Samningar við landsliðsþjálfara KLÍ

Keilusamband Íslands hefur gengið frá samningum við þjálfara karla-, kvenna- og ungmennalandsliðanna. Samningarnir eru allir til tveggja ára. Arnar Sæbergsson hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðsins, Theódóra Ólafsdóttir þjálfari kvennalandsliðsins og Guðmundur Sigurðsson þjálfari ungmennalandsliðsins.

Í nýrri afreksstefnu KLÍ er horft til þess að vera með keilara í fremstu röð í Evrópu innan 10 ára. Þessar ráðningar eru hluti af því að byggja upp til framtíðar og stíga fyrstu skrefin í þeirri vinnu sem framundan er í átt að þeim markmiðum sem afreksstefnan segir til um.
 

Evrópumót unglinga EYC 2014

Evrópumót unglinga í keilu, 18 ára og yngri fer fram í Odense í Danmörku dagana 11. – 21. apríl n.k. Keppendur sem taka þátt í mótinu fyrir Íslands hönd eru talið frá vinstri Aron Fannar Benteinsson ÍA, Natalía G. Jónsdóttir ÍA, Andri Freyr Jónsson KFR, Jóhanna Guðjónsdóttir ÍA, Guðmundur Ingi Jónsson ÍR, Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR og Hlynur Örn Ómarsson ÍR. Þjálfari er Guðmundur Sigurðsson og fararstjóri og aðstoðarþjálfari er Jónína Björg Magnúsdóttir.

Alls keppa 98 piltar og 61 stúlka á mótinu. Fylgist með keppninni á heimasíðu mótsins og Facebook síðunni

Keppni á mótinu hefst mánudaginn 14. apríl með keppni í tvímenningi pilta. Andri Freyr Jónsson og Hlynur Örn Ómarsson hefja leik kl. 13:15 að staðartíma, eða kl. 11:15 að íslenskum tíma. Guðmundur Ingi Jónsson og Aron Fannar Benteinsson hefja leik kl. 17:30 að staðartíma eða kl. 15:30 að íslenskum tíma.að íslenskum tíma.

Keppni í tvímenningi stúlkna hefst svo þriðjudaginn 15. apríl og byrja Katrín Fjóla og Jóhanna Guðjónsdóttir að keppa kl. 9:00 að staðartíma eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Natalía G. Jónsdóttir byrjar svo að keppa kl. 13:15 að staðartíma eða kl. 11:15 að íslenskum tíma.

Liðakeppnin hefst miðvikudaginn 16. apríl og spilar íslenska piltaliðið í holli 1 sem hefur keppni kl. 9:00 að staðartíma eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Stúlkurnar hefja síðan keppni kl. 13:15 að staðartíma eða kl. 11:15 að íslenskum tíma. Seinni hluti liðakeppninnar fer fram fimmtudaginn 17. apríl og hefja íslensku keppendurnir keppni kl. 9:00 að staðartíma eða kl. 07:00 að íslenskum tíma.

Föstudaginn 18. apríl fer fram einstaklingskeppni pilta og spila Hlynur Örn Ómarsson og Guðmundur Ingi Jónsson í holli 1 sem hefur keppni kl. 9:00 að staðartíma, eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Andri Freyr Jónsson og Aron Fannar Benteinsson spila í holli 2 sem hefur keppni kl. 13:15 að staðartíma, eða kl. 11:15 að íslenskum tíma.

Einstaklingskeppni stúlkna fer fram laugardaginn 19. apríl. Katrín Fjóla Bragadóttir spilar með holli 1 sem hefur keppni kl. 9:00 að staðartíma, eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir og Natalía G. Jónsdóttir spila í holli 2 sem hefur keppni kl. 13:15 að staðartíma, eða kl. 11:15 að íslenskum tíma.

Úrslit einstaklingskeppninnar All-Event fer fram laugardaginn 20. apríl

Meðaltal 31. mars 2013

Birt hefur verið allsherjarmeðaltal miðað við 31. mars 2014

Magnús Magnússon ÍR heldur efsta sæti meðaltalslistans og er enn með 214 pinna að meðaltali í leik, en mánaðarmeðaltal hans er 219 pinnar að meðaltali í leik. Hafþór Harðarson ÍR kemur næstur með 210 pinna að meðaltali og Arnar Davíð Jónsson KFR er kominn í 3. sætið með 204 pinna, einum pinna meira en Skúli Freyr Sigurðsson ÍA og Arnar Sæbergsson ÍR sem eru með 203 pinna að meðaltali.

Dagný Edda Þórisdóttir KFR er ennþá efst kvenna á listanum, nú með 192 pinna að meðaltali, Alda Harðardóttir KFR kemur næst með 187 að meðaltali í leik og Ástrós Pétursdóttir ÍR er í 3. sæti með 184 pinna að meðaltali.

Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn

Staðan í 1. deild kvenna – 20. umferð

Nú er orðið ljóst hvaða fjögur lið spila til úrslita í 1. deild kvenna, en innbyrðis röð liðanna getur breyst og keppni um deildarmeistaratitilinn er ekki lokið.

Staða efstu liða er þannig að KFR-Valkyrjur eru í 1. sæti með 275 stig, ÍR-Buff er komið í 2. sæti með 260,5 stig, KFR-Afturgöngurnar eru í 3. sæti með 258 stig og ÍR-TT er í 4. sæti með 251,5 stig.

ÍR-BK spilaði sinn hæsta leik og seríu í vetur og hæstu leiki umferðarinnar á útivelli í Egilshöllinni á móti ÍR-TT í 20. umferðinni. ÍR-TT byrjaði betur og vann fyrstu tvo leikina 4 – 2 og 5 – 1, en ÍR-BK unnu síðasta leikinn 6 – 0 og tóku heildina og viðureign þeirra lauk því 9 – 11 fyrir ÍR-BK. Gott gengi ÍR-BK í síðustu tveimur umferðunum kemur hins vegar of seint og nægir ekki til sætis í úrslitakeppninninni því þær eru í 5. sæti með 195 stig og eiga að sitja hjá í síðustu umferðinni. KFR-Valkyrjur tóku einnig á móti ÍR-N í Egilshöllinni. ÍR-N mættu eins og ÍR-BK ákveðnar til leiks og unnu fyrsta leikinn 6 – 0. KFR-Valkyrjur unnu síðast hina leikina 5 – 1 og 6 – 0 og einnig heildina og viðureignina því 13 – 7. 

Í Öskjuhlíð tóku KFR-Afturgöngurnar á móti ÍA.  KFR-Afturgöngurnar byrjuðu betur á móti ÍA og unnu fyrsta leikinn 4 – 2, ÍA vann hins vegar annan leikinn 4 – 2, en þriðja leiknum lauk 5 – 1 fyrir Afturgöngurnar sem unnu einnig heildina. ÍFH-Elding tók á móti ÍR-Buff sem höfðu nokkra yfirburði í viðureigninni og unnu 17 – 3. Leik KFR-Skutlanna og ÍR-KK lauk með 13 – 7 sigri Skutlanna.

Staða efstu liða er því þannig að KFR-Valkyrjur eru í 1. sæti með 275 stig, ÍR-Buff er komið í 2. sæti með 260,5 stig, KFR-Afturgöngurnar eru í 3. sæti með 258 stig og ÍR-TT er í 4. sæti með 251,5 stig.

Úrslit leikja í 20. umferð voru eftirfarandi:
KFR-Afturgöngurnar – ÍA 12 – 8
KFR-Skutlurnar ö ÍR- KK 13 – 7
ÍFH-Elding – ÍR-Buff 3 – 17
KFR-Valkyrjur – ÍR-N 13 – 7
ÍR-TT – ÍR-BK 9 – 1

Hæstu seríur umferðarinnar spiluðu Berglind Scheving ÍR-BK 585, Bergþóra Rós Ólafsdóttir ÍR-BK 578, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT 575 og Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT 565. ÍR-BK spilaði hæstu hæstu seríuna 2.137  og hæsta leikinn 749.

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 20. umferð:
1. KFR-Valkyrjur 275 (18)
2. ÍR-Buff 260,5 (18)
3. KFR-Afturgöngunar 258 (18)
4. ÍR-TT 251,5 (18)
5. ÍR-BK 195,5 (19)
6. ÍR-N 171,5 (18)
7. KFR-Skutlurnar 165 (18)
8. ÍFH-Elding 139 (19)
9. ÍA 131 (18)
10. ÍR-KK 109,5 (18)
11. ÍR-SK 43,5 (18)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 170,67, ÍR-Buff er með 166,93, ÍR-TT er með 164,73 og KFR-Afturgöngurnar eru með 164,50. KFR-Valkyrjur eiga hæsta leik liðs 800 (11. umferð) og hæstu seríu liðs 2.263 (9. umferð).

Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar með 189,4 að meðaltali í 52 leikjum, Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff er með 178,3 að meðaltali í leik í 49 leikjum og Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT er með 176 í 54 leikjum. Í keppni um stigameistararann er Dagný Edda efst með 0,798, Linda Hrönn er með 0,778 og Laufey Sigurðardóttir ÍR-Buff er komin í 3. sætið með 0,763 í 40 leikjum. Dagný Edda er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,71 að meðaltali í leik, Guðný Gunnarsdóttir ÍR-TT er með 4,15 að meðaltali í 54 leikjum og Ástrós er með 3,59. Dagný Edda á hæsta leikinn 267, Linda Hrönn á 255 og Ástrós á 245. Dagný Edda á hæstu seríuna 720, Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum á 604 seríu og Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum og Ástrós Pétursdóttir eiga hæst 595. (Hér eru einungis taldir upp keppendur sem spilað hafa 21 leik eða meira og geta þar með unnið til einstaklingsverðlauna).

Sjá stöðuna eftir 20. umferð

Nú eru tvær umferðir eftir í kvennadeildinni. Í 21. umferð sem fer fram mánudaginn 28. apríl og þriðjudaginn 29. apríl tekur ÍA á móti ÍR-TT á Skaganum, ÍR-Buff tekur á móti KFR-Skutlunum í Egilshöllinni, en í Öskjuhlíð tekur ÍR-KK á móti KFR-Valkyrjum og ÍR-N og KFR-Afturgöngurnar, ÍR-BK og ÍR-SK mætast.  ÍFH-Elding situr hjá í 21. umferð. Sjá dagskrána í 1. deild kvenna

Seinni hluta keppnistímabilsins er spilað í olíuburðinum 2010 EBT Bowltech Aalborg International 38 fet.

Akureyri Open 2014

Akureyri Open 2014 verður haldið í Keilunni á Akureyri á sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 24 apríl og hefst keppni kl 16:30. Keppt verður með og án forgjafar í karla og kvennaflokkum og verðlaun veitt fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Spilaðir verða 4 leikir og sigrar sá/sú sem hefur hæstu seríuna. Olíuburður verður „2010 EBT 09 – Bowltech Aalborg International 38 fet“ eða sá sami og keppt er með í Íslandsmóti liða.
Skráning verður í keilunni Akureyri fyrir miðvikudaginn 23 apríl kl. 22:00 eða á netfangið [email protected]
Mótið er opið öllum og þáttökugjald er 2.500,-kr
 

Tveir leikir í 3. deild 19. umferð

Tveir leikir fóru fram í fram í Öskjuhlíð í 19. umferð 3. deildar karla. Sjá stöðuna í deildinni

Topplið Kr D tók á móti botnliði Stuðbolta þar enduðu leikar með fullu húsi KR inga sem mæta sterkir til leiks í 2.deildina á næsta tímabili.

641-470,673-471 og 645-529 1959-1460 eða 20-0
Hössi með hæstan leik og seríu 210 og 579
 
ÍFH Múrbrjótur spilaði gegn ÍR S þessi lið eiga í svakalegri baráttu um 2 sætið og þá hver fylgir KR ingum upp á næsta tímabili.
ÍR S gerði sér lítið fyrir og vann alla þrjá leikina 645-598,701-649 og 640-628 heild 1986-1873 eða 15-5 sigur.
Alexander með hæsta leik og seríu 208 og 568
 
ÍR S hefur sætaskipti við Múrbrjót þegar einungis 2 umferðir eru eftir en Þór  Plús er heldur ekki langt undan.
 
1       KR-D 19 leikir 309,0
2 ÍR-S 19 leikir 227,5
3 ÍFH-Múrbrjótur 19 leikir 225,5
4 Þór-Plús 18 199,5
5 ÍR-Fagmaður 18 186,0
6 ÍR-Gaurar 18 179,0
7 ÍA-B 18 105,0
8 ÍFH-Stuðboltar 19 48,5

Sjá stöðuna í deildinni

16. umferð 2. deildar fór fram í kvöld í Öskjuhlíðinni

Staðan í deildinni er óbreytt Broskarlar líklegir til að fara upp ásamt ÍR L en 2 umferðir eftir og 40 stig í pottinum og JP Kast því ennþá í séns á öðru sætinu fari allt á versta veg hjá Broskörlum. Sjá stöðuna í 2. deild karla

 

 16. umferð í 2.deildinni fór fram í kvöld í Öskjuhlíðinni

 
Á braut 1 og 2 áttust við JP Kast og ÍR A þar mættu bæði lið með þrjá spilara. JP Kast gerði sér lítið fyrir og vann alla þrjá leikina 616-581,646-623 og 578-552 1840-1756 eða 13-7.
Valgeir með hæstan leik og seríu 219 og 543.
 
Á braut 3 og 4 spiluðu Keila.is gegn ÍR L þar voru ÍR L í góðum gír tóku alla þrjá leikina 750-493,644-598 og 732-625 2126-1716 eða 18-2 sigur.
Ásgeir með hæstan leik 215 en Biggi með hæstu seríuna 564
 
Á braut 5 og 6 léku ÍR Blikk gegn ÍR T þar var í gangi hörkuspennandi leikur ÍR T vann fyrsta 668-623 en Blikk vann næstu tvo 655-648 og 631-576 heildin 1909-1892 eða 11,5 stig Blikkara gegna 8,5 ÍR T.
Brynjar með hæstan leik og seríu 194 og 519
 
Á braut 7 og 8 áttu ÍR Nas leik gegn Broskörlum þar byrjuðu Nas vel unnu fyrsta leikinn 679-677 en Broskarlar næstu tvo 649-609 og 674-668 heildin 2000-1956 eða 11-9.
Stebbi með hæstan leik og seríu 216 og 563.
 
Á braut 9 og 10 tókust á Þrestir og Naddóður þar byrjuðu liðsmenn Naddóðs vel 573-529, Þrestir tóku næsta 665-609 og síðasta 640-580 heildin 1834-1762 eða 12-8 Þröstum í vil. 
Jökull með hæstan leik og seríu 215 og 503
 
Staðan í deildinni er óbreytt Broskarlar líklegir til að fara upp ásamt ÍR L en 2 umferðir eftir og 40 stig í pottinum og JP Kast því ennþá í séns á öðru sætinu fari allt á versta veg hjá Broskörlum.
 
1.ÍR L 253
2.ÍR Broskarlar 210,5
3.KFR JP Kast 189,5
4.ÍR A 170,5
5.ÍR Blikk 168
6.KFR Þröstur 160,5
7.ÍR T 149
8.ÍR Keila.is 118
9.ÍR Nas 110,5
10.ÍR Naddóður 70,5
 

AMF Úrslit 2014

Magnús Magnússon ÍR og Guðný Gunnarsdóttir ÍR áunnu sér í dag rétt til þátttöku á 50. Qubica AMF Bowling World Cup heimsbikarmóti einstaklinga sem ekki er vitað enn hvar fer fram. Sjá nánar um Qubica AMF Bowling World Cup mótið á heimasíðu QubicaAMF

Úrslitakeppni AMF mótaraðarinnar í keilu fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll í dag. Þar áttu keppnisrétt 10 stigahæstu keppendurnir úr öllum þremur AMF mótum vetrarins og spiluðu einfalda umferð allir við alla. Að því loknu kepptu fjórir efstu keppendurnir til úrslita, en það voru Arnar Sæbergsson ÍR, Hafþór Harðarson ÍR, Magnús Magnússon ÍR  og Bjarni Páll Jakobsson ÍR. Í fyrsta leik kepptu Bjarni Páll og Magnús og vann Magnús með 202 á móti 200. Magnús keppti því næst við Hafþór og vann þann leik með 203 á móti 140. Að lokum keppti Magnús við Arnar og vann hann með 247 á móti 182. Guðný Gunnarsdóttir ÍR náði bestum árangri kvenna í mótaröðinni á þessu keppnistímabili og endaði í 8. sæti. Sjá stöðuna eftir undanúrslitin

Í dag fór fram seinni riðillinn og þar með varð ljóst hverjir unnu forgjafarhluta mótsins, en þar voru efst Björn Birgisson með 1383, Katrín Fjóla Bragadóttir með 1371 og Andri Freyr Jónsson með 1352. Sjá röð með forgjöf og vegna AMF.

10 efstu án forgjafar kepptu svo eftir hádegi allir við alla til að reyna að vinna sér inn rétt í lokamótið á morgun sunnudag. Sjá meira. 

Hafþór Harðarson var sá eini sem spilaði betur en Björn og Katrín Fjóla og tryggði sig þar með efstur inn í allir við alla eftir hádegið með seríu uppá 1358.

Efstir í allir við alla voru Freyr Bragason með 2004 og 180 í bónus, Björn Birgisson með 2008 og 160 í bónus og Andrés Páll með 1744 og 100 í bónus. Sjá stöðu og leiki.

Að loknum leik rétt fyrir klukkan þrjú var svo ljóst hverjir höfðu náð að tryggja sig áfram í lokaúrslitin, sjá stigatöflu.

Staðan í 1. deild kvenna

Baráttan heldur áfram í 1. deild kvenna, en 19. umferðin fór fram þriðjudaginn 1. apríl. KFR-Valkyrjur sóttu ÍA heim á Skaganum og fór viðureign þeirra 15.5 – 4.5. Í Öskjuhlíð mættust ÍR-BK og KFR-Afturgöngurnar og eftir spennandi keppni tryggði ÍR-BK sér 11 stig á móti 9. ÍR-SK tók þar á móti ÍR-TT og lauk viðureigninni 1 – 19. Staða efstu liða er því þannig að KFR-Valkyrjur eru í 1. sæti með 262 stig, KFR-Afturgöngurnar eru í 2. sæti með 246 stig, ÍR-Buff er í 3. sæti með 243,5 stig og ÍR-TT er í 4. sæti með 242,5 stig.