
KFR-Valkyrjur og ÍR-KLS eru Bikarmeistarar liða í keilu 2014, en liðin tryggðu sér sigur í úrslitum Bikarkeppni liða í keilu 2014 sem fóru fram í Keiluhöllinni Egilshöll miðvikudagskvöldið 23. apríl.
KFR-Valkyrjur voru að vinna titilinn í áttunda sinn, en þær voru meðal annars Bikarmeistarar 6 ár í röð á árunum 2004 til 2009. ÍR-KLS vann titililinn fimmta árið í röð og í tíunda skipti alls.
Lið ÍR-KLS vann lið KFR-Lærlinganna í bráðabana eftir fjóra leiki sem fóru 2 – 2. ÍR-KLS vann fyrstu tvo leikina, fyrri leikinn með 891 gegn 814 hjá KFR-Lærlingum og annan leikinn með stórleik uppá 945 á móti 808. KFR-Lærlingar létu það þó ekki slá sig útaf laginu og komu ákveðnir til leiks í þriðja leik og unnu hann með 815 á móti 800 hjá ÍR-KLS. Ákveðnir í að halda uppteknum hætti unnu KFR-Lærlingar svo fjórða leikinn með 837 á móti 793 hjá ÍR-KLS og tryggðu sér þar með bráðabana.
Undir lok fjórða leiksins fór brunakerfið í gang og gall kallkerfið við í hæsta styrk með fagurri kvenmannsrödd sem bað viðstadda ítrekað um að halda kyrru fyrir á meðan komist væri að því hvað væri að, það endaði svo með því að allir voru beðnir um að rýma húsið og fór að finnast vond lykt og reykjarský sást í salnum. Allt endaði þetta vel og þurftum við ekki að yfirgefa salinn að fullu enda hafði bara brunnið yfir mótor á einni brautinni innst í húsinu og var húsið reyk og lyktarræst með því að opna allt uppá gátt og fannst fólki þá loftræstingin loksins virka í salnum og vera viðunandi hitastig þar.
Þegar allir voru komnir inn aftur var tekið til við að spila 9-10 ramma, KFR-Lærlingar felldu allir í 9. ramma en ÍR-KLS náðu 2 feykjum, opnum og einni fellu í 9. ramma og voru frekar niðurlútir í upphafi 10. ramma, en það breyttist fljótt þegar fyrstu mönnum Lærlinganna mistókst að halda uppteknum hætti og náðu ÍR-KLS að klára leikinn með 145 gegn 127 hjá KFR-Lærlingum. Samtals spiluðu ÍR-KLS 3574 eða 212,74 að meðaltali en KFR-Lærlingar spiluðu samtals 3401 eða 202,44 að meðaltali.
Lið KFR-Valkyrjanna vann lið ÍR-Buff 3 – 1. KFR-Valkyrjur unnu fyrstu tvo leikina, þann fyrri með einungis 8 pinna mun, 720 gegn 712 hjá ÍR-Buff og annan leikinn með 658 gegn 562. ÍR-Buff konur komu ákveðnar til leiks í þriðja leik og unnu hann með 715 gegn 630 hjá KFR-Valkyrjum. Fjórða leikinn unnu svo KFR-Valkyrjur með 646 gegn 624 hjá ÍR-Buff eftir tafir vegna rýmingar. Samtals spiluðu KFR-Valkyrjur 2654 eða 165.88 að meðaltali í leik en ÍR-Buff spilaði samtals 2613 eða 163,31 að meðaltali.
Sjá leikskýrslur og skor HÉR.



Lið ÍR 1 er Íslandsmeistari unglingaliða fjórða árið í röð, en liðið tryggði sér titilinn í úrslitakeppni mótsins sem fór fram í Keiluhöllinni í Egilshöll laugardaginn 29. mars s.l. Deildarmeistararnir ÍA 1 urðu í 2. sæti og lið KFR 1 og ÍR 2 höfnuðu í 3. – 4. sæti. Í liði ÍR 1 voru Erlingur Sigvaldason, Þorsteinn Hanning Kristinsson, Ágúst Ingi Stefánsson og Steindór Máni Björnsson. Erlingur og Þorsteinn spiluðu best allra í úrslitunum. 
Úrslit
ÍR-KLS hafa unnið Bikarmeistaratitilinn oftast allra karlaliða og geta með sigrinum tryggt sér titlinn í 10. sinn og 5. árið í röð. KFR- Valkyrjur hafa unnið titilinn 7 sinnum og einungis KFR-Afturgöngurnar hafa unnið titilinn oftar eða 12 sinnum. KFR-Lærlingar hafa orðið bikarmeistarar 4 sinnum og eins og áður segir þá hefur ÍR-Buff nú möguleika á að tryggja sér titilinn í fyrsta sinn.
Fimmta og síðasta umferð
Úrslitakeppni 
Í gær lauk keppni á Evrópumóti unglinga með úrslitakeppni 24 efstu keppendanna í pilta- og stúlknaflokki eftir alla keppnina (All-Event). Sigurvegari í stúlknaflokki var Lea Degenhardt Þýskalandi sem sigraði Keira Reay Englandi ír úrslitunum 2 – 1. Sigurvegari í piltaflokki var Pontus Andersson Svíþjóð sem vann Markus Bergendorff Danmörku í úrslitunum 2 – 1. Sjá nánar
Í dag fór fram einstaklingskeppni stúlkna á Evrópumóti unglinga. Katrín Fjóla Bragadóttir spilaði í holli 1 sem hóf keppni kl. 9:00 í morgun eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Leikir hennar voru 181, 180, 193, 178, 174 og 159, samtals 1.065 og endaði hún í 34 sæti með 177, 5 að meðaltali og er það besti árangur íslenskrar stúlku á Evrópumóti unglinga.
Í dag fór fram einstaklingskeppni pilta á Evrópumóti unglinga. Guðmundur Ingi Jónsson og Hlynur Örn Ómarsson spiluðu í holli 1 sem hóf keppni kl. 9:00 í morgun eða kl. 7:00 að íslenskum tíma. Guðmundur Ingi spilaði samtals 1036 og voru leikir hans 145, 179, 166, 177, 168 og 201 og endaði hann í 75. sæti. Hlynur Örn spilaði samtals 994 og voru leikir hans 137, 190, 161, 171, 154 og 181 og hafnaði hann í 86. sæti.