ÍR-TT á toppinn eftir 16. umferð

Í síðustu viku fór fram keppni í 16. umferð 1. deildar kvenna. KFR-Valkyrjur og ÍR-TT mættust í Egilshöllinni og fór viðureign þeirra 11,5 á móti 8,5, en það nægði ÍR-TT til að fara upp í toppsætið með 214,5 stig. ÍR-Buff tók á móti ÍA í Egilshöllinni og vann stórsigur 17 – 3 og það tryggði þeim 2. sætið með 211,5 stig. KFR-Valkyrjur og KFR-Afturgöngurnar sem eru búnar að sitja hjá koma síðan í næstu sætum með 210,5 stig og 208 stig. Efstu fjögur liðin eru nú komin með 40 stiga forystu á ÍR-BK sem er í 5. sæti og á einnig eftir að sitja hjá, en enn eru 6 umferðir eftir þannig að enn er möguleiki á sæti í úrslitum.

Úrslit leikja í 16. umferð voru eftirfarandi:
KFR-Skutlrunar – ÍR-SK 19 – 1
ÍFH-Elding – ÍR-BK 6 – 14
ÍR-KK – ÍR-N 8 – 12
KFR-Valkyrjur – ÍR-TT 11,5 – 8,5
ÍR-Buff – ÍA 17 – 3
KFR-Afturgöngurnar sátu hjá

Hæstu seríur umferðarinnar spiluðu Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum 607, Guðrún Soffía Guðmundsdóttir ÍR-Buff 575 og Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff 562. ÍR-Buff spilaði hæstu seríuna 2.191 og hæsta leikinn 746.

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 16. umferð:
1. ÍR-TT 214,5 (15)
2. ÍR-Buff 211,5 (15)
3. KFR-Valkyrjur 210,5 (14)
4. KFR-Afturgöngurnar 208 (14)
5. ÍR-BK 167,5 (15)
6. ÍR-N 138 (14)
7. ÍFH-Elding 111 (15)
8. KFR-Skutlurnar 107 (14)
9. ÍA 100 (14)
10. ÍR-KK 93,5 (15)
11. ÍR-SK 38,5 (15)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 172,21, KFR-Afturgöngurnar eru með 165,79, ÍR-Buff er með 167,03, og ÍR-TT er með 164,31. KFR-Valkyrjur eiga hæsta leik liðs 800 (11. umferð) og hæstu seríu liðs 2.263 (9. umferð).

Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar með 191,5 að meðaltali í 40 leikjum, Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff er með 177,6 að meðaltali í leik í 42 leikjum og Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum er með 176,3 í 39 leikjum. Í keppni um stigameistararann er Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT með 0,800 í 45 leikjum, Guðný Gunnarsdóttir er með 0,767 í 45 leikjum og Jóna Gunnarsdóttir KFR-Afturgöngunum er með 0,764 í 36 leikjum. Dagný Edda er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,85 að meðaltali í leik, Guðný er með 4,20 og Ástrós er með 3,60. Dagný Edda á hæsta leikinn 267, Linda Hrönn á 255 og Ástrós á 245. Dagný Edda á hæstu seríuna 720, Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum á 604 seríu og Ragna Matthíasdóttir á hæst 595. (Hér eru einungis taldir upp keppendur sem spilað hafa 21 leik eða meira og geta þar með unnið til einstaklingsverðlauna).

Sjá stöðuna eftir 16. umferð

Í 17. umferð 1. deildar kvenna sem fer fram sunnudaginn 2. mars og þriðjudaginn 4. mars tekur ÍA á móti ÍFH-Eldingu á Skaganum. ÍR-SK tekur á móti KFR-Valkyrjum og ÍR-N tekur á móti ÍR-Buff í Öskjuhlíðinnni og þar mætast einnig ÍR-BK og KFR-Skutlurnar. ÍR-TT tekur síðan á móti KFR-Afturgöngunum í Egilshöll. ÍR-KK situr hjá í 17. umferð. Sjá dagskrána í 1. deild kvenna

Seinni hluta keppnistímabilsins er spilað í olíuburðinum 2010 EBT Bowltech Aalborg International 38 fet.

14. umferð 2. deildar karla

ÍR L heldur sigurgöngu sinni áfram og eins og hefur komið fram nokkuð öruggir upp á næsta tímabili Broskarlar halda smá fjarlægð á liðin í 3-5 sæti og nú eru einungis 4 umferðir eftir. Naddóður er svo gott sem fallinn í þriðju deild en ÍR Nas og Keila.is heyja harða baráttu um það hvort liðið kemst hjá því að fara með þeim. Tölfræðilega er ýmislegt hægt en svo er að sjá spilamennskuna á vellinum. Sjá stöðuna í 2. deild karla

 Á braut 1 og 2 áttust við Keila.is og Þrestir fyrsti leikurinn frekar jafn en Þrestir unnu 588-562,Keila.is tóku annan leikinn sem var ekki síður á jöfnu 650-637 en síðasta leikinn áttu Þrestir með 100 pinnum og kláruðu einvígið 1904-1791 eða 14-6.

Jökull með hæstan leik 188 en  Sigurður Valur með hæstu seríu 518
 
Á braut 3 og 4 spiluðu ÍR Blikk og ÍR A þar áttu liðsmenn Blikkara ekki í teljandi vandræðum með þriggja manna lið ÍR A unnu fyrsta leikinn 659-528 næsta 747-579 og þriðja 702-619 2108-1726 eða 17-3 með þessum sigri skelltu Blikkarar sér upp fyrir ÍR A í deildinni.
Skúli með hæstan leik og seríu 234 og 584
 
Á braut 5 og 6 léku ÍR Nas gegn ÍR L þar reyndar léku þeir fram í 8.ramma en þá gafst önnur vélin upp og var leikurinn færður á annað sett þetta hafði þó ekki teljandi áhrif á toppliðið sem skilaði góðum sigri í kvöld unnu alla þrjá leikina 740-633,744-571 og 727-566 eða 2211-1770 17-3 sigur.
Birgir með hæstan leik og flotta seríu 215 og 618
Á braut 7 og 8 öttu kappi ÍR Broskarlar og ÍR T þar byrjuðu ÍR T á að leggja öll trompin á borðið og höfðu góðan sigur 751-682 eftir það sáu þeir ekki til sólar Broskarlar unnu næstu tvo 676-546 og 821-602 heildin 2179-1899 eða 16-4.
Stebbi með hæstan leik og seríu 258 og 585
 
Á braut 9 og 10 kepptu ÍR Naddóður gegn JP Kast sem byrjuðu vel og unnu alla þrjá leikina 625-542,691-595 og þann síðasta einungis með þremur pinnum 624-621 heild 1940-1758 eða 14-6.
Konráð með hæstu seríu 565 en Svavar með hæstan leik 217
 
Lítil breyting á stöðunni önnur en sú að Blikkarar skella sér upp fyrir ÍR A
 
1.ÍR L 217
2.ÍR Broskarlar 182,5
3.KFR JP Kast 165,5
4.ÍR Blikk 154,5
5.ÍR A 152,5
6.KFR Þröstur 139,5
7.ÍR T 122,5
8.ÍR Keila.is 107
9.ÍR Nas 99,5
10.ÍR Naddóður 59,5

Sjá stöðuna í 2. deild karla

Hörð barátta á toppi 1. deildar karla.

Þrettánda umferð 1. deildar karla fór fram í vikunni. Tveimur leikjum er ólokið en þeir verða spilaðir um miðjan mars en það eru leikir Þórs og KFR Lærlinga sem fram fer 15. mars á Akureyri og leikur ÍA og KR c sem verður spilaður 16. mars á Akranesi.

KFR Stormsveitin – ÍR KLS   Egilshöll  25. febrúar.   6 – 14    2240 – 2416
KLS mættu ákveðnir til leiks og ætluðu greinilega ekki að tapa stigum í toppbaráttunni. Fyrstu tvo leikina tóku þeir nokkuð örugglega  1 – 5 og spiluðu yfir 830 í báðum leikjum. Í öðrum leik var mikil spenna vegna mögulegs 300 leiks hjá Arnari Sæbergs. Hann var kominn með níu í röð en opnaði svo tíunda ramma og endaði í 267.
Í þriðja leik snérist dæmið við og Stormsveitin var sterkari. Sá leikur endaði  4 – 2 og þá var það Stormsveitin sem fór í 817.
Hæstur hjá Stormsveitinni var Valgeir Guðbjarts með 637 en hjá KLS Einar Sig með 663 og Arnar Sæbergs með 638

ÍR PLS – KR A   Egilshöll 25. febrúar.   16 – 4   2428 – 2220

Þessi leikur fór nokkuð rólega af stað. Bæði lið ekkert að spila sérstaklega en PLS vann þó leikinn 5 – 1 og gaf tóninn fyrir það sem koma skyldi. PLS vann annan leikinn líka 5 – 1 og síðasta leikinn 4 – 2.
Það má segja að þar hafi þeir tapað einu stigi of mikið því eftir leikinn sitja þeir í öðru sæti, einu stigi á eftir ÍA W en með betra meðaltal.
Hæstur hjá PLS var Hafþór með 676 og Bjarni Páll með 618.  Hjá KR A var Davíð Löve með 601.

ÍA W – KR B   Akranesi 26. febrúar.   12 – 8  2321 – 2228

Á Skaganum áttust við topplið ÍA W og KR B sem eru að keppast um að komast í úrslitakeppnina. Leikurinn var í beinni á netinu og var hin besta skemmtun, jafn en samt kaflaskiptur.
Í fyrsta leik spiluðu bæði lið vel, yfir 800. Þann leik vann KR B með fjórum pinnum og úrslit urðu 2 – 4. Annar leikurinn var ekki vel spilaður, hvorugt liðið fór yfir 700 og heildina unnu KR B á einum pinna.  Úrslit leiksins urðu 3 – 3. Þá tóku Skagamenn við sér, spiluðu 833 í síðasta leik á móti 735 hjá KR B og unnu leikinn 5 – 1 og viðureignina 12 – 8.
Skúli Freyr í ÍA W spilað frábærlega og var nálægt því að taka hæstu seríu í deildinni af Herði Einars í KR C. Skúli spilaði 716 en sería Harðar er 717. Hæstur hjá KR B var Bragi Már en hann spilaði 243.

 Sjá stöðuna eftir 13. umferð

Hjóna- og paramót KFR

 Fjórða og síðasta umferð mótsins verður leikin næst komandi sunnudag og úrslitin strax á eftir.  Mótið hefst að venju kl. 19.  Það eru líkur á spennandi lokaumferð og þó nokkur pör sem eiga möguleika á fjórum efstu sætunum.  Staðan í mótinu er hér.  Úrslitin eru leikin allir við alla, einföld umferð, og telja þrjár hæstu seríur, án forgjafar, til sæta í úrslitum.

13. umferð 2. deild karla

13. umferð í 2. deild karla fór fram í kvöld. ÍR L komið með annan fótinn í fyrstu deild á toppnum með 200 stig. Sjá stöðuna í 2. deild karla

Toppliðin áttust við á braut 1 og 2 ÍR-L áttu ekki í teljandi vandræðum með fyrsta leikinn unnu 688-617. Broskarlar tóku annan leikinn 710-681 og einnig þriðja 673-665 þar sem úrslitin réðust í 10 ramma. Heildin 2034 hjá ÍR L gegn 2000 hjá Broskörlum eða 11-9.
Biggi hæstur með 222 og 591 
 
Á braut 3 og 4 áttustu við Þrestir og Blikkarar þar sem Blikkarar voru á góðu skriði í fyrstu 2 leikjunum 681-639 og 689-639 seinasti leikurinn var hins vegar Þrastanna og sóttu þeir verulega á heildina 731-653. Heildin 2023 Blikkarar gegn 2009 hjá Þröstum eða 14-6.
Bjarni með hæstan leik og seríu 220 og 600
 
Á braut 5 og 6 spiluðu JP Kast og Keila.is þar sem JP-kast átti ekki í teljandi vandræðum með að landa sigri 615-609 spennandi fyrsti leikur 654-579 og 671-621 heildin 1940-1809 eða 16-4.
Konni með hæstan leik og seríu 215 og 584.
 
Í Egilshöll fóru fram 2 leikir
 
Á braut 5 og 6 áttust við ÍR A og ÍR Nas. Þar mættu ÍR A 3 til leiks en byrjuðu á að vinna fyrstu tvo leikina 684-610 og 619-612 ÍR Nas tók síðasta leikinn 648-591. Heildin fór 1892-1870 ÍR A í vil en ÍR Nas vann leikinn 11-9
Hlynur með hæstan leik og seríu 245 og 597.
 
Á braut 7 og 8 léku ÍR T gegn Naddóði sá leikur endaði 15-5 fyrir ÍR T
 
Þetta þýðir að JP Kast og ÍR A skiptast á sætum annað er óbreytt mikil keppni um hverjir taka annað sætið og komast upp um deild
 
1.ÍR L 200
2.ÍR Broskarlar 166,5
3.KFR JP Kast 151,5
4.ÍR A 149,5
5.ÍR Blikk 137,5
6.KFR Þröstur 125,5
7.ÍR T 118,5
8.ÍR Keila.is 101
9.ÍR Nas 96,5
10.ÍR Naddóður 53,5

Sjá stöðuna í 2. deild karla

15. umferð 1. deildar kvenna

Í síðustu viku fór fram keppni í 15. umferð 1. deildar kvenna. KFR-Afturgöngurnar tóku á móti KFR-Valkyrjum í Öskjuhlíðinni og unnu mikilvægan 14 – 6 sigur í toppbaráttunni og náðu með því að halda efsta sæti deildarinnar með 208 stig. ÍR-TT tók á móti KFR-Skutlunum í Egilshöllinni og eftir mikla baráttu lauk leiknum 16 – 4 og ÍR-TT fór því upp í 2. sætið með 206 stig.

KFR-Valkyrjur sem eru ein toppliðanna búnar að sitja hjá koma síðan í 3. sæti með 199 stig og ÍR-Buff sem vann stórsigur á ÍR-BK á útivelli í Öskjuhlíðinni er í 4. sæti með 194,5 stig. Lið ÍA tók á móti ÍR-KK á Skaganum og vann stórsigur 17 – 3 og vann sig upp um 2 sæti. ÍR-SK vann ÍFH-Eldingu í Öskjuhlíðinni 14 – 6.

Úrslit leikja í 15. umferð voru eftirfarandi:
ÍA – ÍR-KK 17 – 3
ÍR-BK – ÍR-Buff 3 – 17
ÍR-SK – ÍFH-Elding 14 – 6
KFR-Afturgöngurnar – KFR-Valkyrjur 14 – 6
ÍR-TT – KFR-Skutlurnar 16 – 4

Hæstu seríur umferðarinnar spiluðu Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum 595, Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum 580 og Sigurlaug Jakobsdóttir ÍR-Buff 570. ÍR-Buff spilaði hæstu seríuna 2.104 og hæsta leikinn 743.

Staðan í 1. deild kvenna að lokinni 15. umferð:
1. KFR-Afturgöngurnar 208 (14)
2. ÍR-TT 206 (14)
3. KFR-Valkyrjur 199 (13)
4. ÍR-Buff 194,5 (14)
5. ÍR-BK 153,5 (14)
6. ÍR-N 126 (13)
7. ÍFH-Elding 105 (14)
8. ÍA 97 (13)
9. KFR-Skutlurnar 88 (13)
10. ÍR-KK 85,5 (14)
11. ÍR-SK 37,5 (14)
(fjöldi leikja í sviga)

KFR-Valkyrjur eru með hæsta meðaltal liðs 172,21, KFR-Afturgöngurnar eru með 165,79, ÍR-Buff er með 165,92, og ÍR-TT er með 164,18. KFR-Valkyrjur eiga hæsta leik liðs 800 (11. umferð) og hæstu seríu liðs 2.263 (9. umferð).

Dagný Edda Þórisdóttir KFR-Valkyrjum er með hæsta meðaltal deildarinnar með 190,6 að meðaltali í 37 leikjum, Ástrós Pétursdóttir ÍR-Buff er með 176,8 að meðaltali í leik í  39 leikjum og Ragna Matthíasdóttir KFR-Afturgöngunum er með 176,3 í 39 leikjum. Í keppni um stigameistararann er Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR-TT með 0,833 í 42 leikjum, Guðný Gunnarsdóttir er með 0,774 í 42 leikjum og Dagný Edda er með 0,770. Dagný Edda er með hæsta fellumeðaltal deildarinnar 4,81 að meðaltali í leik, Guðný er með 4,21 og Ástrós er með 3,59. Dagný Edda á hæsta leikinn 267, Linda Hrönn á 255 og Ástrós á 245. Dagný Edda á hæstu seríuna 720, Helga Sigurðardóttir KFR-Afturgöngunum á 604 seríu og Ragna Matthíasdóttir á hæst 595. (Hér eru einungis taldir upp keppendur sem spilað hafa 21 leik eða meira og geta þar með unnið til einstaklingsverðlauna)

Sjá stöðuna eftir 15. umferð

Í 16. umferð 1. deildar kvenna sem fer fram þriðjudaginn 26. febrúar mætast KFR-Valkyrjur og ÍR-TT í Egilshöll og ÍR-Buff tekur á móti ÍA. Í Öskjuhlíðinni mætast KFR-Skutlurnar og ÍR-SK, ÍFH-Elding og ÍR-BK og ÍR-KK og ÍR-N. KFR-Afturgöngurnar sitja hjá í 16. umferð. Sjá dagskrána í 1. deild kvenna

Seinni hluta keppnistímabilsins er spilað í olíuburðinum 2010 EBT Bowltech Aalborg International 38 fet.

Íslandsmót unglinga 2014 – Úrslit

Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR og Guðmundur Ingi Jónsson ÍR eru Íslandsmeistarar unglinga í Opnum flokki 2014. Í 2. sæti voru Hlynur Örn Ómarsson ÍR og Natalía G. Jónsdóttir ÍA og í 3. sæti voru Benedikt Svavar Björnsson ÍR og Jóhanna Guðjónsdóttir ÍA. Alls tóku 38 keppendur þátt í mótinu að þessu sinni og kepptu í 5 flokkum pilta og stúlkna. Sjá lokastöðuna eftir 4. keppnisdag hér og úrslit allra flokka eru hér  Stjórn KLÍ óskar öllum Íslandsmeisturum innilega til hamingju með titlana og öllum keppendum fyrir drengilega keppni.