Bikarkeppni liða 4 liða úrslit

Tveir leikir hafa nú farið fram í 4 liða úrslitum Bikarkeppni liða. ÍR-BK tók á móti ÍR-Buff í Öskjuhlíðinni og vann ÍR-Buff viðureignina örugglega 3 – 0 með 1.957 á móti 1.796. KR-D tók einnig á móti ÍR-KLS í Öskjuhlíðinni og vann ÍR-KLS viðureignina með nokkrum yfirburðum 3 – 0 með 2.330 á móti 2.048.

KFR-Valkyrjur taka síðan á móti KFR-Afturgöngunum í Keiluhöllinni í Egilshöll miðvikudaginn 26. mars, en leikur ÍA og KFR Lærlingar mun fara fram í Keilusalnum á Skaganum föstudaginn 11. apríl n.k.

Breyting á dagskrá

Vegna ófærðar yfir Öxnadalsheiði í dag og áætlunar um að fært verði uppúr hádegi á morgun laugardag, hefur Mótanefnd fært þá leiki sem voru á dagskrá laugardaginn 22 mars til sunnudagsins 23. mars. Þakkar Mótanefnd norðanmönnum það að vera tilbúnir til að berjast suður yfir heiðar um leið og fært er til að spila sína leiki, einnig mótherjum þeirra fyrir að gera breytingar á sínum áætlunum.  Sjá nánar í dagskrá

Meistarakeppni ungmenna 5. umferð

Fimmta og síðasta umferð Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 22. mars og hefst keppni kl. 9:00. Keppendur í 1., 2. og 3. flokki spila 6 leiki, en keppendur í 4. og 5. flokki spila 3 leiki. Sjá stöðuna eftir 4. umferð

 

5. umferð Meistarakeppni ungmenna fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð laugardaginn 22. mars 2014.

Í Meistarakeppni ungmenna taka þátt börn og ungmenni, 20 ára og yngri sem æfa hjá keilufélögunum og er skráning í mótið hjá þjálfurum félaganna. Keppni í Meistarakeppni ungmenna í keilu fer fram u.þ.b. mánaðarlega yfir veturinn, sjá leikdaga í dagskrá 

Keppt er í fimm aldursflokkum:
1. flokkur 18 – 19 – 20 ára
2. flokkur 15 – 16 – 17 ára
3. flokkur 12 – 13 – 14 ára
4. flokkur 9 – 10 – 11 ára
5. flokkur 7 – 8 ára

Miða skal við afmælisár, en keppendur halda sínum flokki fram yfir áramótin og til loka móts.

Raðað er í sæti eftir heildarskori í hverjum flokki í hverri umferð. Stig eru gefin fyrir öll sæti í hvert skipti. Stigagjöf er eftirfarandi:
1. sæti hlýtur 12 stig
2. sæti hlýtur 10 stig
3. sæti hlýtur 8 stig
4. sæti hlýtur 7 stig
5. sæti hlýtur 6 stig
6. sæti hlýtur 5 stig
7. sæti hlýtur 4 stig
8. sæti hlýtur 3 stig
9. sæti hlýtur 2 stig
10. sæti og neðar hlýtur 1 stig

Sjá nánar í regluferð um Meistarakeppni ungmenna

Deildarbikar liða 5. umferð

Keppni í 5. umferð Deildarbikars liða fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll og Öskjuhlíð þriðjudaginn 18 mars. A og B riðlar keppa í Egilshöll, en C riðill keppir í Öskjuhlíðinni. Að lokinni 4. umferð er ÍR-PLS í efsta sæti A riðils með 40 stig, ÍR-TT er í 2. sæti með 34 stig og KR-A er í 3. sæti með 33 stig. Í B riðli eru KFR-Afturgöngurnar í efsta sæti með 30 stig, ÍR-Buff er í 2. sæti með 26 stig og KR-B er í 3. sæti með 25 stig. ÍR-KLS er í efsta sæti C riðils með 30 riðils, ÍA-W er í 2. sæti með 26 stig og KR-C er í 3. sæti með 22 stig.

Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð og stöðuna í mótinu.

Efstu tvö liðin úr hverjum riðli tryggja sér sæti í úrslitunum sem fara fram þriðjudaginn 22. apríl n.k.

Olíuburður í Deildarbikar liða er Middle Road 39 fet

Íslandsmót félaga 3. keppnisdagur

Þriðji leikdagur á Íslandsmóti félaga fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð mánudaginn 17 mars og hefst keppni kl. 19:00. Sjá töfluröð.

Að loknum öðrum keppnisdegi er staðan þannig að ÍR-karlar eru í efsta sæti í Opnum flokki með 92 stig og ÍR-konur eru í efsta sætinu í kvennaflokki með 43 stig.

Staðan er nú þannig að ÍR-karlar hafa tekið forystuna í Opnum flokki með 92 stig eftir 13 leiki, KFR-konur eru í 2. sæti með 82 stig eftir 13 leiki, KR-karlar eru í 3. sæti með 76 stig eftir 12 leiki og ÍR-konur eru í 4. sæti með 71,5 stig eftir 12 leiki. ÍR-konur eru í efsta sætinu í kvennaflokki með 43 stig eftir 6 leiki, KFR-konur eru í 2. sæti með 36 stig eftir 5 leiki, ÍA-konur eru í 3. sæti með 6 stig eftir 4 leiki og ÍFH-konur eru í 4. sæti með 4 stig eftir 5 leiki. Sjá stöðuna í Íslandsmóti félaga

Olíuburður í Íslandsmóti félaga er 38 fet WTBA Atlanta http://www.worldtenpinbowling.com/pdf/WTBAAtlanta38-12.pdf

Íslandsmeistarar einstaklinga með forgjöf 2014

Andrea Björk Sigrúnardóttir ÍR og Matthías Leó Sigurðsson ÍA eru Íslandsmeistarar einstaklinga með forgjöf 2014 og er þetta í fyrsta sinn sem þau vinna þennan titil. Í 2. sæti voru Karenina Kristín Chiodo ÍFH og Hrafn Sabir Khan ÍR og í 3. sæti voru Laufey Sigurðardóttir ÍR og Eiríkur Garðar Einarsson ÍR. Óskum við þeim öllum til hamingju með árangurinn.
Sjá leiki og stöðu kvenna HÉR og ÞAR, en karla HÉR og ANNARSSTAÐAR.

 

Keppni á Íslandsmóti einstaklinga í keilu með forgjöf 2014 fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Keiluhöllinni í Egilshöll dagana 8. – 11. mars. Alls tóku 18 konur og 36 karlar þátt í forkeppni mótsins og er það fjölgun um 8 frá síðasta ári. Í forkeppninni var spilað annan daginn í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og hinn daginn í Keiluhöllinni í Egilshöll, en keppni í milliriðli, undanúrslitum og úrslitum fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll.

 

Íslandsmót með forgjöf 2014

Þá er milliriðli lokið og hefur staðan á toppnum breyst aðeins. Efstar voru Karenina Chiodo með 898/2554, Berglind Scheving með 775/2431 og Andrea Björk Sigrúnardóttir með 833/2427. Átti Karenina góðan dag með meðaltal án forgjafar uppá 177,5.

Efstir voru Hrafn Sabir Khan með 897/2498, Eiríkur Garðar Einarsson með 793/2488 og Matthías Leó Sigurðsson með 821/2467. Átti Hrafn góðan dag með meðaltal án forgjafar uppá 181. Sjá stöðu dagsins HÉR.

 

 Þá er forkeppninni lokið og breyttist staðan á efstu mönnum og konum aðeins á milli daga.

Efstar eru Berglind Scheving, með hærri síðasta leik, og Karenina Kristín Chiodo með 1656 og Laufey Sigurðardóttir með 1634.

Efstir karla eru Eiríkur Garðar Einarsson með 1695, Svavar Þór Einarsson með 1677 og Atli Þór Kárason með 1662, í fjórða sæti er svo yngsti keppandinn á mótinu Matthías Leó Sigurðsson með 1646. Sjá stöðu og leiki bæði karla og kvenna HÉR.

Þá er lokið fyrri degi forkeppninnar á Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf 2014.Efstar hjá konunum eru Andrea Björk Sigrúnardóttir með 834, Steinunn M. Arnórsdóttir með 826 og Jóhanna Guðjónsdóttir með 824, þær sem eru næstar inn í 12 manna hópinn vantar 5 og 37 pinna. Sjá stöðuna hér.Efstir hjá körlunum eru Þórarinn Már Þorbjörnsson með 903, Atli Þór Kárason með 881 og Eiríkur Garðar Einarsson með 859, þeir sem eru næstir inn í 12 manna hópinn vantar 5 og 19 pinna. Sjá stöðuna hér.

Forkeppnin fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Egilshöll laugardaginn 8. og sunnudaginn 9. mars og hefst kl. 10:00 báða dagana. Spilaðir eru 8 leikir í forkeppninni, 4 leikir í hvoru húsi og komast efstu 12 keppendurnir úr hvorum flokki áfram í milliriðil. Keppni í milliriðili fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll mánudaginn 10. mars og hefst kl. 19:00 og spila keppendur 4 leiki og komast efstu 6 keppendurnir úr hvorum flokki áfram í undanúrslit. Keppni í undanúrslitum fer fram í í Keiluhöllinni Egilshöll þriðjudaginn 11. mars og hefst kl. 19:00. Í undanúrslitunum er keppt maður á móti manni 5 leikir með bónusstigum fyrir unninn leik. Efstu 2 keppendurnir spila síðan til úrslita sem fara fram strax að loknum undanúrslitunum. Olíuburður í mótinu er  WTBA Athens (40′)_12 Við útreikning á forgjöf verður miðað við nýtt allsherjarmeðaltal 28. febrúar 2014. Sjá auglýsingu

 

Barátta hörð á toppi 1. deildar kvenna

KFR-Valkyrjur eru komnar á toppinni á ný í 1. deild kvenna eftir keppni í 17. umferð deildarinnar sem fór fram í síðustu viku. KFR-Valkyrjur sóttu ÍR-SK heim í Öskjuhlíðina og unnu leikinn 18 – 2. ÍR-TT tók á móti KFR-Afturgöngunum í Egilshöllinni og fór viðureign þeirra 9 – 11. ÍR-Buff mætti ÍR-N í Öskjuhlíðinni og fór leikurinn 14 – 6. Staða efstu liða er því þannig að KFR-Valkyrjur eru eins og áður segir komnar í 1. sæti með 228.5 stig. ÍR-Buff er í 2. sæti með 225,5 stig og ÍR-TT er í 3. sæti með 223,5 stig, en þau lið eiga bæði eftir að sitja hjá. KFR-Afturgöngurnar koma síðan í 4. sæti með 219 stig.

Úrslit leikja í 17. umferð voru eftirfarandi:
ÍA – ÍFH-Elding 15 – 5
ÍR-SK – KFR-Valkyrjur 2 – 18
ÍR-N – ÍR-Buff 6 – 14
ÍR-BK – KFR-Skutlurnar 4 – 16
ÍR-TT – KFR-Afturgöngurnar 9 – 11

Hæstu seríur umferðarinnar spiluðu Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum 673, Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT 575 og Ástrós Pétursdóttir 544. KFR-Valkyrjur spiluðui hæstu seríuna 2.078, en ÍR-TT spilaði hæsta leikinn 739.

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 17. umferð:
1. KFR-Valkyrjur 228,5 (15)
2. ÍR-Buff 225,5 (16)
3. ÍR-TT 223,5 (16)
4. KFR-Afturgöngurnar 219 (15)
5. ÍR-BK 171,5 (16)
6. ÍR-N 144 (15)
7. KFR-Skutlurnar 123 (15)
8. ÍFH-Elding 116 (16)
9. ÍA 115 (15)
10. ÍR-KK 93,5 (15)
11. ÍR-SK 40,5 (16)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 172,28, KFR-Afturgöngurnar eru með 166,07, ÍR-Buff er með 166,91 og ÍR-TT er með 164,56. KFR-Valkyrjur eiga hæsta leik liðs 800 (11. umferð) og hæstu seríu liðs 2.263 (9. umferð).

Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar með 193,7 að meðaltali í 43 leikjum, Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff er með 177,8 að meðaltali í leik í 45 leikjum og Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum er með 176,8 í 42 leikjum. Í keppni um stigameistararann er Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT með 0,813 í 45 leikjum, Jóna Gunnarsdóttir KFR-Afturgöngunum er með 0,782 í 39 leikjum og Dagný Edda er með 0,779. Dagný Edda er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,93 að meðaltali í leik, Guðný er með 4,23 og Ástrós er með 3,60. Dagný Edda á hæsta leikinn 267, Linda Hrönn á 255 og Ástrós á 245. Dagný Edda á hæstu seríuna 720, Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum á 604 seríu og Ragna Matthíasdóttir og Ástrós Pétursdóttir eiga hæst 595. (Hér eru einungis taldir upp keppendur sem spilað hafa 21 leik eða meira og geta þar með unnið til einstaklingsverðlauna).

Sjá stöðuna eftir 17. umferð

Nú verður gert hlé á keppni í deildinni næstu tvær vikur vegna keppni á Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf, bikarkeppni, Íslandsmóts félaga og keppi í deildarbikar. Í 18. umferð 1. deildar kvenna sem fer fram þriðjudaginn 25. mars verða þrír leikir í Öskjuhlíð. KFR-Afturgöngurnar og ÍR-SK mætast, KFR-Skutlurnar taka á móti ÍA og ÍFH-Elding og ÍR-N mætast. Í Egilshöllinni taka KFR-Valkyrjur á móti ÍR-BK og ÍR-Buff tekur á móti ÍR-KK. ÍR-TT situr hjá í 18. umferð. Sjá dagskrána í 1. deild kvenna

Seinni hluta keppnistímabilsins er spilað í olíuburðinum 2010 EBT Bowltech Aalborg International 38 fet.