Keppni á Íslandsmóti unglinga hófst í Keiluhöllinni í Egilshöll í dag. Keppendur í 1. og 2. flokki spiluðu 6 leiki, en keppendur í 3., 4. og 5. flokki spiluðu 3 leiki. Hlynur Örn Ómarsson ÍR, Guðmundur Ingi Jónsson ÍR, Benedikt Svavar Björnsson ÍR, Aron Fannar Benteinsson ÍA og Andri Freyr Jónsson KFR spiluðu best allra keppenda í dag og spiluðu allir um og yfir 1100 í 6 leikjum. Staðan eftir fyrsta keppnisdag hér
Breytingar á dagskrá
Breytingar hafa verið gerðar á dagskrá Keilusambands Íslands í maí. Lokaumferð Íslandsmóts félaga verður miðvikudaginn 14. maí í Egilshöllinni. Úrslit í Utandeild verða leikin fimmtudaginn 15.maí í Öskjuhlíð og síðast en ekki síst verður ÁRSHÁTÍÐ KLÍ föstudaginn 16. maí á Rúbín. Sjá nánar í dagskrá
Bikarkeppni 4 liða úrslit
Í kvöld var dregið í 4 liða úrslit kvenna og karla í Bikarkeppni liða. Í 4 liða úrslitum karla mætast ÍA og KFR Lærlingar og fer leikur þeirra fram í Keilusalnum á Skaganum miðvikudaginn 12. mars. KR-D tekur hins vegar á móti bikarmeisturum ÍR KLS í Keiluhöllinni í Öskjuhlíðinni fimmtudaginn 13. mars.
Í 4 liða úrslitum kvenna taka bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur á móti KFR-Afturgöngunum í Keiluhöllinni í Egilshöll miðvikudaginn 12. mars, en leikur ÍR BK og ÍR-Buff fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð fimmtudaginn 13. mars.
Tveir leikir í 3. deild karla
Tveir leikir fóru fram í 3. deild karla. KR ingar halda áfram að hala inn stig og eru næsta öruggir upp um deild.
12. umferð 2. deildar karla
12. umferð er nú lokið í 2. deild karla. ÍR-L stungið af og ÍR-Broskarlar tapa öðrum leiknum í röð.
Bikarkeppni KLÍ 8 liða úrslit
Í dag fór fram síðasti leikurinn í 8 liða úrslitunum Bikarkeppni liða uppi á Skaga og fóru leikar þannig að ÍA hafði sigur á móti ÍA-W 3 -0 eða 2181 – 2120
Minnum á að dregið verður í 4 liða úrslit kvenna fyrir leik í Öskjuhlíðinni þriðjudaginn 18. febrúar. Í úrslitunum eru KFR Valkyrjur, KFR Afturgöngur, ÍR Buff og ÍR BK, og hjá körlunum verður dregið fyrir leik í Egilshöllinni sama kvöld og þar eru í úrslitum ÍR KLS, KFR Lærlingar, ÍA og KR D.
Keppni hefst að nýju á Íslandsmóti liða
Í dag hefst keppni að nýju á Íslandsmóti liða eftir 2 vikna hlé vegna annarra móta. Í dag laugardaginn 15. febrúar mætast Þór og ÍR-KLS í Keilunni á Akureyri kl. 15:00 í síðasta leiknum í 11. umferð 1. deildar karla og á morgun sunnudaginn 16. febrúar fara þrír leikir fram á Skaganum. ÍA-B tekur á móti ÍR-Fagmönnum í fyrsta leiknum í 14. umferð 2. deildar karla kl. 10:00. Skagakonur í ÍA taka á móti ÍR-KK í fyrsta leik 15. umferðar 1. deildar kvenna kl. 13:00 og ÍA-W tekur á móti ÍR-PLS í fyrsta leiknum í 12. umferð 1. deildar karla kl. 16:00.
Á mánudag 17. febrúar mætast KFR-Lærlingar og KFR-Stormsveitin í Egilshöllinni í 1. deild karla og sex leikir fara fram í Öskjuhlíðinni í 2. og 3. deild karla. Þriðjudaginn 18. febrúar fara síðan fram aðrir leikir í 1. deild karla og kvenna. Sjá nánar í dagskrá
Deildarbikar liða – Staðan eftir 4. umferð
Keppni í 4. umferð Deildarbikars liða fór fram þriðjudaginn 4. febrúar. Liðin í A riðli kepptu í Öskjuhlíðinni, en liðin í B og C riðli kepptu í Egilshöll. Staðan að lokinni 4. umferð er þannig að ÍR-PLS hefur aukið forystu sína í efsta sæti A-riðils með 40 stig, 6 stigum meira en ÍR-TT sem er í 2. sæti með 34 stig, einu stigi meira en KR-A sem kemur í 3. sæti með 33 stig, en ÍR-L er í 4. sæti með 29 stig. Í B-riðli eru KFR-Afturgöngurnar í efsta sæti með 30 stig og ÍR-Buff er komið í 2. sætið með 26 stig, einu stigi meira en KR-B sem kemur í 3. sæti með 25 stig, en ÍA er í 4. sæti með 20 stig. Í C riðli er ÍR-KLS í efsta sæti með 30 stig fjórum stigum meira en ÍA-W sem er í 2. sæti með 26 stig. Í 3. sæti er KR-C með 22 stig, en ÍR-Broskarlar eru komnir í 4. sæti með 16 stig. Sjá stöðuna í mótinu
Alls keppa 19 lið í Deildarbikar á þessu keppnistímabili og skiptast þau í þrjá riðla, 7 lið í A riðli og 6 lið í B og C riðlum. Sjá nánar upplýsingar um leikdaga, riðlaskiptingu og leiki í hverri umferð.
Olíuburður í Deildarbikar liða er Middle Road 39 fet
Nýtt meðaltal 31. janúar 2014
Birt hefur verið allsherjarmeðaltal miðað við 31. janúar 2014
Hafþór Harðarson ÍR er í efsta sæti meðaltalslistans og hækkar sig um 6 pinna frá síðasta mánuði og er nú með 220 pinna að meðaltali í leik, en hann spilaði 220 að meðaltali í leik í síðasta mánuði. Dagný Edda Þórisdóttir KFR er efst kvenna á listanum með 189 pinna og lækkaði lítillega milli mánaða. Magnús Magnússon ÍR kemur næstur á listanum yfir karlana með 213 að meðaltali í leik og Arnar Sæbergsson ÍR er þriðji með 212 að meðaltali. Hjá konunum er Alda Harðardóttir KFR í 2. sætið með 187 að meðaltali í leik, eins og Guðný Gunnarsdóttir ÍR.
Til meðaltals teljast síðustu 100 leikir fyrir mánaðamót fyrir útreikning meðaltals. Einnig eru birt mánaðar-, vetrar- og ársmeðaltöl keppanda.. Vetrarmeðaltal er reiknað útfrá leikjum á tímabilinu 1. júní til 31. maí. Þá kemur einnig fram hve langt er síðan síðasti leikur leikmanns sem taldi til meðaltals var leikinn, í dálkinum „Óvirkir mán.“ Hægt er að skoða þróun meðaltals og hvaða leikir teljast til síðustu 100 leikja undir Tölfræði og leikmenn
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf 2014
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keiluhöllinni Egilshöll dagana 8. – 11. mars n.k.
Sjá auglýsingu eða fara beint á skráningarsíðu.
Forkeppnin fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Egilshöll laugardaginn 8. og sunnudaginn 9. mars og hefst kl. 10:00 báða dagana. Spilaðir eru 8 leikir í forkeppninni, 4 leikir í hvoru húsi.