 209,33 að meðaltali. Skúli Freyr Sigurðsson er í 13. sæti með 1774 pinna eða 197,11 að meðaltali og vantar 68 pinna upp á sæti í úrslitum. Guðlaugur Valgeirsson spilaði best íslensku keppendanna í liðakeppninni í dag og er kominn í 18 sætið með 1.641, en Einar Sigurður Sigurðsson er í 20. sæti með 1.563. Sjá stöðuna í heildarkeppni pilta

Ástrós Pétursdóttir er efst íslensku stúlknanna og er nú í 15 sæti með 1.618 eða 179,78 að meðaltali í 9 leikjum. Hafdís Pála Jónasdóttir er í 18. sæti með 1.503 eða 167 að meðaltali, Katrín Fjóla Bragadóttir er í 19. sæti með 1.500 eða 166,67 að meðaltali og Bergþóra Rós Ólafsdóttir er í 20. sæti með 1.373 pinna eða 152,56 að meðaltali. Sjá stöðuna í heildarkeppni stúlkna

NMU 2013 – Einstaklingskeppni

Arnar Davíð Jónsson KFR tryggði sér í morgun silfurverðlaun á Norðurlandamóti ungmenna sem nú fer fram í Malmö í Svíþjóð. Jesper Svensson Svíþjóð tryggði sér gullverðlaunin með 1.413 eða 235 pinna að meðaltali í 6 leikjum. Arnar Davíð spilaði 1.315 eða 219,17 að meðaltali og Finninn Tony Ranta varð í 3. sæti með 1.305 eða 217,5 að meðaltali. Sjá úrslit einstaklingskeppni pilta

Andrea E. Hansen Noregi vann í stúlknaflokki með 1.330 eða 221,67 að meðalali í 6 leikjum, Pernille W. Rasmussen Danmörku varð í 2. sæti með 1.299 eða 216,5 að meðaltali og Ida Anderson Svíþjóð varð í 3. sæti með 1.227 eða 204,5 að meðaltali. Sjá úrslit einstaklingskeppni stúlkna

Skúli Freyr Sigurðsson ÍA varð í 11. sæti með 1.207 eða 201.7 að meðaltali í 6 leikjum, Einar Sigurður Sigurðsson ÍR var í 16. sæti með 1.134 með 189 að meðaltali í leik og Guðlaugur Valgeirsson endaði í 20. sæti með 1.042 eða 173,67 að meðaltali. Sjá úrslit einstaklingskeppni pilta

Ástrós Pétursdóttir ÍR náði bestum árangri íslensku stúlknanna og varð í 12. sæti með 1.085 eða 180,83 að meðaltali í 6 leikjum. Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR hafnaði í 18 sæti með 1.028 eða 171,33 að meðaltali, Hafdís Pála Jónasdóttir var í 19. sæti með 1.020 eða 170 að meðaltali og Bergþóra Rós Ólafsdóttir endaði í 20. sæti með 863 pinna eða 143,83 að meðaltali. Sjá úrslit einstaklingskeppni stúlkna

Sjá einnig fréttir á heimasíðu Sænska keilusambandsins

Norðurlandamót ungmenna U23 2013

Átta keppendur taka þátt fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti 23 ára og yngri, NYC 2013 sem fer fram i Malmö í Svíþjóð, dagana 6. – 10 nóvember 2013. Stúlkurnar eru Ástrós Pétursdóttir ÍR, Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR, Hafdís Pála Jónasdóttir KFR og Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR. Piltarnir eru Arnar Davíð Jónsson KFR, Einar Sigurður Sigurðsson ÍR, Guðlaugur Valgeirsson KFR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA. Þjálfari er Theódóra Ólafsdóttir.

Fylgist með á heimasíðu mótsins, beinni útsendingu og skorinu

 

Íslandsmót unglingaliða 2. umferð

Önnur umferð á Íslandsmóti unglingaliða fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 9. nóvember n.k. og hefst keppni kl. 9:00. 

Staðan er nú þannig að lið ÍR 1, ÍA 1 og KFR 1 unnu öll þrjá leiki og töpuðu einum og eru því með 6 stig. Lið ÍR 2 vann einn leik og er með 2 stig, en lið ÍA 2 er stigalaust. Sjá stöðuna og skorið í mótinu

Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR. Í hverri umferð er spiluð einföld umferð allir við alla, eða 4 leikir. Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.

Íslandsmeistarar para 2013

Guðný Gunnarsdóttir og Arnar Sæbergsson úr ÍR tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitil para og er það í fyrsta sinn sem þau vinna þann titil saman. Þau voru komin í efsta sæti mótsins í forkeppninni og héldu henni til loka milliriðilsins. Í 2. sæti voru Ástrós Pétursdóttir ÍR og Ásgrímur Helgi Einarsson KFR og í 3. sæti voru Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Skúli Freyr Sigurðsson ÍA.

 

Úrslitakeppni mótsins var spennandi og fór í 4 leiki. Ástrós og Ásgrímur unnu fyrsta leikinn 391 gegn 345, Guðný og Arnar unnu næsta leik 404 gegn 259. Ástrós og Ásgrímur spiluðu síðan 415 gegn 345 í þriðja leiknum, en Guðný og Arnar tryggðu sér titilinn með sigri í fjórða leiknum með 399 gegn 359. Sjá nánar úrslit

Alls tóku 8 pör þátt í forkeppni mótsins og komust þau því öll áfram í milliriðilinn. Sjá skorið í milliriðli og  forkeppni

Sjá fyrri meistara

 

Staðan í 1. deild karla

Að loknum 4. umferðum í 1. deild karla á Íslandsmóti liða er ÍR-PLS í efsta sæti með 58 stig, ÍA-W er í 2. sæti einu og hálfu stigi á eftir með 56,5 stig og ÍR-KLS eru í 3. sæti með 47 stig. KRingarnir í KR-C hafa haft sætaskipti við félaga sína í KR-B og eru í 4. sæti með 41, en KR-B er hálfu stigi á eftir í 5. sæti með 40,5. Sjá nánar stöðuna í deildinni

Leikur KFR-Lærlinga og Þórs í 4. umferð fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll laugardaginn 23. nóvember.

Sjóvá bikarinn 2013

Sjóvá mótið bikarkeppni einstaklinga í keilu 2013 verður haldin í Keiluhöllinni í Egilshöll dagana 11. – 16. nóvember n.k.

Bikarkeppnin sem nú er haldin í 25. sinn undir merkjum Sjóvá verður nú haldin með breyttu sniði frá fyrra ári. Allir þátttakendur þurfa að skrá sig í mótið og síðan verður dregið í allar umferðir þar til einn stendur upp sem sigurvegari í karla- og kvennaflokki.

Spiluð verður þriggja leikja sería í hverri umferð í karla- og kvennaflokki. Olíuburður verður Kegel High Street 44 fet og verða brautir olíubornar í byrjun hvers dags, en ekki á milli umferða þegar fleiri en ein umferð er spiluð á sama degi. Skráning í mótið fer fram á netinu og lýkur sunnudaginn 10. nóvember kl. 22:00. Þátttökugjald fyrir hverja umferð er 2.500.- kr.  Niðurröðun í riðla og tímasetningu má sjá á heimasíðu keiludeildar ÍR þegar skráningu er lokið. Sjá nánar í auglýsingu

Mótanefnd ÍR.

Ástrós Pétursdóttir ÍR og Hafþór Harðarson ÍR voru Bikarmeistarar Sjóvá 2012

Hjóna- og paramót KFR

KFR stefnir að halda hin vinsælu Hjóna- og paramót í vetur.  Fyrsta umferðin er á sunnudaginn 3. nóvember í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og hefst keppni kl. 19:00.  Nánar hér.  Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta, því nú er sambúð ekki skilyrði. 

Deildarbikar liða 2. umferð

Keppni í 2. umferð Deildarbikars liða fer fram þriðjudaginn 5. nóvember n.k. Liðin í A og B riðli keppa í Keiluhöllinni Egilshöll, en C riðill keppir í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og hefst keppni kl. 19:00. 

Að lokinni 1. umferð er staðan þannig að ÍR-PLS er í efsta sæti A-riðils með 12 stig, ÍR-TT er í 2. sæti með 8 stig eins og ÍR-L sem er í 3. sæti. Í B-riðli eru KFR-Afturgöngurnar í efsta sæti með 10 stig, ÍA er í 2. sæti með 6 stig eins og ÍR-Buff sem er í 3. sæti. Í C riðli er ÍR-KLS í efsta sæti með 8 stig eins og ÍA-W sem er í 2. sæti. Í 3. sæti er KR-C með 4 stig eins og ÍR-Broskarlar og KR-D.

Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.

Olíuburður í Deildarbikar liða er Middle Road 39 fet