Lið ÍA 1 tryggði sér Deildarmeistaratitilinn á Í Íslandsmóti unglingaliða annað árið í röð þegar keppni í 5. umferð fór fram í Keiluhöllinni í Öskuhlíð, laugardaginn 1. mars s.l. Lið ÍA 1 endaði í efsta sæti keppninnar með 34 stig, ÍR 1 varð í 2. sæti með 31 stig, KFR 1 varð í 3. sæti með 20 stig, ÍR 2 varð í 4. sæti með 9 stig og ÍA 2 varð í 5. sæti með 6 stig. Efstu fjögur liðin keppa síðan til úrslita sem fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 29. mars n.k. Erlingur Sigvaldason ÍR spilaði hæsta leik umferðarinnar 209, en Þorsteinn Hanning Kristinsson ÍR spilaði 203 og 199. Sjá stöðuna og skor umferðar
Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR. Í hverri umferð er spiluð einföld umferð allir við alla, eða 4 leikir. Efsta liðið að loknum þessum 5 umferðum hlýtur titilinn Deildarmeistari unglingaliða, en efstu fjögur liðin keppa síðan til úrslita þar sem liðið í 1. sæti keppir við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti keppir við liðið í 3. sæti og það lið sem fyrr vinnur tvo leiki keppir til úrslita. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í úrslitunum sigrar og hlýtur nafnbótina „Íslandsmeistari unglingaliða.“
Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.
Birt hefur verið
Í síðustu viku fór fram keppni í 16. umferð 1. deildar kvenna. KFR-Valkyrjur og ÍR-TT mættust í Egilshöllinni og fór viðureign þeirra 11,5 á móti 8,5, en það nægði ÍR-TT til að fara upp í toppsætið með 214,5 stig. ÍR-Buff tók á móti ÍA í Egilshöllinni og vann stórsigur 17 – 3 og það tryggði þeim 2. sætið með 211,5 stig. KFR-Valkyrjur og KFR-Afturgöngurnar sem eru búnar að sitja hjá koma síðan í næstu sætum með 210,5 stig og 208 stig. Efstu fjögur liðin eru nú komin með 40 stiga forystu á ÍR-BK sem er í 5. sæti og á einnig eftir að sitja hjá, en enn eru 6 umferðir eftir þannig að enn er möguleiki á sæti í úrslitum.
rettánda umferð 1. deildar karla fór fram í vikunni. Tveimur leikjum er ólokið en þeir verða spilaðir um miðjan mars en það eru leikir Þórs og KFR Lærlinga sem fram fer 15. mars á Akureyri og leikur ÍA og KR c sem verður spilaður 16. mars á Akranesi.
Aðalfundur Keiludeildar ÍR verður haldinn í ÍR-heimilinu, Skógarseli 12, fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00. Dagskrá fundarins er
Fjórða og síðasta umferð mótsins verður leikin næst komandi sunnudag og úrslitin strax á eftir. Mótið hefst að venju kl. 19. Það eru líkur á spennandi lokaumferð og þó nokkur pör sem eiga möguleika á fjórum efstu sætunum. Staðan í mótinu er
Í síðustu viku fór fram keppni í 15. umferð 1. deildar kvenna. KFR-Afturgöngurnar tóku á móti KFR-Valkyrjum í Öskjuhlíðinni og unnu mikilvægan 14 – 6 sigur í toppbaráttunni og náðu með því að halda efsta sæti deildarinnar með 208 stig. ÍR-TT tók á móti KFR-Skutlunum í Egilshöllinni og eftir mikla baráttu lauk leiknum 16 – 4 og ÍR-TT fór því upp í 2. sætið með 206 stig.
Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR og Guðmundur Ingi Jónsson ÍR eru Íslandsmeistarar unglinga í Opnum flokki 2014. Í 2. sæti voru Hlynur Örn Ómarsson ÍR og Natalía G. Jónsdóttir ÍA og í 3. sæti voru Benedikt Svavar Björnsson ÍR og Jóhanna Guðjónsdóttir ÍA. Alls tóku 38 keppendur þátt í mótinu að þessu sinni og kepptu í 5 flokkum pilta og stúlkna. Sjá lokastöðuna eftir 4. keppnisdag