AMF riðill 1

Í kvöld fór fram fyrri riðillinn í 3. umferð AMF mótanna og þar spiluðu best  Sigurbjörn Vilhjálmsson með hæsta síðasta leik 1163/1221 og 193,83 í m.tal, Atli Þór Kárason með 1163/1255 og 193,83 í m.tal, og Guðlaugur Valgeirsson með 1162/1222 og 193, 67 í m.tal sem verður að teljast ansi jafnt hjá 3 efstu. Spennan er svo töluverð hjá þeim sem keppa um að vera á meðal 12 efstu með forgjöf því 12 glæsilegir vinningar eru í boði fyrir þau.

Listi raðaður eftir Bestu seríu v/AMF HÉR, rétt er að taka fram að Sigurbjörn er með hærri síðasta leik og á því að vera efstur á listanum  og listi raðaður eftir Bestu seríu með forgjöf HÉR, tek fram að forgjöf er reiknuð með 2 aukastöfum og því magnast hún eða minnkar við 6 leiki.

15. umferð 2. deildar

15. umferð 2. deildar karla fór fram mánudaginn 31. mars og nú er ljóst að ÍR L verða í fyrstu deildinni að ári. Sjá stöðuna í 2. deild karla

Í Öskjuhlíð spiluðu eftirfarandi: 

Á braut 1 og 2 áttust við ÍR L og Blikkarar fyrirfram talinn hörkuleikur en reyndist auðveldur sigur ÍR L manna sem þó spiluðu ekki vel. Leikar fóru 737-664,631-602 og 647-539 2015 gegn 1805 18-2 sigur.

Bjarki með hæstan leik 217 en Ásgeir með hæstu seríu 520.
 
Á braut 3 og 4 spiluðu KFR liðin Þrestir gegn JP Kast sem voru þrír. Þar unnu þrestir 1.leik 686-648 en JP Kast næstu 2 647-611 og 626-576.  1921 gegn 1876 eða 11-9 JP Kast í vil.
Konni með 202 leik og 552 seríu.
 
Á braut 5 og 6 léku ÍR Broskarlar gegn ÍR Naddóði auðveldur sigur Broskarla 661-538,658-600 og 746-548 2065-1686 eða 17-3
Stebbi með hæstan leik og seríu 212 og 593
 
Egilshöllin
Þar áttust við ÍR T og ÍR Nas þar enduðu leikar 18-2 fyrir ÍR T mönnum. Hörður með 595 seríu og 245 leik.
 
ÍR A og Keila.is áttust við og þar enduðu leikar 11-9 ÍR A mönnum í hag.
 
Þar með er ljóst að ÍR L eru komnir í fyrstu deild á næsta tímabili óskum þeim til hamingju með það. Broskarlar verða að teljast líklegir til að fara með þeim upp þar sem einungis þrjár umferðir eru eftir og forskotið á þriðja sætið er 23 stig.
 
1.ÍR L 235
2.ÍR Broskarlar 199,5
3.KFR JP Kast 176,5
4.ÍR A 163,5
5.ÍR Blikk 156,5
6.KFR Þröstur 148,5
7.ÍR T 140,5
8.ÍR Keila.is 116
9.ÍR Nas 101,5
10.ÍR Naddóður 62,5

 

Utandeild

Enn og aftur breyting á dagsetningu úrslitanna – ekki fengust nægar brautir og verða úrslitin því þann 24. apríl.

Nú er riðlakeppni Utandeildar 2013-2014 lokið og hafa eftirfarndi lið tryggt sér sæti í úrslitakeppninn sem fram fer fimmtudaginn 24. apríl 2014 kl. 19:00 í Öskjuhlíð:

Úr riðli 1, Prentmet og ITS.  Úr riðli 2, Eimskip og Landsbankinn 3.  Úr riðli 3, RB og Keiluhöllin Egilshöll. Sjá nánar stöðuna í Utandeildinni

Dagskrárbreytingar

Stjórn KLÍ hefur í samráði við öll félögin ákveðið  að gera breytingar á dagskrá og hefur fært Árshátíðina og fleiri viðburði og hefur dagskrá  á síðu kli.is verið breytt til samræmis við það. Sjá dagskrá apríl og maí

Úrslit í utandeild verða 24. apríl í stað 15. maí
Úrslitaumferð í Íslandsmóti félaga verður 30. apríl í stað 14. maí
Lokaumferð allra deilda verður kl. 11:00 3. maí í stað kl. 15:30 og Árshátíðin verður haldin sama dag kl. 19:00 laugardaginn 3. maí og mun afrekshópur kvenna sjá um hana að þessu sinni.

AMF 3. umferð

Loksins er komin staðfesting á leikdögum fyrir 3. umferð í AMF leikjaröðinni og eru 2 leikjablokkir í boði núna. Miðvikudaginn 2. apríl kl. 19:00 og laugardaginn 5. apríl kl. 09:00

Úrslit 3. umferðar verða leikin kl. 12:00 laugardaginn 5. apríl og úrslit úr öllum þrem umferðunum kl. 09:00 sunnudaginn 6. apríl. Eingöngu er leikið í Egilshöllinni.

Sjá auglýsingu HÉR og skráningu HÉR. Staðan í stigakeppninni sjá HÉR.

Styrktarmót unglingalandsliðsins

Unglingalandslið undir 18 ára er á leið á Evrópumeistaramót Unglinga í Óðinsvé, Danmörku þann 12. apríl næstkomandi. Í tilefni þess verður haldið styrktarmót í Keilusalnum Akranesi sem nýtist sem fjáröflun fyrir ferðina. Leiknir verða 3 leikir í forkeppni dagana 26. – 29. mars, 6 hæstu seríurnar með forgjöf leika til úrslita laugardaginn 29. mars. ATH aðeins 6 manns geta spilað í hverri umferð.

Sjá auglýsingu HÉR og skráningu HÉR.

Leikdagar:
– Miðvikudagur 26. mars kl. 18
– Miðvikudagur 26. mars kl. 19:30
– Fimmtudagur 27. mars kl. 18
– Fimmtudagur 27. mars kl. 19:30
– Föstudagur 28. mars kl. 20
– Föstudagur 28. mars kl. 21:30
– Laugardagur 29. mars kl. 13
– Laugardagur 29. mars kl. 14:30
– Laugardagur 29. mars kl. 16
– ÚRSLIT: Laugardagur 29. mars kl. 19


Miðaverð: 2.500 kr.- fyrir 3 leiki
Veglegir vinningar í boði fyrir efstu 6 sætin + hæstu seríu án forgjafar í forkeppni 


Allur ágóði rennur til Unglingalandsliðs U-18


Andlátsfregn

Alois Jóhann Raschhofer andaðist í morgun á Hrafnistu, 77 ára að aldri.  Alois stundaði keilu frá upphafi keilunnar á Íslandi og var margfaldur Íslandsmeistari einstaklinga og para. Honum var veitt Afreksmerki KLÍ árið 2002.  Hann lék lengstum með KFR – Þröstum.  Stjórn Keilusambands Íslands og félagar úr keilunni senda fjölskyldu og aðstandendum Alois innilegar samúðarkveðjur.

Íslandsmót einstaklinga 50+ 2014

Dagana 12 – 14 apríl n.k. verður fyrsta Íslandsmót öldunga í keilu, 50 ára og eldri, haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og Egilshöll.

Sjá auglýsingu fyrir mótið eða fara beint á skráningarsíðu

Íslandsmót öldunga í keilu, fyrir 50 ára og eldri, verður haldið í Keiluhöllinni Egilshöll og Keiluhöllinni Öskjuhlíð dagana 12. –  14. apríl.

Forkeppni fer fram helgina 12. –  13. apríl í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Egilshöll og hefst keppni kl. 9:00.

Allir keppendur spila 12 leiki í forkeppninni, 6 leiki hvorn dag, annan daginn í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og hinn daginn í Keiluhöllinni Egilshöll. Efstu 8 karlarnir og efstu 8 konurnar halda áfram í undanúrslit. Verð í forkeppni kr. 10.000,-

Undanúrslit – mánudaginn 14. apríl kl. 19:00 í Keiluhöllinni Egilshöll

Efstu 8 karlarnir og efstu 8 konurnar spila 7 leiki, allir við alla, einfalda umferð. Tveir efstu karlarnir og tvær efstu konurnar leika síðan til úrslita strax að loknum undanúrslitum. Verð í undanúrslit kr. 5.500,-


Úrslit – mánudaginn 14. apríl strax að loknum undanúrslitunum

Spiluð eru úrslit milli tveggja efstu manna/kvenna, sá/sú sem er efst að stigum fyrir úrslit nægir að vinna tvær viðureignir (2 stig) en annað sætið þarf að vinna þrjár (3 stig). Jafnteflisviðureignir telja sem skipt viðureign (1/2 stig á hvorn), ef enn er jafnt eftir 5 leiki þá ræður pinnafall. Sigurvegarinn fær titilinn Íslandsmeistari öldunga.


Olíuburður í mótinu er 2013 USBC Senior Masters

Sjá nánar í Reglugerð KLÍ um Íslandsmót öldunga.

Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 10. apríl kl. 22:00

Mótanefnd KLÍ

Ef aðsókn beggja kynja verður of lítil verður sameinað í einn flokk og fá þá konur 8 pinna í forgjöf.

 

Íslandsmót félaga – Staðan

Þriðji  leikdagur á Íslandsmóti félaga fór fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð mánudaginn 17. mars s.l. Staðan er nú þannig að ÍR-karlar hafa aukið forystuna á toppnum í Opna flokknum og eru með 135,5 stig eftir 19 leiki. KR-karlar eru komnir í 2. sætið með 109 stig eftir 18 leiki og ÍR-konur eru í 3. sæti með 106,5 stig eftir 18 leiki. ÍR-konur eru í efsta sætinu í kvennaflokki með 52 stig eftir 7 leiki, KFR-konur eru í 2. sæti með 40 stig eftir 6 leiki, ÍA-konur eru í 3. sæti með 12 stig eftir 6 leiki og ÍFH-konur eru í 4. sæti einnig með 12 stig eftir 6 leiki.